Alþýðublaðið - 08.05.1966, Qupperneq 5
□CB
ALLTAF FJðLGAR VOLKSWAGEN
Volkswagen 1300 er fyrirliggfandi
S: i. /•'a
';-y-
Volkswagen 1500 er fyrirliggjandi
Volksw'agen 1500 —
Cíerið samanl)Uið á frágangi, öllum búnaði og gæðum Yolkswagcn
og annarra l)íla. frá Veslur-Evrópu,
Komið, skoðið og reynsluakið
Varahlufaþjdnusta Volkswagen er landskunn
Volkswagen 1300 —
Volkswagen 1600 TL Fastback
Ingólfs-Café
Gömlu dansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit Garðars leikur.
Söngvari: Bjöm Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala h-efst kl. 8. — Sími 12826.
INGOLFS-CAFE
Bingó í Jag kl. 3
Aðalvinningur eftir vali.
11 umferðir spilaðar. — Borðpantanir í
sími 12826.
BETRI BORG
Framhald úr opnu.
Sunnar tekur svo Grímsstaða-
holtið við. Þar ægir ýmsu saman,
er óhætt að segja. Þar er að finna
áratuga gömul hús við hliðina á
nýreistum sambýlishúsum. Líður
líklega talsverður timi þar til að
þarna verður heilsteypt mynd úr.
Eitt stórt fjölbýlishús er við
Fálkagötu. Hefur það í munni al-
mennings hlotið nafnið „leikara-
blokkin,” því þar mun búa all-
margt leikara og listamanna. —
Sums staðar hafa hús verið byggð
saman af lítilli smekkvísi að því
er virðist og á það til dæmis við
um hornið á Fálkagötu og Dun-
haga.
Skammt þarna norðan við er
það sem réttilega má kalla mið-
depil hins nýja vesturbæjar. Þar
er hringtorg, líklega það eina í
bænum, sem ekki er verulegur
trafali í umferðinni, einfaldlega
vegna þess að á því mæðir tiltölu-
lega lítið. Við þetta hringtorg eða
í næstu grennd við það hefur
hver stórbyggingin á fætur ann-
arri risið undanfarin ár.
Fyrst skal telja þá frægu
Bændahöll, með Hótel Sögu og
Súlnasal, þangað flykkist fólk
hundruðum saman um helgar til
að lyfta sér upp í huggulegu um-
hverfi. Þar er og Astrabar og grill
og er útsýni óvíða fegurra en af
efstu hæð þessarar stórbygging-
ar, þaðan sér vítt um alla borg
og langt véstur yfir Seltjarnar-1
nesið. Þá er Háskólabíó, stærsta
samkomuhús landsins, og fer þar
fram iðnleg menningariðkan. —
Melaskólinn er vestan við torgið,
Hagaskólinn, mjög glæsileg bygg-
ing skammt frá og að lokum
Raunvísindastofnun háskólans,
sem nýlega er risin skammt frá
torginu. Ekki má gleyma Nes-
kirkju, umdeildri byggingu á sín-
um tíma, sem sómir sér vel þarna
innan um stórhýsin.
Þarna skammt frá er svo í-
þróttavöllurinn gamli, sem enn er
að vísu í fullu gildi og þar margir
kappleikir á hverju sumri. Hann
hefur það sér til ágætis að þar er
yfirbyggð áhorfendastúka, en það
er meira en nýi völlurinn í Laug-
ardalnum enn getur státað af.
Vestan við völlinn standa svo nokk
ur myndarleg fjölbýlishús í röð
við Birkimelinn.
Þar með létum við lokið hring-
ferð okkar um hverfið, sem við
leyfðum okkur að kalla vestur-
bæinn nýja.
Benedikt Gröndal
UM HELGINA
Eitt i dag - og !
annab á morgun
ÞAÐ ER GÖMUL SAGA, að stjórnmálamenn segi eitt í dag og
annað á morgun.
Framsóknarmenn fárast yfir verðbólgu þessa daga og reyna sem
nicst að draga hana inn í bæjarstjórnarkosningarnar. Þetta rifjar
upp minningar frá þeim dögum, er þeir sátyr
í ríkisstjórn og litu öðrum augum á síik
vandamál. -
Árið 1958 var mikið afla- og framleiðslu-
ár, fjárfesting var ör og atvinna meiri ei>
nóg. Allt lék í lyndi — nema hvað verðbólgán
magnaðist viku eftir viku. Stjórnarandstæð*
ingar réðust miskunnai-laust á ríkisstjórnina
fyrir að ráða ekki við verðlagið.
Eysteinn Jónsson var fjármálaráðhei’ra
þetta ár. Hann minnti á það í framsöguræðu
fyrir fjárlagafrumvarpi, að allt frá 1942
hefði verið í landinu „varanlegt verðbólgu-
ástand.” Þá höfðu framsóknarmenn setið í
ríkisstjórn í áratug.
Eysteinn svaraði stjórnarandstöðunni
hressilega eins og hans var vandi. — Hanri
sagði: „Augljóst mál er, að 4>ótt þeir (stjórnarandstæðingar) hefðu
átt málum að s’upa, hefðu aldrei getað orðið minni verðhækkanir
.... Raunar dottur víst engum með óbrjálaða dómgreind í hug,-
að þeir hafi búið yfir nokkrum heppilegri úrræðum eða haft nokkra
minnstu möguleika til þess að hafa sterkari hemil á þessum málurti
en raun hefur á orðið.“
Þetta sagði Eysteinn þá. En skyldu núverandi ráðherrar ekkl
eins geta sagt þetta um stjórnarandstæðinginn Eystein Jónsson?
Ilannibal Valdimarsson var ráðherra 1958 og fór meðal annarsr
með verðlagsmál, sem illa gekk að ráða við. Hann skrifaði eftirfár-
andi í Vinnuna þetta sumar:
„Víst hefði verið æskilegt að geta haldið kyrru fyrir í verðlags-
og kaupgjaldsmálum þjóðarinnar. — En til þess að það takist, þarf
margur að læra sína lexíu betur.” I
Nú er Hannibal í stjórnarandstöðu og virðist fyrir löngu hafá
gleymt lexíunni, sem hann lærði í ráðherrastól.
Hannibal sagði í sömu grein i Vinnunni: 1
, Það er bezt, að þeir einir kasti nú stéinum, sem alsaklausiF
eru af því að hafa krafizt meira af þjóðfélaginu en þeir áður höfðu.
— Og þá verða þeir fáir, sem grjótinu kasta,”
Þannig mætti lengi telja ummæli íslenzkra stjórnmálamanna —v
eitt í dag, anna.ð á morgun.
Það versta við framkomu stjórnarandstæðinga í dýrtíðarmálinu
er þó csamræmi og óheilindi. Þeir brenna kertið frá báðum endum.t
Annars vegar ráðast þeir á stjórnina fyrir hverja hækkun og..
gagiirýna hana íyrir að hafa ekki hemil á verðhækkunum.
Ilins vegar gera þessir sömu menn endalausar kröfur, sem þeir^
ætla, að séu vinsæ’ar hjá landsmönnum, en mundu auka vcrðbólguna,,
eí þær væru framkvæmdar. Þannig er um kröfm’nar um meiri út-
lán, afnám frystingar sparifjár, hærra verð til bóndans, lægri vexti,
hærri álagningu fyrir verzlunina, meiri framkvæmdír, meiri bygg-t
ingar, meiri ríkisutgjöld.
Þeir hrópa niður með verðbólguna, en allar tiilögur þeirra miðá
að rif.iri verðbólgu
Um marga hluti er þetta hverfi
betúr sett en þau hverfi, sem við
áður höfum birt myndir af og
nokkur orð um. Það hefur byggzt
á mismunandi timum og ber þess
ljósan vott, en í heild er það
snyrtilegt og vinalegt þótt finna
rnegi ýmislegt, sem betur mætti
fara eins og víðast hvar annars
staðar í okkar ágætu borg.
LÍNDARBÆR
Leikféiag Hveragerffis sýnir hiff heimsfræga og um-
ðeilda íeikrit
Óvænt heimsókn
eftir J B. Priestley í Lindarbæ mánudag 9. mai
kl. 9 e.h.
Leikstjóri: Gísli Halldórsson.
Aðgóngumiðasala í Lindarbæ á sunnudag og mánudag
frá kl. 2 e. h. báða dagana.
• Leikfélag Hveragerðis
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. maí 1966 §