Alþýðublaðið - 08.05.1966, Page 1
Sunnudagur 8. maí 1966 - 46. árg. - 103. tbl. VERÐ 5 KR.
ÞÉIR ERU GRALLARALEGIR þessir pjakkar. Við hittum þá, þegar ljósmyndari og blaðamaður
f.vrir heigina fóru um vesturbæinn nýja I efnislelt. Piltarnir sátu „sunnanundir vegg“, en hann var
napur á norðan þennan dag. en þeir létu það samt ekki á sig fá.
Inni i blaðinu á blaðsiðuni 7, 8 og 9 segir frá vesturbænum nýja í máli og myndum.
AKTUELT UM HANDRÍTAMÁLIÐ:
Við getum beðið rólegir
úrskurðar hæstaréttar
Málgagn danskra jafnaðarmanna
Aktuelt, segir í forystugrein um
dóm Eystri-Landsréttar í hand-
ritamálinu, að fylgrsmenn afhend
ar í Danmörku og íslendingar
geti ról'egir beðið úrskurðar Hæsta
réttar.
Aktuelt segir, að dómur hæsta
réttar bindi að vísu ekki enda
| hnútinn á deiluuna um handritin.
En dómurinn sé svo ótvíræður,
að dómur hæstaréttar verði varla
annað en nánari útfærsla á sýknu
kennslumálaráðuneytisins og þar
með áliti þingmeirihlutans, sem
samþykkti afhendingu handrit-
anna.
Blaðið telur, að jafnvel þótt
um eignanám sé að ræða sé það
réttmætt þar eð það sé í þágu
almannaheilla. Blaðið segir, að
forsendur dómsins bendi í þá átt,
þar sem segi að afhending hand-
ritanna leysi mikilvægt vandamál
í sambúð Danmerkur og íslands.
Blaðið bendir á, að fylgismenn
afhendingar muni veita því eftir
tekt, að í forsendum dómsins seg
ir að tilgangurinn með stofnun
Árnasafns hafi ekki verið sá að
þjóna hagsmunum einstaklinga
heldur eingöngu sá að varðveita
handrit í því augnamiði að rann
saka þau og gefa þau út. Þessum
tilgangi megi enn ná þrátt fyrir
þá skipulagsbreytingu, sem lög-
in um afhendingu áiandritaima
feli í sér.
Hverfisskrifstofur
A-listans í
Reykjavík
HVERFISSKRIFSTOFUR A-listans í Reykjavík er á eftir-
töldum stöðum:
Fyrir Helaskólann: Alþýðuhúsinu, sími 15020. Fyrir Mið-
bæjarskóla. Alþýðnhúsinu. Fyrir Austurbæjarskóla: Brautar-
holti 20, sími 24158. Fyrir Sjómannaskólann: Brautarholti 20,
sími 24159. Fyrir Laugarnesskóla: Suðurlandsbraut 12,
sími 386fiS. Fyrir Landholtsskóla: Suðurlandsbraut 12, sími
38667. Fyrir Álftamýraskóla: Suðurlandsbraut 12, sími 38645.
Fyrir Breiðagerðisskóla: Suðurlandsbraut 12, sími 38699.
Hverfaskrifstofurnar Brautarholti 20 og Suðurlandsbraut
12 eru opoar frá kl. 5—10 daglega, en Hverfaskrifstoiur Mela
skóla og Miðbæjarskóla eru opnar frá kl. 9 f.h. til kl. 10
síðd.
Stuðnir.gsfólk A-Iistans er heðið að hafa samband við
kosningaskrifstofur Alþýðuflokksins og gcfa allar þær upp
lýsingar sem að gagni mega koma.
■ritu:n»ia
ADHALD
Sú var tíðin, að íslenzkir
hægrimenn máttu ekki heyra
á áætlanagerð minnzt. Allt
tal um slíkt var talið óhæfilega
vinstri sinnað og þar af leið-
andi slæmt. Nú er þetta breytt.
Talsvert er síðan ríkisstjórn
in tók upp margháttaða áætl-
anagerð, sem nú er hvarvetna
talin naúðsynlegt hagstjórnar-
tæki. En borgarstjórnarmeiri-
hlutinn í Reykjavík var seinn
að átta sig á hlutunum, og er
það ef til vill ekki nýtt fyrir-
bæri.
Þrisvar sinnum á síðastliðnu
kjörtímabili hefur Óskar Hall-
grímsson fulltrúi Alþýðuflokks
ins í bórgarstjórn flutt tillögur
um, að borgin gerði fram
kvæmdaáætlun til fjögurra
ára. Tvisvar sinnum voru til-
lögur Ó kars felldar, en loks
í janúar síðastliðnum sá borg-
arstjórnarmeirihlutinn sér
fært að sambvkkja tillögu
Óskars um áætlanagerð.
Á fundi borgarstjórnar síð-
astliðinn fimmtudag var svo
lögð fram framkvæmda- og
fjáröflunaráætlun Reykjavíkur
fyrir næstu fjögur ár. Borgar-
stjórinn tók það að vísu fram,
að þessa áætlun skyldi aðeins
hafa til hliðsjónar, hún væri
ekki bindandi og menn mættu
ekki halda að væri verið að
sveigja inn á svið áætlunarbú-
skapar.
Um langt árabil hefur ríkt
handahóf og ringulreið og
skipulagsleysi í framkvæmda-
málum Reykjavíkurborgar.
Batnaði þó ástandið nokkuð,
þegar farið var að gera áætl
anir um framlcvæmdir á ein-
stökum sviðum, en það dugði
þó skammt þegar heildaryfir
sýn vantaði.
Handahófið í framkvæmdum
hefur valdið því, að margt hef
ur dregizt á langinn, stundum
hefur verið vaðið úr einu í
annað, en allt hefur þetta haft
það í för með sér, að fram-
kvæmdaféð liefur nýtzt verr
en skyldi, og því fé rem borg
ararnir hafa lagt af mörkum
til Reykjavíkurborgar ekki allt
af varið til jafn hagkvæmra
framkvæmda og hægt hefði
verið að gera, ef stuðzt hefði
verið við skipulega áætlun.
Borgarsjúkraliúsið í Fossvogi
er og verður klassískt dæmi
um liandahófsframkvæmd, sem
orðið hefur óhæfilega dýr. Þar
hafa iðnaðarmenn og aðrir
næstum lagt nótt við dag und-
anfarið og hefur nú ekki skort
fé til framkvæmda, enda skal
sýna húsið áður en gengið verð
ur til atkvæða.
Alþýðublaðið liefur á það
bent, að Sjálfstæðisflokkurinn
þurfi aukið aðhald um stjóm
Reykjavíkur. Veldi Sjálfstæðis
flokksins er hér orðið gamalt
og gróið, leiðtogarnir óhræddir
um sinn hag og telja að enginn
geti stjórnað borginni betur
en þeir.
Það var fyrir frumkvæði A1
þýðuflokksins að tillaga um
framkvæmdaáætlun var sam-
þykkt í borgarstjórn. Sam-
þykkt tillögunnar ber að fagna
og her það að nokkru vott um
lofsverða hugarfarsbreytingu
hjá meirihlutanum.
Með því að efla Alþýðuflokk
inn í komandi ko-ningum er
bezt að því stuðlað að Siálf-
stæðisflokkurinn fái heilbrigt
aðhald í stjórn börgarinnar.
Mikil k>átttaka í
utanlandsferðinni
GÍFURLEG aðsókn hefur verið
að utanlandsför Alþýðuflokksfé-
lags Reykjavíkur. Hafa nú um 70
manns látið skrá sig og er sýnt
að tak verður sérstaka flugvél á
leigu til fararinnar.
Þessi nýjung Alþýðúflokkfkflé'-'
lagsins hefur sem sagt mælzt
betur fyrir en nokkur þorði að
vona og er ekki ólíklegt að hún
verði gerð að föstum lið í starf
semi félagsins.
Lagt verður af stað 20. júní og
komið aftur 2. júlí. Verðið
er aðeins 7650 kr. og er hús-
næði og morgunmatur innifalið
í verðinu. Aðeins örfá sæti verða
tekin til viðbótar og eru því þeir,
sem enn hafa hug á að taka þátt
í þessari glæ ilegu utanferð, beðn
ir að hafa samband við skrifstofu
Alþýðuflokksins í Alþýðuhúsinu.
Síminn er 15020.