Alþýðublaðið - 21.04.1966, Side 3

Alþýðublaðið - 21.04.1966, Side 3
W//S/.W.'//, VÆ/M ■ Xp.-X;' g >.■;■ S <'’'• :’:iv :Í:';;' Kunni sjálfsvörn - lærði sjálfsstjórn Rætt við Japanann Matsoka Savamuri; sem nú hlytur ísl. ríkisborgararétt í TILEFNI af frétt frá Alþingi um nýja ríkisborgara, náðum við tali af þeim, sem lengst er að kominn, Japananum Matsoka Savamuri, Suðurgötu 14. „Ég kom hingað 17. júní 1959 ■ sem judo-þjálfari á vegum íþrótta félagsins Ármanns. Ég hafði þá starfað í Finnlandi um nokkurt skeið sem judo þjálfari við lög- .regluskóla þar og einnig í fleiri löndum Evrópu, svo sem Hollandi og Luxemburg. Til Evrópu kom . ég frá Bandaríkjunum, én þar hafði ég hið sama fyrir stafni. Ég byrjaði með eigin þjálfunar- og nuddstofu á Ránargötu, 1962 og hef nú þjálfunarstofu hér að Ránagötu 14. Þetta er alluiða lík amáþjálfun til að herða iíkam- ann gegn ýmsum kvillum. svo sem gigt og þess háttar.“ „Þegar ég var í japanska hern um“, hélt Savamuri áfram á sinni ógætu íslenzku, vann ég á Tjik- ini sjúkrahúsinu í Indónesíu sem hjúkrunarmaður. Á læknalista þessa spítala sá ég fjarska ein- kennilegt nafn. Þetta var nafn j Björgúlfs Ólafssonar, fyrsta ís- lenzka nafnið, sem ég ^á. En Björgúlf sá ég aldrei, svo ég vissi til. En mig hefur alltaf langað til að hitta hann.“ „Já, það var erfitt að dvelja hér fyrst í stað. Erfiðast var að skilja fólkið, enda þótt margir skildu ensku. Mér lá oft við gráti af þessum sökum og hreinni ör- vinlan. En erfiðast af öllu var fyrir mig að skilja inntak lýðræð isins, eins og það er framkvæmt á íslandi. Ég hafði verið í Ame- ríku og heyrt Ameríkana lýsa því yfir, að þeir væru mesta Jýðræð isþjóð í heimi. Og ég hafði kynnst beirra túlkun á lýðræðinu i 4 ár. Ég hafði kynnst því, að í því landi er það brottrekstrar- eða tugthússök að fremja smá mistök, koma of seint einu sinni eða valda einhverjum lítilfjörlegum ó 'bægindum. Slíkt finnst mér hæp ið að kalla lýðræði. í Finnlandi reyndi lítið á þetta, þar sem ég var alltaf umkringdur lögreglu- þjónum, og reyndar má segia það sama um önnur Evrópulnnd. En bó hef ég góða ástæðu til að segja að á íslandi ríki hið eina og sanna lýðræði. Hér útkljá menn ekki deilumál með ;.nefun- um, hnífum og. ýmsu enn verra, eins og algengt er í Asíuiöndum, • ekki sízt í Indónesíu. Hér er mað urinn virtur á annan hátt en ég hafði áður kynnst. Réttur manns, til að verja henduí sínar er meiri. Ég skildi þetta ekki fyrst. Ég hafði lært sjálfsvörn og oft burft á henni að halda. Hér lærði óg sjáifsstjórn og er Guð; þakk 'átur fyrir það. Bezti kennari minn í þeim efnurn", sagði Sa- vamuri brosandi, „er kona mín. Ég varð ástfanginn árið eftir að ég kom hingað, eftir allan þenn an flæking, og giftist íslenzkri konu.“ Þessar skemmtilegu athuga- semdir leiddu af sér þá spurn- mgu, hvort Austurlandabúi héldi ekki áfram að hugsa sem slíkur, enda þótt hann öðlaðist ríkisborg ararétt í framandi landi. „Ég hugsa eins og Vesturlanda Framh. á 14. síðu. Unga fólkið á mikinn þátt Reykjavík. — EG. ÞAÐ hefur komið fram í al-! þjóðaskýrslum að ísland hefur nú þriðju liæstu þjóðartekjur í Evr- ópu. Þet.ta er ekki að þakka tækni þekkingu okkar eða verkmenn- ingu, heldur held ég, að þetta sé fyrst og fremst vegna þátttökú unga fólksins í atvinnulífinu al- mennt. Á þessa leið mælti Sig- urður Ingimundarson (A)er hann mælti fyrir nefndaráliti allsherjar nefndar sameinaðs þings um til- lögu Benedikts Gröndals og hans um lækkun kosningaaldurs niður í 18 ár. Sigurður sagði, að allsherjar- nefnd væri sammála um þá breyt- ingu á tillögunni, að miða ekki við 18 ár, heldur fela þingkjörinni nefnd að athuga um lækkun kosn- ingaaldurs ótiltekið og athuga jafnframt um breytingu á fjár- ræðis og giftingaraldri með tilliti til breyttra þjóðfélagsaðstæðna. Skal nefndin skila áliti um þetta mál áður en næsta reglulegt Al- þingi kemur saman. Þá fór Sigurður nokkrum orðum um mikilvægan þátt unga fólksins í atvinnulífinu er skólafólk á í sumrum starfaði að mikilvægum framleiðslustörfum og öðlaðist þannig skilning á skyldum og réttindum þjóðfélagsþegnánna. | Hann minnti að lokum á að í Norðurlandaráði hefði' verið sam- I þykkt fyrir nokkru að skora á rík- : isstjórnir Norðurlandanna að lækka kosningaaldur, og kvaö liann ekki illa til fallið að við j íslendingar yrðum þar fyrstir til I að stíga þetta skref. REYKJAVÍK: Nótabátar úr Reykjavik. sem leggja upp í Þorlákshöfn fengu 358 tonn s.l. sólai'hring. Afli einstakra báta var sem hér segir (tölurnar tákna smá lestir): Hannes Hafsteinn 20 Qsk ar Halldórsson 13, Þórður Jón asson 30, Snæfell 10, Hegri 12, Vigri 55, Viðey 20, Þor- steinn 23, Pétur Sigurðsson 25, Reykjaborg 40, Ólafur Magnússon 35, Súlan 25, Gísli Árni 30 og Akraborg 20 tonn. Netabátar, sem róa frá Reykjavík, hafa fengið dágóð an afla. Hæstir frá febrúar- lokum eru: Helga með 800 tonn Ásþór 660, Björgúlfur 640, Húni II. 570, og Svanur með 532 tonn. Friðrik Sigurðsson er einnig talsvert hár, en tölur voru ekki áreiðanlegar um afla hans. *5 ' HAFNARFJÖRÐUR: Aðeins 5 af 18 Hafnarfjarð arbátum lögðu upp þar í gær. Afli var heldur lélegur. Ver ið er að skipa út heilfryst- um fiski, sem flytja á til Rússlands, hátt á þridja hundrað tonnum. B.v Nairfi veiddi þennan fisk. Útflytj- andinn er Guðmundur Jörunds son. EYRARBAKKI: Frá Eyrarbakka ganga 5 bát ar í vetur. Austan bræla er í dag og fáar veiðifréttir. f gær var sæmilegur afli. Meðal- afli á bát er nú um 500 tonn. Brim hefur ekki hamlað sjó- sókn það sem af er vertíð, enda þótt oft hafi verið erfið sjóveður. Undanfarin tvö sumur hef- ur verið unnið að hafnarfram kvæmdum á Eyrarbakka. , í sumar verður unnið fynr um 5 milliónir. Er þar um að ræða byggingu skjólgarðs fyrir utan bátana, en þetta hefur ekki áhrif á sundin. Bátar^ir geta lagt að bryggju hven$er sem er, án þess að þurfa þð sæta sjávarföllum, eins ogf á Stokkseyri, en þar er muni igrynnra. Á Stokkseyri róa einnig 5 bátar, þar at’ einn með troll. Afli hefur vefið svipaður og á Eyrarbakka. " KEFLAVIK: : Dágóður áfli hefur verjð Mjá Keflavilkurbálj'im undanfarl ía daga, einkum nótabátum. Þahn ig kom Sieurpáll frá Sánd- gerði með 75 tonn í gær fig fleiri bátar höfðu reitings- afla. ÞORLÁKSUÖFN: Góður reitingur hefúr vér- ið í net að undanförnu, þejta 10—15 tonn á bát að jafn- aði. Á vegum Meitils róa 6 bátar, en auk þess ’eggja þar uop tveir aðrir bátþr. Mikill fiöldi báta landa í Þor Framh. á 14. síðu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. apríl 1966 3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.