Alþýðublaðið - 20.05.1966, Side 5

Alþýðublaðið - 20.05.1966, Side 5
 ;. . .. . .■ ... HVERNIG haldið þið, að um- horfs væri í íslenzku þjóðfélagi í dag, ef áhrifa Alþýðuflokksins hefði aldrei gætt í þjóðmálum? — Alþýðuflokkurinn átti fyrir skömmu 50 ára afmæli. Við skul- um rétt sem snöggvast hugsa okkur, að Alþýðuflokkurinn hefði aldrei verið stofnaður og gera okkur mynd í. huganum af ís- lenzku þjóðfélagi án áhrifa Al- þýðuflokksins. Margt væri þá bðruvísi en nú er. Þá væru hér engar almannatryggingar og því meiri fátækt og minna öryggi, engir verkamannabústaðir, engin orlofslög og ekkert launajafnrétti karla og kvenna svo nokkuð sé nefnt. Ef Alþýðuflokkurinn hefði aldrei verið stofnaður og hefði ekki starfað að þjóðmálum í hálfa öld, væri ísland ekki eins mikið velferðarríki og það er í dag. Það er óumdeilanlegt og viðurkennt af ölium — einnig andstæðingum Alþýðuflokksins. En hvaða máli skiptir þetta við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík? Jú. Það skiptir máli vegna þess, að grundvallarstefna Alþýðuflolcksins er hin sama í bæjarmálum eins og í landsmál- um. Það eru í r'auninni sömu at- riði, er Alþýðuflokkurinn leggur áherzlu á í borgarstjórn Reykja- víkur eins og Alþingi, þ. e. sam- hjálp og félagshyggja. Ég vil nefna hér lítið dæmi, sem sýnir, að einnig við borgarstjórn- arkosningar metur íólk það mikla starf, er Alþýðuflokkuririn hefur unnið að velferðarmálum almenn- ings. Kona nokkur hér í borg, ung ekkja með 2 börn, sem ný- lega hafði misst mann sinn, fékk tíðar heimsóknir frá kosninga- smölum flokkanna nú fyrir kosn- ingarnar. Fyrst kom til hennar fulltrúi frá Framsóknarflokknum og lofaði öllu fögru. Síðan kom maður frá Sjálfstæðisflokknum, bað um stuðning við Geir borgar- stjóra og sparaði heldur ekki fög- ur fyrirheit. En konan sem aldrei hafði kosið Sjálfstæðisflokkinn vísaði báðum þessum smölum á bug og sagði, að nú fyrst kynni hún að meta tryggingarnar, þegar hún þyrfti á þeim að halda, eftir að haía misst fyrirvinnu sína. — Hún sagðist því mundu kjósa Al- þýðuflokkinn, þami flokk, er liefði komið tryggingunum á. Þetta er táknrænt dæmi. Og það munu á- reiðanlega fleiri hugsa eins og þessi ekkja. Að sjálfsögðu hefur Alþýðu- flokkurinn notið stuðnings annarra flokka við það að knýja fram hin ýmsu umbótamál — þar á meðal Rasða Björgvins Guðmundssonar, sem skipar þriðja sætið á A-listanum, í útvarpsumræðunum Sjálfstæðisflokksins, sem nú fer með stjórn Reykjavíkurborgar. En Sjálfstæðisflokkurinn er í eðli sínu einstaklingshyggjuflokk- ur, sem er í rauninni andvígur því, að þjóðfélagið aðstoði þá, sem standa höllum fæti í lífsbarátt- unni. Á löggjafarsviðinu hefur Sjálf- stæðisflokkurinn látið undan fyr- ir baráttu Alþýðuflokksins í þessu efni og fallizt á tryggingar og margvíslegar aðrar félagslegar ráðstafanir. Hið sama hefur gerzt í borgarmálum Reykjavíkur. í borgarstjórn liefur Sjálfstæðis- flokkurinn einnig fallizt á mörg mál Alþýðuflokksins. En það hef- ur kostað mikla baráttu. Þegar Alþýðuflokkurinn flutti sínar fyrstu tillögur í borgarstjórn Reykjavíkur um að bærinn byggði ibúðir iil þess að leysa húsnæðis- vandamál hinna lægst launuðu í bænum, mátti Sjálfstæðisflokkur- inn ekki heyra það nefnt. Það er ekki í verkahring bæjarins að byggja íbúðir, sögðu bæjarfulltrú- ar Sjálfstæðisflokksins. En Al- þýðuflokkurinn hélt áfram bar- áttu sinni í þessu máli og Sjálf- stæðisflokkurinn lét undan. Þegar Alþýðuílokkurinn flutti fyrst tillögur í bæjarstjórn Reykjavíkur um. að bærinn keypti togara og byrjaði bæjarútgerð, mátti Sjálfstæðisflokkurinn ekki heyra það nefnt heldur. Það er ekki verkefni bæjarins að vasast í atvinnurekstri, sögðu málsvar- ar Sjálfstæðisflokksins. En Al- þýðuflokkurinn barðist áfram fyr- ir þessu máli og Sjálfstæðis- flokkuxinn lét undan. Og þannig mætti lengi telja. Alþýðuflokkurinn fagnar því, að Sjálfstæðisflökkurinn skuli liafa breytt stefnu sinni nokkuð — og fallizt á mörg mál Alþýðuflokks- ins. Það er sú stefnubreyting, sem gert hefur Alþýðuflokknum kleift að starfa í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Ríkisstjórn Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis- í' flokksins hefur komið mörgum góðum. málum fram, en Sjálfstæð- ismönnum mun það áreiðanlega ljóst, að það er ekki síður nauð- synlegt að áhrifa Alþýðuflokksins gæti í boi’garstjói'n Reykjavíkur en í ríkisstjórn landsins. Margt hefur vel verið gert í 'Reykjavík síðustu árin. Fram- kvæmdir hafa verið rniklar, upp- bygging hröð. Og Reykjavík er í dag falleg box-g í örum vexti. Mik- ið af þeirri uppbyggingu, siem átt hefui'' sér stað í höfuðboi'girini, er aðeins þóttur í uppbyggingti þjóð- Framhald á 8. siðu: 20. maí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 t

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.