Alþýðublaðið - 08.05.1966, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 08.05.1966, Qupperneq 3
Leiðin aö hallalausum rekstri BÖR Rekstur Bæjarútgerðar Reykjavíkur hefur nokkuð bor ið á góma undanfarið í sam bandi við sölu á gömlum skip um útgerðarinnar. Hafa þær raddir heyrzt í þeim umræðum að hallinn á Bæjarútgerðinni væri nú orðinn svo mikill, að réttast væri að leggja útgerð ina niður. Alþýðuflokkurinn hefur ákveðið lagzt gegn því, að útgerðin yrði lögð niður af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi telur flokkurinn, að Bæjarút gerðin eigi miklu hlutverki að gegna í atvinnulífi höfuðborg arinnar. í öðru lagi er það á- lit flokksins að bæta megi veru lega afkomu útgerðarinnar, ef farið verður eftir þeim tillög um, sem Alþýðuflokkurinn hef ur borið fram varðandi fram tíðarrekstur Bæjarútgerðar- innar. Vil ég nú fara nokkt um orðum um bæði þessi atriði: 1. Það er óumdeilanlegt, að Bæjarútgerð Reykjavíkur hef ur verið mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf höfuðstaðarins. Bæj arútgerðin hefur verið stærsta togaraútgerð borgarinnar. Tog arar útgerðarinnar voru orðnir 8 talsins en auk þess hefur fyrirtækið rekið umfangs- mikla fiskvinnslu og fiskverk un. Bæjartogararnir hafa haft mikla þýðingu fyrir hráefnisöfl un til frystihúsa og fiskvinnslu stöðva Reykjavíkur. Og fiskað- gerðarhús útgerðarinnar hafa skapað gífurlega atvinnu fyrir borgarbúa á undanförnum ár um. Eru það ekki hvað sízt hús mæður og unglingar, er fengið hafa vinnu í fiskvinnslustöðv um Bæjarútgerðarinnar. Er aug ljóst, að Reykjavík má ekki missa þann þátt úr atvinnulífi sínu sem rekstur Bæjarútgerð arinnar er. 2. En er ekki unnt að bæta afkomu Bæjarútgerðarinnar? Þessi spuning hefði eins getað hljóðað á þessa leið: Er ekki unnt að bæta afkomu togar anna yfirleitt? Sannleikurinn er nefnilega sá, að vandamálið í sambandi við rekstur bæjartog aranna er aðeins liður í alls lierjar vanda togaraútgerðar landsmanna í dag. Togarar okk ar eiga við hallarekstur að stríða vegna aflaleysis, sem að veruiegu leyti má rekja til þess að þeir hafa misst mörg af sínum beztu veiðisvæðum. En auk þess eru togararnir orðnir gamlir og úreltir og fullnægja ekki kröfum tímans. Það verður að skila togurun- um aftur veiðisvæðum sínum það verður að kaupa ný og full komin skipf skuttogara, sem reynzt hafa vel erlendis. Verði þetta gert mun afkoma togar anna batna og þar með rekst ur Bæjarútgerðarinnar. Ég hef í útgerðarráði Bæjarútgerðar Reykjavíkur flutt tillögu um að nú þegar verði hafinn undir búningur að því ,að Bæjarút gerðin kaupi skuttogara. Hefi ég einnig flutt tillögu um, að útgerðin leitaði eftir samvinnu við ríkið um slík kaup ef á stæða þætti til. Það er ljóst, að ekki má dragast lengur, að ís lendingar eignist fullkomna skuttogara. Auk þess hefi ég einnig lagt til að Bæjarútgerð Reykjavíkur kaupi fullkomna fiskibáta og geri þá út í því skyni að gera rekstur útgerð arinnar arðvænlegri en nú er. Bæjarútgerðin hefur nú selt tvo af hinum gömlu togurum sínum. Alþýðuflokkurinn er ekki á móti því að gömul og úr elt skip séu seld, ef samfara því er unnið að kaupum á nýj um skipum. Að mínu áliti á Bæja'rútgerð Reykjavíhlur að hafa forystu um útgerð nýtízku fiskiskipa. íslendingar hafa hin síðustu ár dregizt verulega aft ur úr í togaraútgerð. Bæjarút gerð Reykjavíkur gæti með að stoð ríkisvaldsins tekið foryst una í því að bæta hér úr. Um leið myndi útgerðin fara inn á þá braut, sem liggur að halla lausum rekstri í mjög náinni framtíð. Björgvin Guðmundsson: I SKUTTOGARAR OG NÝTlZKU BÁTAR 4,11llllllllllllllMMIIIIIIIIIUIIII»IIIIIIIII>UIIIHMItlUIIII»rl^ M ! U I N ! ! I I Ð I H í A i ! B I | Glæsilegir j vinningar | = i Dregið 20. júní j og \23.desember\ ^«■1111111111111111111 ■’ - 'lllilllllllllllllllllMU »lllll>}'*^ HÆiPPDRŒTTI HASKOLA ISLANDS Á þriðjudag verður dregið í 5. flokki. — 2,100 vinningar að fjárhæð 5,800,000 krónur. Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja. Happdrættí Hásk&la Íslands p. Hokkur. 2 á 500.000 kr. . 2 - 100.000 — .. 52 - 10.000 — . 280 - 5.000 — . 1.760 - 1.500 — . Aukavinningar: 4 á 10.000 kr. . 2.100 1.000 000 kr. 200.000 — 520.000 — 1.400.000 — 2.640.000 — 40 000 kr. í. 800 000 kr. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. maí 1966 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.