Alþýðublaðið - 08.05.1966, Side 16

Alþýðublaðið - 08.05.1966, Side 16
Menning eða ómenning Tveir fingur, litli fingur ag baugfingur, á einum af skips- höfn Freyfaxa, brotnuðu í fyrstu för skipsins. Staddir á Sauðárkróki. Höfðu þeir verið að enda við Iosrni og voru að setja hlera á lestaropin. Þeir £váðu vera níðþungir. Oddsfrétt í Mogga. L Kosningarnar nálgast nú 6ð fluga og maður er farinn að kíkja í pólitíkina. í Mogganum 'las ég í gær þcssa setningu: „Því miður er það svo og VERÐUR ÆTÍÐ, að fólk á við 'inisjöfn kjör að búa ...” Þetta fiögðu þeir líka £ baráttunni í gamla daga, svo lítið hafa Hært, blessaðir pujitukavaler- nrnir. Einhver lummó karaktér ihringdi dyrabjöllunni í gær og ihallinn var sannfærður um að ’hann væri frá einhverjum trú- arflokki að selja smárit, svo að hann skellti hurðinni á nef- tð á honum. Seinna frétti kall inn að þetta hefði verið hverf- isstjórinn frá flokknum hans og þá var hann heldur spældur ;í framan .... LOKSINS fengum við það sem helzt þurfti við hér í höfuðborg- inni. í fyrri viku voru opnaðir 2 barir til viðbótar þeim 23, sem fyrir voru, og eru nú vínbarirnir orðnir 26, það er að segja, barir, sem opnir eru öllum almenningi örfáar klukkustundir á degi hverj- um. Auðvitað eru ekki taldir með barir í klúbbum eða í heimahús- um, sem ekki eru ófáir. Allar hafa þessar vínstúkur það sameiginlegt að vera fyrsta flokks. enda skilyrði af hálfu lieil brigðisyfirvalda að einhvers stað- ar i námunda við þær séu fullkom- in eldhús og kokkar með réttindi og háar hvitar húfur. Og svo er afstaða almennings í landinu til allrar dýrðarinnar. — Sumir telja að aldrei sé nóg til af börum, enda séu þeir til mik- ils menningarauka og ómissandi í siðuðu þjóðfélagi. Sem dæmi um hve mikils virði barirnir eru sum- um mönnum má nefna, að ekki -alls fyrir löngu birtist í einu viku- blaðanna hér mikil lofgrein um ný- byggt og glæsilegt hótel í Reykja- vik. Var þar mjög dáðst að fram- takssemi þeirra sem að fyrirtæk- inu standa, sem von er til og sitt hvað talið þeim og hótelinu til á- gætis, sem og var gert í öðrum blöðum, og hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum, en í fyrr- greindri blaðagrein þótti ekki taka að lýsa byggingunni að neinu, — ekki einu sinni minnst á stærð liennar eða kosti til að taka á móti gestum. Það eina sem lýst var í öllu húsinu var eitthvert megtugt barborð og skýrt frá með mikilli andagt, að það væri gert úr mar- mara, og þóttu slík undur taka öllu öðru fram í þessari glæsi- legu byggingu. Síðan eru liinir sem allt hafa á hornum sér i sambandi við bar- ina, og þar með náttúrlega allt það sem við kemur áfengi, nema templara. En það er svo undarlegt með góðtemplara, að heyri maður S þá minnzt, dettur manni ósjálf- rátt áfengi í hug, enda góðtempl- arareglan óhugsandi án áfengis- bölsins, sem er drifkraftur þeirr- ar starfsemi. Þetta fólk telur alla Sfengismenningu hreinustu ómenn ingu og vill láta loka öllum börum og þá færu nú margar dýrar inn- réttingar fyrir lítið. Hvað um það — er ekki tími til kominn að linni þessari ofsahrifn- ingu á áfengismenningunni á fvrsta flokks börunum. Mætti ekki líka vera til ofurlítið af áfengis- ómenníngu, og heldur ófínni öld- urhús n þau, sem sífellt er verið að keppast við að koma á fót. Það eru ekki allir sem kunna við að þamba brennivínið á blankskóm og með slifsið innanum tóman harðvið og marmara. En fyrir þá sem dá áfengis- timwsssm T&m •yf’fc ÍÍVÍÍXV’ /■' ,1VI etriS ómenningu er ekki í önnur liús að venda en áfengislausa skemmti- staði, með séneverinn í hitapokum undir buxnastrengnum, — eða íkemmta sér og vegfarendum á götunum nú eða þá að drekka heima hjá sér, en það er neyðar- úrræði eins og allir hljóta að vita . . . Áreiðanlega eiga okkur eftir að bætast nokkrir tugir bara á næstu árum og væri ekki ráð að hafa þó ekki væri nema nokkra þeirra annars flokks og kokklausa á balc við. — Mundu, að það varst þú sjálf, sein vildir ekki hafa hund- inn með . . .

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.