Alþýðublaðið - 08.05.1966, Page 9

Alþýðublaðið - 08.05.1966, Page 9
BETRIBORG Leifarnar af Camp Knox eru ennþá til staðar. Enn er þarna búið í nokkrum gömlmn herskálum, þótt margir hafi ver ið jafnaðir viff jörffu. Þaff þarf ekki stórt átak til að Iosna við síðustu braggana, þeir eru ekki svo margir, en átak þarf samt. Á Grímsstaffaholtinu blandast saman gamalt og nýtt. Holtið er aff byggjast upp og smám saman hverfa gömul húsin en ný taka við. Þetta myndarlega fjölbýlishús er stundum kallaff „leikarablokkin" enda munu óvenjulega margir listamenn eiga þar heima. í forgrunni myndarinnar er kartöflugarður, aff því viff bezt fáum séff. Áður voru matjurtagarðar algengis við hús í borginni, en slíkt er nú aff hverfa. í einu af nýlegum fjölbýlis húsum við Meistaravelli, því som fyrst var reist við þá götu, heimsóttum við unga hús móður, frú Aldfsi Benedikts dóttur. — Ilvað hafið þið búið hér lengi, Aldís? — Nú i apríl höfum við búið hér í þrjú ár. — Og kunnið vel við ykk ur?. — Já, það er þægilegt og skemmtilegt að búa hérna, enda eiginlega inni i gömlu hverfi, svo að hér eru mjög góðar strætisvagnaferðir t.d. og stutt með börnin á leik völiinn, sem er hér rétt hjá. — Þið ei-gið tvö ung börn? — Já dóttir ókkar, sem er tveggja ára, fer alltaf á leik völlinn. þegar vel viðrar, en við erum svo heppin að hafa rétt hjá okkur gæzluleikvöll, þar sem börnin geta verið frá 9—12 og 1—5. Þar eru þau úti allan daginn, þar sem ekki er neitt hús fyrir þau, ef slæmt er veður, þess vegna er það auðvitað nokku^ undir veðri komið, hvort þau geta verið á leikvellinum. T.d á vet urna er ekki hægt að hafa lít il börn þar. — En sonurinn, hann er enn þá of lítill til að vera á gæzlu vellinum?. — Já hann er nýlega eins árs. — Mundirðu vlija koma börnunum á dagheimili, ef hægt væri? — Ég býst við því, annars hef ég ekkert hugsað um það, þar sem ég veit að það yrði svo langur biðtími, þar til þau kæmust að, þar sem að sjálf sögðu börn einstæðra mæðra og börn námsfólks ganga fyrir. En mér finnst æskilegt, að komið yrði upp fleiri barna heimilum. Margar húsmæður vilja gjarnan vinna úti hluta úr degi og auka með því heim ilispeningana, en það er mjög dýrt að kaupa nauðsynjar til heimilis núna og á mörgum heimilum nauðsynlegt að bæði hjónin vinni úti, sérstaklega ungt fólk, sem ef til vUl stend ur í húsbyggingu. En il þess að húsmæður geti stundað vinnu utan heimilis hluta úr degi, er nauðsynlegt að hægt sé að koma börnunum fyrir í dagheimili. — Hvernig er með verzlan- ir hérna í nánd? — Eins og ég sagði áðan er þetta að vissu leyti gamalt hverfi, þó að mörg húsin séu ný, og verzlanir hérna í kring hafa verið hér í mörg ár. Helzti ókosturinn við þær finnst mér. að þær eru svo dreifðar, fisk búð t.d. langa leið frá mjólkur búð. Verzlanir þyrftu að vera flestar á sama stað eins og yfirleitt er gert ráð fyrir i nýju hverfunum. þó e.t.v. fleiri en flesta grunar, því fæstir sjást fyrr en að er komið. Þeir þurfa að hverfa sem fyrst, og enn virðist búið í all- mörgum þeirra. Skammt þarna frá er og barna- heimili, og eftir því sem við kom- umst næst þá eru mörg hverfi verr sett með barnaheimili og leikvelli en nýi vesturbærinn, þó langt sé í frá að þessi mál séu í fullkomnu lagi þar. Á gatnamót Hofsvallagötu og Hringbrautar hafa nýlega verið sett umferðarljós, og þótti flestum tími til kominn. Setja þarf upp ljós á fjölmörgum gatnamótum í borginni, og hefur undarlegt sinnu leysi ríkt um það eins og önnur umferðarmál mörg undanfarin ár. Næst fórum við suður Furu- mel, þar eru á báðar hcndur vin- gjarnlegar íbúðagötur, melarnir, Víðimelur, Reynimelur, Grenimel- ur og Hagamelur. Malbikunar- náðin náði hingað fyrir nokkrum árum og hér telst það ennfremur til tíðinda, að gangstéttir hafa ver- ið lagðar. Við húsin eru víðast hvar snyrtilegir garðar, og þar sem hverfið er gamalt og gróiff er líkléga óhætt að segja, að þetta sé einn vinalegasti hluti vestur- bæjarins nýja. Á Furumel er betra að gæta sín, því liann er ekki aðalbraut eins og Hofsvallagat- an svolítið vestar. Verða þarna enda margir árekstrar og horn eru hættuleg. Hér suður af taka svo Hagarnir við. Þar eru nýrri hús, mjög snot- ur og garðar vel hirtir. Hagarnir eru að nokkru þannig skipulagð- ir að þar er lítið um aðra um- ferð en þangað á nauðs.vnleg er- indi. Þarna eru hús af næstum öllum stærðum og gerðum. Mörg fjölbýlishús eru þarna og frá- gangur við sum til mestu fyrir- myndar. Framh. á 5. bls. ALÞYÐUBLAÐIÐ - 8. maí 1966 9

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.