Alþýðublaðið - 08.05.1966, Side 15
FELAG....
iramhald af 2. sWn.
legum samskiptum milli Hollend-
inga og íslendinga.”
Samþykkt var að undirbúnings
nefndin skyldi starfa sem stjórn
fyrsta árið, en hana skipa:
Anton Ringelberg formaður,
frú Tineke Kjartansson,
John Sewell,
Bjarni Júlíusson —
Ingi K. Jóhannsson.
Guðjón Sfyrkársson,
Hafnarstræti 22. sími 18354,
hæstaréttarlögmaönr.
Málaflwtningsskrifstofa.
Áugfýsfi í álþýðubiaðinu
Áugiýsíð í álþýðubfaiinu
í fundarlok kvaddi Árni Kristj-
ánsson ræðismaður sér hljóðs, árn-
aði hinu nýstofnaða félagi heilla
og las upp bréf frá sendiráði Hol-
lands, þar sem tilkynnt var, — að
Anton Ringelberg, hinn nýkjörni
formaður félagsins liafi verið
sæmdur riddarakrossi Oranje-
Nassau orðunnar. Var Anton
hylltur af fundarmönnum.
Loks voru sýndar tvær litkvik-
myndir frá Hollandi, og félagið
sendi Júlíönu Hollandsdrottningu
heillaskeyti í tilefni afmælisdags
hennar, 30. apríl.
Stjórn félagsins vill láta þess
getið, að allir þeir, sem áhuga
hai'a fyrir hollenzk-íslenzku sam-
starfi, eru velkomnir í féiagið, og
eru þeir beðnir að hafa samband
við Anton Ringelberg í blómaverzl
uninni Rósinni, Vesturveri, sími
23523, eða Inga K. Jóhannesson,
Njörvasundi 33, sími heima 32329,
í skrifstofu: 21414.
Til sölu eru:
v/s HARALDUR SF. 70,
stærð 35 rúmlestir, með 235 ha. Rolls-Royce-vél.
v/s STRAUMUR GK. 302.
stærð 20 rúmlestir, með 120 ha. Albin-dieselvél.
v/s SÆBORG VE. 344,
stærð 14 rúmlestir, með 86 ha. Ford-dieselvél.
v/s HAFDÍS SI. 100,
stærð 10 rúmlestir, með 55 ha. Bukh-dieselvél.
v/s AUSTRI RE 150,
stærð 10 rúmlestir, með 52 ha. Petter-dieslvél.
v/s FREYJA SU. 311,
stærð P rúmlestir, með 55 ha. Bukh-dieselvél.
v/s SÆRÚN KO. 9,
stærð 6 rúmlestir, með 54 ha. Buda-dieselvél.
Skip þessi verða seld standsett og tilbúin til veiða.
Nánari upplýsingar gefa Guðni Jóhannsson í síma
17662 milli kl. 19 og 20, og Axel Kristjánsson í síma
24310 á skrifstofutíma.
FISKVEIÐASJÓÐUR ÍSLANDS.
Kaffikvöld
á Akranesi
Stuðningsmenn A-listans
á Akranesi efna til kaffi-
kvölds í Röst þriðjudaginn
10. maí kl. 8,30. Ávörp-
flytja: Eggert G. Þor-
steinsson, sjávarútvegsmála
ráðherra og Benedikt Grön
dal, alþingismaður. Kvik-
myndasýning. Stuðnings-
menn A-listans eru hvattir
til að mæta vel og stundvís
lega.
Ghanamenn fá
ekki að fara
frá A-Berlín
AUSTUR-BERLÍN, 5. maí (NTB-
Reuter). — Austur-þýzk yfirvöld
játuðu í dag að verzlunarfulltrú
um frá Ghana, fjölskyldum þeirra
og 350 stúdentum frá Ghana hefði
verið meinað að fara úr landi,
en sögðu að stjórnin í Ghana gæti
sjálfri.sér um kennt þar eð hún
hefði víjsað Austur-Þjóðverjum
úr landi eftir byltinguna gegn
Nkrumah forseta í febrúar og
yæri hér um hefndarráðstafanir að
ræða.
Yfh’maður verzlunarskrifstofu
Ghana, James Mensa-Bonsu, segir
að austur-þýzk yfirvöld hafi í
hyggju að handtaka einn undir-
mann hans og tvo stúdenta frá
Ghana,< sem grunaðir eru um að
hafa hjálpað Au-Þjóðverjum að
flýja til V-Þýzkalands. Hann segir,
að síðan Ghanastjórn handtók
austur-þýzkan ráðunaut Nkrumahs
hafi Austur-Þjóðverjar hótað að
handtaka verzlunarfulltrúann og
reynt að skipta á honum og ráðu-
naut Nkrumahs.
Guevara
í Perú
Róm, 6. mal. (ntb-afp).
Fyrrverandi iSnaðarmála-
ráðherra Kúhu, Ernesto
„Che” Guevara, sem var
hægri hönd Fidel Castros
forsætisráðherra, sagði í við-
tali, sem birtist í vikublaðinu
„Le Ore” í dag, að innan 5
ára yrðu kenningar Castros
alls ráðandi í Rómönsku
Ameríku. Það var Paalo Se-
nise blaðamaður sem ræddi
víð Guevara er hann var í
felum lengst uppi i Andes-
fjöllum í Perú.
Guevara sagði, að undan-
farna mánuði hefði hann
ferðast milli Kólumbíu, Bóli-
víu og Equadors. — Hann
kvaðst þekkja skæruliða sína
og vita að þeir mundu sigra
að lokum. Örlög Suður-Ame-
MVMMMtMMtMHMMIMMMHHVMMMWMMMMMMMmMt
ATHUGIÐ!
Skrifstofur Aljtýðu-
flokksins í Alþýðuhúsinu
verða opnar fram yfir kosn
ingar frá kl. 9—22 alla virka
daga, sunnudaga frá kl. 14
—18. Símar: 15020-16724-
19570.
-fc Skrifstofan veitir uPP-
lýsingar um kjörskrá, aðstoð
við utankjörfundaratkvæða
greiðslu og annað varðandi
bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningarnar 22. maí nk
Þeir stuðningsmenn A1
þýðuflokksins, sem vilja
starfa fyrir hann á kjördegi
eða við undirbúning kosning
anna fram að þeim tima,
eru beðnir um að skrá sig
hið fyrsta. Jafnframt er tek
iö á móti framlögum í kosn
ingasjóð á aðalskrifstofunni.
-fc Utankjörfundarkosning
er hafin og er afar nauðsyn
legt að allt Alþýðuflokksfólk
hafi samband við skrifstof-
una og gefi henni upplýsing
ar mn það fólk, er verður
fjarverandi á kjördegi.
Utankjörfundarkosning
fer frain hjá bæjarfógetuin
sýslumönnum og hreppstjór
um. Þeir sem dvelja erlendis
á kjördegi geta kosið í sendi
ráðum íslands og hjá þeim
ræðismönnum, er tala ís-
lenzku. f Reykiavík fer ut
ankjörfundaratkvæða
greiðsla fram í Búnaðarfé-
lagshúsinu við Lækjargötu.
Þar er opið virka daga kl.
10—12, 14—18 og 20—22.
sunnudaga 14—18.
ÍWWWMWWWMMMWWWWMWWIWWWWWMWWIMWWI
ríku eru ráðin, sagði hann.
Guevara sagði, að herir S.-
Ameríkuríkja hefðu enn
ekki lært að berjast og að
þeir lærðu það ekki fyrr en
um seinan.
mm
Utkoma Sunnudagsblaðs-
ins fellur niður um þessa
lielgi af óviðráðanlegum or
sökum.
TrúlofuEiarhringar
Fljót afgreiðsla
Sendum gegn póstkröfu.
Guðm. Þorsteinsson
gullsmiður
Bankastræti 12.
Valdabarátta
í Peking?
HONGKONG, 5. maí (N’H^-
Reuter). — Kínverskir leiö-
togar berjast upp á líf ag danða
við flokksfjandsamleg ófl, segir
í frétt frá fréttastofnuninni Nýja
Kína í dag. Þessir menn eru I
slagtogi með erlendum fjendum
Kína undir forystu heimsvalda-
sinna, nýtízku endurskoðuuarsinna
og afturhaldsmanna í öllum lönd-
um, segir fréttastofan. i,
Fréttin er byggð á kaHa úf
forystugrein í aðalmálgagni kín
verska frelsishersins. Þar segir
að herferð sú, sem hafin hafi
verið, beri ný einkenni. Flokks-
fjandsamlegu öflin vejfi rauða
fánanum til að berjast gegn
rauða fánanum og berjist gegri
marxismanum og lenínismanum
og hugmyndum Mao Tse-tungs I
skjóli marxistíkra og leninstískra
kenningar og kenninga Mao Tse-
tungs. ,f,
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. maí 1966 15