Alþýðublaðið - 25.05.1966, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 25.05.1966, Blaðsíða 6
 Þeir, sem oft heimsækja kvik- myndahús muna sjálfsagt eftir myndinni The Magnificent Seven, sem sýnd var í Tónabíói fyrir 2 — 3 árum síðan. Þar voru sjö aðal- leikarar, m. a. Yul Brynner. Þrír þeirra voru svo til nýliðar í kvik- myndaheiminum, en eru nú allir orðnir heimsfrægir og stöðugt á uppleið. Þeir eru Steve McQueen, James Coburn og Robert Vaughn. Steve hefur leikið í miklum fjölda kvikmynda, James er orðinn fræg- ur fyrir njósnamyndirnar Our Man Flint, og Robert er einnig í njósna- bransanum sem Napoleon Solo, The Man From U.N.C.L.E. Dirk Bogarde hefur leikið í kvik myndum nokkuð lengi og þótt á- gætur, en nú fyrst eru farin að sjást merki þess að hann sé á leiðinni á toppinn. Hann fékk t. d. ágæta dóma fyrir leik sinn í myndinni Þjónninn. Einnig þótti hann skemmtilegur sem skúrkur- inn í fyrstu kvikmyndinni um Modestj' Blasie, en Modesty er nokkurs konar kvenútgáfa af Ja- mes Bond. Margir áhorfendur hafa látið í ljósi þá skoðun að Lis Taylor og Richard Burton ættu að snúa sér að grínhlutverkum í nokkur ár. Myndir þær sem þau hafi leikið í tii þessa séu svo dramatiskar og þunglamalegar að menn séu farnir að fá leið á þeim. Þau hjón- in virðast þó ekki ætla að taka þessu ráði, því að næsta kvik- mynd þeirra verður: „Hver er hræddur við Virginiu Woolf.” Lee Marvin sem hlaut Óskarinn fyrir leik sinn í Cat Ballou er tölu vert kunnur hér á íslandi. Hann hefur leikið í mörgum kvikmynd- um sem sýndar hafa verið hér, og ! þeir sem eiga sjónvarp hafa getað séð hann vikulega 1 lögregluþætt- j inum M-Squad. í Cat Ballou lék hann drykkfelldan „byssuveifara” 1 en það er nokkurs konar kúreka- mvnd. Efnisþráðurinn er þó mjög með öðrum hætti en venjulega gerist í kúrekamyndum, og aðal- hetjan sömuleiðis. Sem fyrr segir er hann þar ákaflega drykkfelldur, nánast. drykkjuræfill. Þegar hann er edrú er hann svo skjálfhentur að það er ekki meira en svo, að hann valdi pístólunni, en strax og hann hefur innbyrt nokkra sjússa fer hann að skána. Og því drukkn- ari sem hann er, því leiknari verð- ur hann. Þeir sem séð hafa mynd- ina segja hana stórkostlega. Leik- urinn sé hreint snilldarverk, og myndin svo gráthlægileg að heilsu j manns sé hætta búin. Mennirnir á þessum myndum eru aliir heimsþekktir kvikmyndaleikarar Og nöfn þeirra allra eru á svörtu römmunum. En ef við lítum nánar á, þá sjáum við að þar hefur einliver ruglazt held- ur illa í ríminu. Nöfnin eru nefnilega alls ekki rétt. Athugið þið nú liversu skörp þið eruð, hvort þið getið fengið nöfnin rétt, og lesið ekki lengra fyrr cn þið eruð búin að spreyta ykkur. £n rétt eru nöfnin svona: A er Mel Ferrer, B er Bing Crosby, C er Bill Holden, D er Tony Randall, E er Tony Curtis, F er Bob Hope, G er Marlon Brando, H er Jaek Lemmon og I er Peter Ustinov. 'HVER er auðugasti maðurinn í Hollywood? Svar við þeirri spurn ingu getur aðeins sá sami gefið — og svo virðist sem honum sé ekkert áhugamál að ræða um það. Hver svo sem hann er, þá mun hann að finna á meðal einhverra eftirtalinna: Cary Grant, Frank Sinatra, Bing Cros by, Bob Hobe, Randolph Scott, James Coburn og Robert Vaughan. hins syngjandi kúreka Gene Autry. Ekki er hægt að benda á neinn þeirra sem ríkari en einhver hinna því að þeir eru allir sér- fræðingar í því að halda fjárhag sínum leyndum. En þeir eiga annað sameiginlegt en mikil auð æfi. Allir að undanteknum Randolph Scott, eru komnir frá fátækum heimilum. Þeir öfluðu sér sinna fyrstu peninga í skemmtanaheim inum, spöruðu þá og ávöxtuðu á skynsamlegan hátt. Þeir fengu fjármálasérfræðinga sér til að- stoðar og hafa allt sitt unnið mikið til þess að ná eins langt og raun ber vitni um í dag. Elvis Presley sem er liðlega þrítugur, og Frank Sinatra, sem nýlega varð fimmtugur, eru yngst ir í hópnum. Elvis græðir meira en nokkur annar í heimi listar- innar. Fyrir hverja mynd, sem hann leikur í, en þær eru um það bil þrjár á ári, fær hann í sinn hlut 42 milljónir króna. Auk þess fær hann 50% af ágóðanum ásamt milljónum þeim, sem hann fær fyrir plötur sínar. Presley mun vera hæsti einstaklingsskatt greiðandi í Bandaríkjunum. FAÐIR HANS ÁVAXTAR PENINGA HANS. Á þessum árum hefur hann grætt 850 milljónir á því að leika í kvikmyndum og syngja inn á plötur en áuk þess 2100 milljónir króna á ýmsum vörutegundum, sem bera nafn hans eða eru skreyttar með mynd af honum. Presley lifir ekki neinu óhófs lífi á Hollywood mælikvarða. En heimili hans í Memphis Tenn- essee, er eins og klippt út úr ævintýrabók. Faðir hans, Vernon Presley, sér um að ávaxta fé sonarins, og lætur jafn lítið uppi t’m það og ástarævintýri hans. Þó mun vanta nokkrar milljón ir upp á, að Presley standi jafn fætis Gene Autry. Autry hefur af miklum klókindum ávaxtað peninga sína í stórum fyrirtækj- um og framkvæmdum — hann á jafnvel sinn eigin loftflota, með flugvélategundum eins og Lock- heed og Beechcraft auK þriggja þyrla. Autry á átta fyrirtæki, þar á meðal kvikmyndafélag, nokkur hótel, sex útvarpsstöðvar, þrjár sjónvarpsstöðvar og mikinn fjölda fasteigna. Þá á han.n einn ig tvo stóra búgarða. — Ef hægt er að tala um ein hverja formúlu fyrir fram, þá hlýtur hún að byggjast á hæfileik anum að umgangast gott og dug- legt fólk, sem veit hvað bíð ger ir, ásamt því að vera alltaf á rétt um stað á réttum tíma, segir Autry. SINATRA GJAFMILDASTUR. Frank Sinatra á einnig loft- flota, sem telur tvær þotur og eina þyrlu. Kvikmyndafélag hans heitir Artanis, sem er nafn hans lesið aftur á bak, en það gefur þó ekki jafn mikið í aðra hönd og fjárfesting, sem enn- þá er leyndarmál. Það er aftur á móti ekkert leyndarmál, að hann eyddi eitt sinn T50 mf’jónum króna í að kaupa spilavíti í Nevada. Árið 1963 seldi hann Framhald á 15. síðu. $ 25. maí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.