Alþýðublaðið - 25.05.1966, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 25.05.1966, Blaðsíða 9
konan Julie Christie, sem nýlega hlaut Oscars verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni ,,Darling“. Um aðrar stjörnur þarf ekki að fara mörgum orðum um. Sir Alec Guinnes leikur Yevgrav liðs foringja. Frá Englandi voru einn ig valin í hlutverk Rita Tushing ham og Sir Ralph Richardson, sem leikur Alexander Gromeko. ★ Fjöldi verðlauna. Metro-Goldwyn hefur framleitt myndina í 22 erlendum útgáfum og látið tala inn á hana á frönsku, arabisku, ítölsku, sænsku og þýzku. Textar hafa verið gerðir á fjölmörgum tungumálum svo sem spænsku, dönsku, kínversku, japönsku, grísku, portúgölsku, hollenzku og norsku. „Doktor Zhivago" hefur nú þegar aflað sér flestra þeirra verðlauna, sem finnast í kvik- myndaheiminum, fjögurra Oscars- verðlauna, og nokkurra gullverð launa. Þá hefur hún verið kjörin bezta kvikmyndin á enska tungu árið 1965, bezta bandaríska kvik myndin á sama árinu og erlenda pressan í Hollywood veitti henni héiðursverðlaun sín, svo nokkur dæmi séu tekin. sumarkvöldi í útjaðri Madrid. BREZK MYND frá 1965. Fram- leiðandi: Marcel Hellman. Hand- rit: Dennis Cannan og Roland Kibbee. Kvikmyndataka: Ted Moore. Klipping: Fredrick Wilson. Tónlist: John Addison. Leikstjóri: Terence Young. Panavision. Tech- nicolor. Háskólabíó. 122 mín. í auglýsingu Háskólabíós um myndina stendur m. a.: „Heims- fræg amerísk stórmynd.” Orðið „heimsfræg” er þarna mjög vafa- samt, jafnvel þó að hún væri það, sem ég efast stórlega um, því að það væri þá ekki fyrir annað en að vera léleg eftirlíking á Tom Jones. „Amerísk” er nú alveg út í hött, því að myndin er brezk. Þeir tala að vísu ensku, bæði í Bretlandi og Ameriku, en það er venjulega gerður greinarmunur á því hvaðan framleiðslan kemur. Síðasta orðið „stórmynd” mætti ef til vill til sanns vegar færa. Myndin er jú voðalega stór, nær yfir allt tjaldið í Háskólabíó en satt að segja bera umbúðirnar innihaldið algjörlega ofurliði. Leikstjóri þessa óskapnaðar er Terence Young. Hann hefur hing- að til fengizt við að sviðsetja Jam es nokkurn Bond og ætti hann að halda sig að þeirri atvinnugrein í nánustu framtíð. Þessi mynd er, eins og áður segir, stæling á Tom Jones, sem hefur algjörlega mis- tekizt. í upphafi myndarinnar tek- ur leikstjóri þó skýrt fram, að ef að þessi mynd líkist einhverri ann- arri, þá sé það hreinasta tilviljun. Opinskárri játningu verður vart búizt við. Mörg atriði myndarinn- ar eiga sér furðu líkar hliðstæður í Tom Jones, og Moll Flanders (Kim Novak) verður nokkurs kon- ar „kvenkyns Tom Jones.” Það, sem tengir þessar tvær myndir ennþá sterkari böndum, er sú staðreynd, að John Addison hefur samið tónlistina við báðar mynd- irnar og er hún óneitanlega keim- lík. j,Aðalhlutverkin eru leikin af heimsfrægum leikurum” segir í auglýsingu Háskólabíós. Það er að vísu satt en það er ömurlegt að horfa upp á hvernig hæfileikum þeirra er haldið niðri. Og með öllu óskiljanleg er sú staðreynd, að Vittorio De Sica, hinn frægi ítalski leikstjóri, skuli taka þátt í þessum skrípaleik. Að lokum vildi ég minnast á ís- lenzka auglýsingamynd, sem sýnd var á tmdan Moll Flanders. Mynd- in var gerð fyrir Lönd og Leiðir hf. og fjallaði um það, að maður ætti að láta L og L skipuleggja ferðalögin hvert sem væri. Ég er anzi hræddur um að ég láti L og L ekki skipuleggja mín ferðalög ef þau eru með sama blæ og aug- lýsingamyndin. Þvílíkan jarðar- fararblæ á auglýsingamynd fyrir ferðaskrifstofu hef ég aldrei séð áður. Því miður lætur höfundúr myndarinnar sín ekki getið, svo að það er ekki hægt að skamma hann með nafni, en það mætti ef til vill benda honum á nokkur atriði, sem hefðu getað gert m.vnd- ina betri. í fyrsta lagi þarf miklu meiri hraða í svona mynd, í öðru lagi fjörugri tónlist, í þriðja lagi mætti þulurinn vera aðeins lí£- legri, og síðast en ekki sízt mætti hún að skaðlausu innihalda smá liúmor. Það er að vísu brosað að þessari mynd, en því miður, að- eins vegna þess hve hún er léleg. Úr því að ég er farinn að minn- ast á auglýsingamyndir væri ekki lír vegi að hreyfa hér við málefni,, sem skrifað hefur verið um áður. Auglýsingamyndir hafa jafnan far- ið í taugarnar á áhorfendum enda kunna þeir margar þeirra utan að. Þessar myndir er byrjað að sýna á auglýstum sýningartíma, t. d. kl. 9, í stað þess, að þá á sýning á aðalmynd að hefjast. Áhorfendur sem kannast við þetta fyrirkomu- lag erú síðan að týnast inn í sal- inn, löngu eftir auglýstan tíma. Hvernig væri nú að sýna þessar auglýsingamyndir t. d. fyrir kl. 9, þannig að aðalmyndin geti hafizt á réttum tíma? Með núverandi fyrirkomulagi okra kvikmynda- húsin iðulega á almenningi með því að sýna myndir, sem eru tæp- ir tveir tímar, aðeins klukkan 5 og 9. Sýningartíminn er lengdur með auglýsingamyndum, frétta- myndum, sýnishornum úr næstu myndum og jafnvel teiknimyndum, ef með þarf. Með hléi er því auð- velt að teygja sýningartíma mynd ar, sem er 110 mín. upp í 140 mín. Og að lokum þetta. Er til of mik- ils mælzt, að kvikmyndahúsin fari eftir sínum eigin auglýsingum? — Það kæmi sér betur fyrir alla að- ila, að þegar mynd hefur verið auglýst í síðasta sinn, þá sé hætt að sýna hana daginn eftir. Hvað viðkemur þessari algengu auglýs- ingu „allra síðasta sinn” get ég ekki séð að það sé hægt að sýna mvnd nema einu sinni í síðasta sinn og því sé ekki um neitt „allra síðasta sinn” að ræða. Sig. Sverrir Púlsson. KMYN Frá Verzlunarskóla íslands Inntökupróf inn í I. bekk Verzlunarskóla ís- lands verður þreytt dagana 27. og 28. maí. Nemendur mæti við Verzlunarskólann 27. maí, kl 1,30 síðdegis. Röð prófanna verður þessi: íslenzka, danska, reikningur. Kópavogsbúar Ungur maður óskast til starfa í vöru- afgreiðslunni. Málning hf. Laus staða Staða aðalgjaldkera Landssmiðjunnar er laus til umsókn'ar. Laun samkvæmt launa- kerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir á- samt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendast Landssmiðjunni fyrir 1. júní n.k. LANDSSMIÐJAN. Skrifstofumabur óskast strax. Umsóknir sendist til Hafnarskrifstofunnar fyrir n.k. mánaðarmót. Hafnarstjórinn í Reykjavík. Vakfmaöur Vaktmaður óskast á olíusföð. UppEýsingar í síma 13329. Sumarhaftar barna, nýkomnir í glæsilegu úrvali toúöírv Laugavegi 31 sími 12815 Aðalstræti 9, sími 18860. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 25. maí 1166 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.