Alþýðublaðið - 20.05.1966, Síða 8
Ræða Björgvins
Barnaheimilum þarí að fjölga verulega í Reykjavík
í'ramhald af 5. fíðu
félagsins og á rætur sínar að
rekja til stjórnarstefnunnar, —
Sumt á þó rætur sínar að rekja
til betri stjórnar á borginni en
áður. En það er mikill misskiln-
ingur hjá meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn Reykja-
víkur, að allt sé orðið fullkomið
hér í borg og ekkert þurfi úrbóta
við. Vissulega eru mörg vanda-
mál óleyst, enda þótt margt hafi
þokazt vel á veg. Eftir að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafði fallizt á
það sjónarmið Alþýðuflokksins, að
bærinn ætti að standa fyrir í-
búðabyggingum hófust miklar
byggingaframkvæmdir á vegum
borgarinnar, og þær hafa bætt
verulega úr húsnæðisleysinu í
borginni. En þó fer því fjarri, að
húsnæðisvandamálið hafi verið
leyst. Það er einkum unga fólkið,
sem nú á í húsnæðisvandræðum
í Reykjavík — og þá einkum ungt
fólk, sem er að byrja búskap.
Ung hjón, sem vilja fá litlar íbúð-
ir,. finna þær hvergi, þar eð nær
ekkert er byggt af slíkum íbúð-
um. Úr þessu þarf að bæta. Borg-
in verður að byggja íbúðir fyrir
unga fólkið.
Annað vandamál er einnig til-
finnanlegt, en það snýr einkurn að
húsmæðrunum. Það er hinn mikli
skortur á dagheimilum og leik-
skólum. Enda þótt þessum stofn-
unum hafi fjölgað, er það enn svo,
að heil ný íbúðahverfi finnast í
borrginni, þar sem ekki er eitt
einasta dagheimili eða leikskóli.
A þessu verður að ráða bót. Leik-
skólarnir eiga að vera það margir,
að þeir geti tekið börn frá barn-
mörgum heimilum — og þannig
létt undir með húsmæðrum eins
og verið hefur. Þá þarf einnig að
fjölga leikvöllum í borginni og
gera þarf sérstök leiksvæði fyrir
stálpuð börn. Það virðist alveg
hafa gleymzt að gera ráð fyrir
sparkvöllum og öðrum athafna-
svæðum fyrir stálpaða drengi. Það
getur ekki verið mjög dýrt að
bæta úr því. En auk þess þarf
borgarstjómin að stuðla að því,
að börn Reykvíkinga eigi kost á
sumardvalarheimilum. Hér hefi
ég í huga börn á aldrinum 6—
14 ára. Reykjavíkurdeild Rauða
kross íslands, Vorboðinn og Sjó-
mannadagsráð hafa rekið sumar-
dvalarheimili fyrir yngstu börnin,
en Þjóðkirkjan og KFUM hafa
starfrækt sumarbúðir fyrir eldri
börn. Starfsemi þessi hefur verið
með myndarbrag og Reykjavíkur
borg hefur veitt henni fjárstuðn
ing. En þessi starfsemi er þó
hvergi nærri nóg. Þrátt fyrir þessa
starfsemi verða mörg börn ut und-
an og fá enga sumardvöl vegna
þess, hve eftirspurnin er mikil.
Úr þessu verður Reykjavíkurborg
að bæta. Veita þarf þeim samtök-
um, er starfrækja sumarbúðir og
sumardvalarheimili aukinn stuðn-
ing, en einnig þarf borgin sjálf.
að- hefja starfsemi af þessu tagi.
Reykjavíkurborg gerði vel í þvi að
reisa nýtt sumardvalarheimili fyr-
ir börn á fögrum stað í nágrenni
borgarinnar. Þau sumardvalar-
heimili, sem nú eru starfrækt, eru
úr sér gengin, en samtökin, sem
reka þau hafa ekki fjárhagslegt
bolmagn til þess að reisa ný. —:
Reykjavíkurborg ætti því sjálf að
reisa slíkt heimili. Reykjavík hef-
ur vissulega efni á því að búa
betur að börnum sínum. Það hef-
ur verið gert átak í gatnagerð,
myndarlegir skólar hafa verið
reistir, en það vantar tilfinnan-
lega dagheimili, leikskóla og sum-
ardvalarheimili fyrir börnin. Eitt
vandamál enn, er snýr að börnum
Framhald á bls. 11.
/ /
MIKLAR HAFNARFRAMKVÆMDIR I OLAFSV K
MYNDIN til vinstri sýnir hinar
hinar miklu hafnarframkvæmdir
sem gerðar hafa verið í Ólafsvík
á síðustu þrem árum. í baksýn
sé's’t gamli hafnargarðurinn og inn
an við hann bryggja, en þessi
mannvirki voru næsta ófullkom
in, þótt þau hafi dugað Ólafsvík
vel. Nú hefur nýr garður verið
lilaðinn, til hægri á myndinni,
fyllt upp hið opna svæði og gerð
ný bryggja, sem bátar sjást liggja
við.
• Siðan þcsi viðbót kom og lok
aði höfninni, hefur verið trygg
viðlega fyrir bátana. Þykir sjó
mönnum það mikil viðbrigði að
þurfa ekki að vaka yfir bátum
sínum hversu lítið veður sem gef
ir.
Framkvæmdir þessar liafa kost
að um 20 milliónir króna. Hin
nýja bryggja mun fullgerð liaf'a
230 metra viðlegukant, en miklir
möguleikar eru á frekari aukningu
í höfninni. Miklar dvpkunarfram
kvæmdir hafa einnig verið genðar.
Nú er hægt að landa úr 8—9 bát
um samtimis, en áður var rúm fyr
ir 3 af stærrri gerð. Talið er að
möguleikar. séu til að gera í fram
tíðinni athafnanláss fyrir 50— 00
báta í höfninni.
Naésfú framkvæmdir verða áð
lengja gamla garðinn að norðain
verðu um eitt ker og verður þá
algerlega kyrrt inni í höfninþi.
•í Óláfsvik voru gerðir út 10 bát
ar á vetrarvertíð og öfluðu þeir
9,500 lesta fiskjar. -
% t ; 8 • 20- W !96& — AlÞYÐþlBLAÐIÐ