Alþýðublaðið - 08.05.1966, Side 8

Alþýðublaðið - 08.05.1966, Side 8
Grásleppukarlarnir, sem róa frá Ægisíðunni eru vinsælir meðal borgarbúa, ]iví flestir kunna að meta að fá hjá þeim sprikl- andi rauðmaga 1 soðið. Þarna sígur grásleppa á grindum, en það þykir mörgum herramannsmatur. Aðstaffa fynr smábátaútgerff er slæm í Reykjavík og hefur heldur litlum skilningi mætt hjá yfirvöldum. Þaff fer þó mjög vaxandi að borgarbuar eigi annaff hvort skemmtibáta eða litlar trillur til aff xóa á í tómstundum.. Er því brýnt orðið að að- staða fyrir þessa starfsemi verði bætt frá því sem nú er. Það er stutt hjá þeim niður í vörina, sem búa við Sörlaskjólið. Bátarnir eru hókstaflega við bæjardyrnar hjá þeim. Þarna fram- undan er fjaran óspillt af mannavöldum og ber að kappaosta að sem víðast á Reykjavíkursvæðinu fái náttúran að halda sér ó- skemmd. Fiskverkunarstöð Bæjarútgerðar Reykjavíkur stendur við Grandaveg. Útgerffin er eitt stærsta fyrirtækið í eigu borgarinn- ar. Ráffandi msirinluti í borgarstjórn hefur ekki ljáð máls á því að útgerðin fái aff kaupa ný fiskiskip, og á síðasta fundi borgar- stjórnar sagði emn af borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins að það væri af og frá að leyfa útgerðinni að kaupa fiskibáta til að útvega Reykvíkingum fisk í soðiff. Kæmi slíkt hreint ekk itil mála. Víða þar mætti að skaðlausu snyrta betur til sérstaklega í kring um iðnaðarhúsin. Kaplaskjólsvegurinn var iengi frægur að endemum, því í rign- ingum varð hann jafnan eitt alls herjar svað, sem ekki var fært nema fuglinum fljúgandi og Vest- urbæ—Austurbæ hraðferð. Nú hefur þessi mikla umferðargata loksins verið malbikuð og var það vomim seinna. Gangstéttir fyrirfinnast þó engar, en það er varia hægt að krefjast þess að hvort tveggja sé gert, eða hvað? Skjólin taka við þar sem Kaplaskjólsvegi sleppir. Þetta hverfi, sern sjálfsagt er rúmlega tuttugu ára gamalt hefur enn ekki notið góðs af malbikunar eða gangstéttaframkvæmdum og una íbúarnir því illa, sem von er, og þykjast að nokkru vera olnboga- börn borgarstjóra, en hann mun þó hafa lofað bót og betrun og vonast Skjólabúar eftir að þurfa ekki að bíða mörg ár í viðbót, eftir þessum sjálfsögðu og nauð- synlegu framkvæmdum. Að þetta hverfi skuli svo lengi liafa orðið út undan sýnir mæta vel það handa hóf og skipulagsleysi, sem um langt árabil hefur ríkt í fram- kvæmdamálum Reykjavíkurborg- ar. Þeir sem búa við Sörlaskjól og Faxaskjól og Ægissíðu eru öfunds verðir á margan hátt. Sjórinn er ekki nema steinsnar frá stofu- glugganum þeirra, á góðviðris- kvöldum hafa þeir fagurt útsýni út yfir Suðurnes og þarna er fjaran jafnframt næstum óspillt og verður vonandi svo áfram. — Nokkrir skúrar og kofagarmar eru þarna að visu til óprýði, en þeirra lífdagar verða vonandi ekki langir. Svo ókum við upp Hofsvallagöt- una, á hægri hönd er þar kóka- kóla verksmiðjan, snoturt hús að vísu, en enn eitt dæmi um skipu- lagsleysi, að slíka verksmiðju skuli vera að finna í miðju íbúða- hverfi. Andspænis kókakóla verk- smiðjunni, er eitt glæsilegasta ein-, býlishúsahverfi borgarinnar, lítið að vísu, en húsin þarna þó á- reiðanlega með þeim dýrari í allri borginni, enda hvert öðru glæsi- legra. Ýmsum finnst þó sem byggð in sé þarna fullþétt, og vafalaust hefur það sjónarmið ráðið nokkru að fá sem flestar lóðir úr sem minnstum skika lands. Þar sem þessi hiís standa nú voru fyrir nokkrum árum vöruskemmur Eim skipafélags íslands. Skammt þarna frá stendur sundlaug Vesturbæj- ar myndarlegt mannvirki, en þó ekki nærri fullbyggt. Undarleg árátta hjá borgaryfirvöldum, að ljúka ekki við íþróttamannvirki, samanber íþróttavöllinn í Laugar dal. en áhorfendasvæði þar hefur verið hálíkarað allar götur síðan völlurinn var tekinn í notkun. — Vafalaust vei-ður eitthvað skilið eftir af nýju útisundlauginni í Laugardal, ef borgaryfirvöld halda venju sinni. Fyrir nokkrum árum var þarna eitt slærsta braggahverfi borgar- innar, en nýbyggingar hafa þrengt að því á alla vegu. Eru nú aðeins tiltölulega fáir herskálar eftir, cn g 8. maí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐiÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.