Alþýðublaðið - 03.06.1966, Side 8
Nú er prófum lokið eða er að
Ijúka í flestum skólum. í fyrradag
fórum yið í snyrtistofuna Mæju
á Skólavörðustíg, en þar voiru
stúlkur í Snyrtiskóla frú Margrét
ar Hjálmtýsdóttur að taka próf í
fegrunarsérfræði.
Prófdómari stúlknanna var frú
Majbritt Carbolino, fegrunarsér-
fræðingur frá Germaine Monteil í
París. Það var mikið um að vera
á snyrtistofunni, er við iitum þar
inn, því að þar voru fleiri gestir
nefnilega kvikmyndatökumenn frá
ítalska sjónvarpinu. Þeir eru hér
staddir til að taka myndir og datt
í hug að hafa þar með myndir frá
íslenzkri snyrtistofu. Þegar okkur
bar að voru fjórar stúlkur í verk
legu prófi, þ.e. snyrtingu en aðrar
fjórar höfðu lokið því prófi um
morgunjnn. Stúlkurnar urðu nú að
leysa prófverkefni sitt af hendi
fyrir framan skær Ijós og suðandi
kvikmyndavélar, og að sjálfsögðu
fyrir framan ljósmyndavélina okk
ar, eins og myndirnar hér á síð-
unni bera með sér. Ekki bar þó á ó
styrk hjá stúlkunum, ekki svo sást
að minnsta kosti. Þær vönduðu
mjög snyrtinguna og fengu hrós
fyrir hjá prófdómaranum, frú Car
bolino.
Frú Carbolino sagði, að stúlkurn
V/ ' ',4 ' /' £
wmmÉMm
wmm
v .
_'. : > • - •;
’ ’’ : :
'
l' ‘ .:
iii
Frú Gar öolino.
ar væru mjög duglegar og vand
virkar og fengju áreiðanlega góð
ar einkunnir. Frúin tók það fram
að íslenzkar konur hefðu flestar
of þurra húð, og virðist öllum
fegrunarsérfræðingum, er hingað
koma, bera saman um það. Þess
vegna sagði hún, að konur yrðu að
vernda húðina með kremum, sér
staklega þegar kalt væri í veðri og
hvasst, einnig að vernda húð barn
anna með mjúkum kremum, þegar
mjög kalt væri í veðri.
Við jpurðum frú Margréti Hjálm
týsdóttur nokkurra spurninga um
skólann hennar og þær námsgrein
ar, er þar væru kenndar.
— Hér er stúlkunum kennt æði
margt, segir frú Margrét, þeim
er kennd hegðun og framkoma, lík
amsæfingar, líkamssnyrting, klæðn
aðarlist, húðgreining, margs kon
ar andlitsböð og ,,make-up“, nudd
sérstaklega andlitsnudd, meðferð
rafmagnsáhalda handsnyrting,
snyrtivöruefnafræði og síða t en
ekki sízt anatomi eða líkamsfræði,
sem er kennd af læknum, en hún
er undirstaða námsins.
— Hvað eru margar stúlkur í
prófinu núna?
— Þær eru átta. Sumar þeirra
hafa stundað verklegt nám á snyrti
stofum hér í bæ, en bóklegu fög
in í snyrtiskóla mínum.
— Þið hafið hér fran,kan próf
dómara hjá stúlkunum?
— Já, frú Carbolino er fegrun
arsérfræðingur frá Germaine Mon
teil í París og hefur unnið 30 ár
í fagi sínu. Hún hefur kennt hjá
okkur á námskeiöi fyrjr meðlimi
í Sambandi íslenzkra fegrunarsér
fræðinga, þar hefur hún kennt ný
tízku ,,make up“.
Við truflum aðeins. eina stúlk
una í prófinu. Hún segist heita
Við sn yrtingu.
Prófdómari og kennari fylgdust með handbragði s
8 3. júní 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ