Alþýðublaðið - 03.06.1966, Blaðsíða 1
Föstudagur 2. júní 1966 - 47. árg. - 122. tbl. - VERÐ 5 KR,
Múgurinn trylltist
við aftökurnar
KINS'HASI (Leopoldviile), 2.. í dag. Gífurlejrur mannf jöldi, sem
júlí (NTB-Reuter). — Æpandi kon : viöstaddur var aftökurnar, grekk
ur og börn voru fótum troðín af göflunum og var gripinn
Þegar fjórir fyrrverandi ráðherr i berserksæði.
ar voru teknir af lífi með heng
'ingu á torgi einu í Leopoldville
iWHMMMHMHMHHMWWW
Balsguer
sigraði i
SANTO DOMINGO, 2.
júní. (NTB-AFP). — Hinn
íhaldssami frambjóðandi í
forsetakosningunum i Dóm-
ijiíska lýðVeldinu, dr.
Joaquin Balaguer hélt því
fram í dag að hann hefði
farið með sigur af h-ólmi
og lýsti því yfir að hann
mundi krefjast þess að ör-
yggissveitir Ameríkuríkja í
Iandinu yrðu fluttar úr
Ia):di.
Dr. Balaguer sem er Ieið
togi hins svokallaða Um-
bótaflokks sagði blaða-
mönnum áður en heildarúr-
slit kosninganna voru kunn,
að hann hefði fengið 70%
greiddra atkvæða og hvatti
til myndúnax þjóðeiningar-
stjórnar.
Framhald á 14. síðu.
Um 300.000 manns mætti á torg
inu. Mannfjöldinn var lengi vel
þögull og rólegur. En óst.iórnlegt
æði greip múginn þegar þriðji
maðurinn. Jerome Anany fyrrv.
landvarnaráðherra var hengdur í
f ramhald á 14. siðu
Surveyor lenti mjúklega:
INGAR FRÁ TUNGLINU
KENNEDYHÖFDA, 2. júní. —
(N'TB.-REUTER). - Bandaríska
tunglflaugin „Surveyor”, sem lenti
mjúklega á tunglinu kl. 6.17 í
morgun, sendi 144 Ijósmyndir aft-
ur til jarðar fyrstu sex klukku-
stundirnar eftir lendinguna, og
eru myndirnar skýrari og greini-
legri en bandarískir vísindamenn
höfðu þorað að vona. Myndirnar
frá lendingarstaðnum gefa til
kynna, að vel sé framkvæmanlegt
að láta mannað tunglfar lenda þar
sagði dr. Leonard Jaffe, eínn
þeirra, sem stjórna „Surveyor”-
tilrauninni, á blaðamannafundi.
Jaffe la,gði á það áherzlu, að
þessi ályktun ætti aðeins við um
lendingarstað „Surveyors,” sem
er um 80 km. fyrir norSan eld-
gíginn Flamsted i hinu svo-
kallaða Stormahafi. Gígurinn, sem
heitir eftir brezkum stjörnufræð-
ingi, er sá staður á yfirborði
tunglsins, sem menn hafa mesta
vitneskju um. Svæðið milli gíg?-
ins og lendingarstaðarins er mis-
hæðótt slétta með smýgígum.
Tæki þau í „Surveyor” sem
senda myndir til jarðar, voru lokuð
eftir sex tíma sendingu í dag, en
hefja átti myndasendingarnar að
nýju kl. 3,30 í nótt. Vonað er að
„Surveyor” sendi hundruð mynda
daglega næstu tíu daga eða þar
um bil, en síðan hætta mynda-
sendingamar þar eð sólarsellurnar
í tunglflauginni verða ekki leng-
ur hlaðnar vegna þess að tunglið
snýr þá hinni hliðinni að sólu.
Hin velheppnaða lending merk-
ir eftir öllu að dæma, að geim-
visindaáætlun Bandarikjanna hef-
ur stigið svo stórt skref fram á
við, að heilt ár hefur sparast, að
þvi er sagt var við geimvísinda-
stöðina í Pasadena í Kaliforníu í
kvöld. Þetta var fyrsta tilraun
Bandaríkjamanna til slíkrar lend-
ingar og hún heppnaðist stórkost-
lega vel. Rússar hafa áður fram-
kvæmt sams konar lendingu, en
þeim tókst ekki að framkvæma
hana fyrr en eftir fimm misheppn-
aðar tilraunir. Sovézka tunglflaug
in Luna 9 lenti á tunglinu í febr-
úar.
Bæði Rússar og Bandaríkja-
menn gera sér vonir um að senda
mannað geimfar til tunglsins fyr-
Frh. á 14. síðu.
SKÝRINGAR VIÐ KORTIÐ
HÉR AÐ OFAN:
1. Tunglskipið losnar frá eld-
flauginni 12li> mínútu eftir að
henni var skotið á loít. 2. SÓl-
geislamóttakarinn tekur til starfs
klukkustund eftir eldflaugarskot-
ið. 3. Sex klukkustunaum eftir
skotið stýra litlar eldflaugar
tunglskipinu á rétta braut. Fimmt
án stundum eftir skotið er stefn-
an leiðrétt aftur. 4. Strax a eftir
taka sjálfstýritæki tunglskipsins
til starfa og halda þvi á réttri
braut. 5. Þrjátíu mínútum fyrir
lendingu taka hemlaeldflaúgár
tunglskipsins til starfa. 6. Stað-
setning tunglsins, þegar geim-
skotið hófst. 7. 24 klukkustundum
síðar. 8. 48 klukkustundum síðar.
9. 63 klukkustundum síðar.
iMWWMMMWMMtMMWWmWMMIMMMMMMMMMWÍMI
Fyrsti fundurinn
Fyrsti fundur hinnar nýkjörnu borgarstjórnar Reykja ^
víkur var haldinn í gær. Það segir nánar frá hon- $
uin í frétt á annarri síðunni í dag. Myndin er af -*
fulltrúum jafnaðarmanna í borgarstjórn á fund- ^
inum, Óskari Hallgríinssyni og Páli Sigurðssyni.
(Mynd: JV).
MMMHMWMIHMMHtWMMMMMMHHHMmmWMmtMÚU