Alþýðublaðið - 03.06.1966, Síða 2

Alþýðublaðið - 03.06.1966, Síða 2
sictastliána nótt KENNEDYHÖFÐA: Bandaríska tunglflaugin „Surveyor", eem lenti mjúklega á tunglinu kl. 6.17 í gærmorgun, sendi 144 ljósmyndir til jarðar fyrstu sex klukkutímana eftir lendinguna, og eru myndirnar skýrari og greinilegri en bandarískir vísinda «nenn höfðu þorað að vona. Myndirnar frá lendingarstaðnum gefa til kynna að vel sé framkvæmanlegt að láta mannað geim- far lenda þar sagði di'. Jaffe, einn af yfirmönnum tilraunarinn ar, á blaðamannafundi. WASHINGTON: Johnson forseti hvatti til ‘þess í gær, að vísindamenn skiptust á upplýsingum um tunglið og sagði að einhvern tíma yx’ði öllum þjóðum kleift að senda menn til tunglsins. Hnnn Sagði, að geimrannsóknir Bandaríkjamanna hefðu alltaf farið fx-am fyrir opnum tjöldum og að vísindamönn um um heim allan yrði gert kleift að rannsaka myndirnar, sem tunglflaugin „Surveyor" sendir frá tunglinu. LEOPOi ,DVrLLE: Fjórir fyrrverandi ráðherrar úr Kongó- stjórn voru teknir af lífi með opinberri hengingu á torgi einu í Leopoldville í gær. Þúsundir manna, sem fylgdust með atburð inum, gengu af göflunum og margir meiddust í ringulreiðinni •sem ríkti við aftökurnai’. Fjórmenningarnir voru dæmdir til dauða fyrir samsæri um að ráða Mobutu forsætisráðhei’ra af dög um. KENNEDYHÖFÐA: Ekkert er talið vera því til fyrirstöðu af geimförunum Thomas Stafford og Eugene Gernan verði skotið út í geiminn í geimfax-inu Gemini-9 kl. 13,39 í dag. KUALA I.UMPUR: Utanríkis- og varaforsætisráðherra Malay- síu, Tun Abdul Razak, sagði í gær, er hann kom til Kuala Lump ur að loknum viðræðum sínum við Malik, utanríkisráðherra Indónesu, í Bankok, að Indónesar hefðu látið af yfirgangi •síniim gegn Malaysíumönnum. Indónesar hefðu viðurkennt sjáífstæði Malaysíu og hin nýja stjórn Suhartos toershöfðingja væri einlæg í ósk sinni um frið í sambúð ríkjanna. í Djakarta sagði Malik, að viðræðurnar í Bangkok hefðu verið ánægjulegar jþótt viðunandi árangur hefði ekki náðst í öllum málum. PARÍS: Frakkar eru óánægðir með tillöguna um, að sérstök ne fnd á vegum NATO fjalli um framtíðarstöðu franski’a her- isyeit í Vestur-Þýzkalandi, að því er sagt var í París í gær. 'Einnig hefur það vakið óánægju Frakka, að þeim var ekki , .skýrt frá tillögunum eftir venjulegum diplómatískum leiðum -•og ,að þeir fengu ekkert um tillöguna að vita fyrr en tilkynning vair gefin út um viðræður fulltrúa 14 NATO-ríkja. Fastafulltrú ar, NATO--ríkjanna í Pai’ís luku í gær þriggja mánaða viðræðum um afleiðingar þeirrar ákvörðunar Frakka að draga herlið sitt undan yfirstjórn NATO. Þeir munu leggja skýrslu um viðræð- urnar fyrir utanríkisráðherrafund 14 NATO-ríkja, er hefst í Briissel á mánudaginn. BÚIZT; er við, að íslenzka brúðuléikhúsið liefji sýningar nú í júní, og er undirbúningi smin lokið. Aðaíviðfangsefni briiðuleikhússins að þessu sinni vqrður leikritið „Norður kald- an Kjpl”, spm Ragnar Jó- hánnesson hefur samið fyrir brúðuleikhús. Efnið fjallar um baráttu ungs manns, Sigurðar snara, við grimm náttúruöfl, tröll og útilegumenn, er hann ferðast sem sendiboði frá Skál holti norður Kjöl til Hóla. Á leiðinni finnur Sigurður stúlku sem útilegumenn hafa rænt og lionum tekst að bjarga henni. Vafalaust hafa börnin mjög gaman af að liorfa á brúðurn- ar leika í þessú íslenzka brúðu leikrit, og verða fastar sýn- ingar brúðulelkhússins Tjarnarbæ í sumar og einnig verður farið út á land. 2 3. júní 1966 í. Fimmta ráðstefna norrænna veð urfræðinga verður haldin í Reykja vík dagana 7. — 11. júní n.k. Að ráðstefnunni standa samtök norrænna veðurfræðinga, og er þetta í fyrsta skipti, sem slík ráð stefna er haldin hér á landi. Um 35 veðurfræðingar frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð taka þátt í fundinum, en íslenzkir þátt takendur verða 18. Tuttugu og sex erindi verða flutt á ráðstefnunni og skiptast þannig, að 3 eru frá Danmörku, 4 frá Finnlandi, 5 frá íslandi, 7 frá Noregi og 7 frá Sví þjóð. Fjalla erindin um mjög marg vísleg veðurfræðileg efni, svo sem úrkomu, þoku, veðurspár og flug veðurfræði. Fundarstaður verður Hagaslcólinn í Reykjavík,. ALÞYÐUBLAÐiÐ RÁÐSTEFNA NORRÆNNA VEÐURFRÆÐINGA HÉR I gær var haldin í Háskólabíói kvikmyndasýning fynr börn, sem störfuðu fyrir A-listann í kosningua um. Þessa svipmynd tók ljósmyndari Alþýðublaðs ins þar í gær. (Mynd: JV). Framsókn og komm únistar vildu sam- f vinnu við Alþýöuflokki nn Reykjavík. — EG. Framsóknarmenn og kommún- istar í borgarstjórn vildu hafa samrúð og samstöðu með Alþýðu- flokknum um nefndakjör í borg- arstjórn Reykjavíkur, en tilboöi þeirra var hafnað af hálfu Al- þýðuflokksins. Kom þetta fram á fundi borgarstjórnar í gær. Guð- mundur Vigfússon skýrði þar frá tilboðinu, en Óskar Hallgrlmsson gaf þá yfirlýsingu, að það væri skoðun Alþýðuflokksmanna, að kjörfylgi flokksins væri nóg til að tryggja hgnum áhrif í borgarstjórn án samstarfs við aðra flokka, en fulltrúar Alþýðuflokksins mundu beita sér fyrir því þar, að alllr flokkar ættu fulltrúa í nefndum, svo fullkomið lýðræði gætl ríkt. Á fundinum i gær var kosið í fjölmörg ráð og nefndir ýmist til eins árs eða næstu fjögurra ára. Borgarstjóri var kosinn Geir Hallgrímsson, en frú Auður Auð- uns forseti borgarstjórnar til eins árs. Fulltrúar Alþýðuflokksins í borgarstjórn báru fram tillögur um menn I nær allar þriggja, fjög- Framh. á 13. síðu. Samstjórn vinstri manna í Eyjum og á ísafiröi Vestm. — E.S. - AKB. — Á fundi bæjarstjórnar Vestmanna- eyja í gær var Sigurgeir Kristj- ánsson kosinn forseti bæjarstjórn- ar og Garðar Sigurðsson, vara- Frh. á 14. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.