Alþýðublaðið - 09.07.1966, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 09.07.1966, Blaðsíða 4
£= RitstiárTÖrn Eidsson Rltatjórtr: Cylfl Gröndal (4b.) og Benedlkt Gröndel. — Rltatíóm&rfuU- trúl: ElOur GuOnason. — Slmar: 1 ■4900-14903 — Auglýolngasíml: 1490«. ASsetur AlþýðuhúalO vlO Hverflsgötu, Reykjavík. — PrentsmlOja Alþýðu bUOdng. — Askxlftargjald kr. 95.00 — 1 lausesölu kr. 6.00 elntakltL Gtgefandl AlþýOunokkurlna. HITAVEITAN HITAVEITAN hefur í hyggju að stórhækka alla taxta sína á næstunni. Kemur það varla á óvart, því fá fyrirtæki geta hjá því komizt að fylgja almennt hækkandi verðlagi. Þó ber yfirvöldum að sýna fyllstu jgát og hafa slíka hækkun eins litla og framast verður ;komizt af með. í umræðum um þetta mál í borgarstjórn Reykja- víkur flutti Bárður Daníelsson, fulltrúi Alþýðuflokks- jins, athyglisverða ræðu um gjaldskrá hitaveitunnar. Benti hann á, að það gæti verig mjög óréttlátt að inn- jheimta fyrir það magn af vatni, sem notað er, því 'að vatnið sé mismunandi heitt í húsum. Fá Reykvík- ingar því misjafnlega mikinn hita af tilteknu magni ;af vatni eftir því hvort þeir fá til dæmis 90 gráðu jeða 60 gráðu heitt vatn. Bárður benti á, að óverjandi væri að gera á þenn- jan hátt upp á milli viðskiptavina hitaveitunnar. Taldi hann nauðsynlegt að finna betra kerfi, þar sem reynt iyrði að komast nær því að fólk greiði fyrir þann hita, jsem það raunverulega fær. I | Ræða Bárðar vakti athygli fundarmanna, enda jhreyfði hann þama merkilegu hagsmunamáli reyk- jvískra neytenda. | SÖGUEÖLSUN SÍÐASTLIÐINN FIMMTUDAG voru liðin 25 ár síðan bandarískt heriið kom til íslands til að taka við vörnum landsins samkvæmt samkomulagi, sem ís- landingar höfðu gert við Roosevelt forseta. Hét for- getinn þá að herinn yrði kallaður heim í stríðslok. í tilefni af afmæli þessu mátti lesa eftirfarandi iklausu í Þjóðviljanumí gær: „Um þessar mundir er 21 ár liðið síðan það loforði Roosevelts var svikið; Bandaríkin neituðu að flytja heri sína burt og sitja jhér enn sem fastast.” j Þetta er furðuleg fölsun og sýnir, hvernig komm- júni^tar gerbreyta staðreyndum til að láta það sem þeir.kalla sögu, falla inn í áróður þeirra. Bandaríkja- imenn óskuðu eftir herstöðvum hér, en var neitað. Þá kölluðu þeir allan her sinn frá íslandi, eins og þeirá bar skylda til, og verður því ekki véfengt, að jTruman forseti stóð við heit Roosevelts. Löngu síðar ikom núverandi vamarlið hingað á vegum Atlants- jhafsbandalagsins að ósk og með fullu samþykki ís- íenzkra yfirvaida. Það hefur verið og er algerlega á jvaldi íslendinga sjálfra, hvort þetta varnarlið verður hér lengur eða skemur. 4 ALÞÝ0UBLAÐI9 — 9. júlí 1966 Kennarinn sigraði á Jónsmessumótinu Á Jónsmessukvöld þann 23. júní síðastliSinn liófst hin árlega Jónsmessukeppni GR á Grafar- lioltsvellinum. Keppt er um fall- egan litinn bikar, sem er farand- gripur fyrir beztan árangur með með forgjöf í 18 holu höggleik. Veður var ákjósanlegt til golf- leiks, þó dimmt vœri yfir. Til leiks voru mættir 35 kylfingar. Og er þátttakan í kappleikjum félagsins nú í sumar að verða mjög stöðug og myndarleg. — Árangur varð þó eigi svo góður, sem skyldi. Tveir vaxandi kylfingar urðu jafnir í 1. sæti, þeir Hans ísebarn og Jón Þór Ólafsson á 66 höggum nettó (að frádr. forgj.). Urðu þeir því að leika til úrslita 18 holur miðvikudaginn 28. júní. Lauk þeirri viðureign svo, að Jón Þór Ólafsson sigraði með talsverð um yfirburðum eða 67 nettó, en Hans ísebam iék á 80 nettö. — Hlaut Jón Þór Ólafsson því bikar- inn til varðveizlu ósamt eignabilc- ar. Jón hefur staðið sig afar vel í sumar og meðal annars unnið Firmakeppnina; og fengið forgjöf sína marglækkaða. Hann hefur lagt sérstaka rækt við að bæta leik sinn og hefur notið leiðsagn- ar hins ágæta kennara klúbbsins, Magnúsar Guðmundssonar. Hér fer á eftir árangur í keppninni: Án forgjafar: Magnús Guðm. 75 liögg (keppti sem gestur). Óttar Yngvason 80 högg Jóh. Eyj. Einar Guðnas. Hans ísebarn Með forgjöf: Hans ísebarn Jón Þór Ól. 83 högg 85 högg 86 högg 66 högg 66 högg Páll Ásg. Tryggvas. 68 högg Magnús Guðm, 69 högg Elías Kárason 70 högg Hjónakeppni GR. Sunnudaginn 19. júní fór fram hin vinsæla Hjónakeppni GR. — Einungis 6 kylfingar og frúr þeirra tóku þátt i keppninni nú. Leiknar voru 12 holur án forgjaf- ar að sjálfsögðu. Skilyrði voru fremur slæm, gras mjög sprottið og aðrir erfiðleikar, sem erfitt er að yfirstíga nema með góðri sam- vinnu. Gunnar Þorleifsson bók- bandsmeistari og frú Hildur Krist insdóttir sigruðu glæsilega á 65 höggum- Viðar Þorsteinsson bók- bandsmeistari og frú voru í öðru sæti á 69 höggum. Vonandi sýna fleiri frúr velvilja sinn til golf- leiksins að ári. Sjón er sögu rík- ari. Frá 17. júmmóti að Leirárskóla liátíðardagsins. Afrek eru helztu úrslit: 100 m. hlaup: Karlar: Kristjón Gunnarss. Þ. Magnús Ólafsson, H. Einar Þórarinss. H. Garðar Ellertsson, Þ. Konur. Unnuc Bergþórsd. R. Ragnh. Þorgrímsd. Þ. Leir Geirfríður Ben. Þ. 15,8 þjóð- Þuríður Magnúsd. H. 17,2 voru m sr mótið Hástökk: . Hér Anton Ottesen, Þ. 1,54 Ágúst Hjálmarsson, Þ. 1,42 Einar Þórarinsson, H. 1,27 Magnús Ólafsson, II. 1,22 Þórdís Harðard. H. 1,17 13,0 Ingibjörg Njálsd. H. 1,17 13,1 Rut Gunnarsd. Þ. 1,12 13,3 Maria Brynjólfsd. Þ. 0,97 14,1 Langstökk: Anton Ottesen, Þ. 5,55 15,0 Magnús Ólafsson, H. 5,09 15,5 Framhald á 10. síðu. ★ ARNARHÓLL EÐA HEIMILIN. Þegar rætt er um áfengisvanda- mál, hugsa flestir til þeirra vesalinga, sem drekka á almannafæri, til dæmis þeirra, sem halda sig á Arnarhóli á sumrin. Þetta er þó aðeins einn þátt- ur áfengisvandamálsins, en aðrar hliðar þess eru ekki síður varhugaverðar, þótt minna beri á þeim. Um þessar mundir skrifa blöð á Norðurlöndum mikið um drykkjuskap roskins fólks á heimilum sínum. Þetta er ekki fólk, sem heldur uppi háreisti og látum, heldur drekkur það reglu- lega og án þess að þeir verði varir við. Margir á- fengissjúklingar, sem hafa komið í ljós í Sví- þjóð undanfarin misseri, reynast hafa drukkið á kvöldin og liorft á sjónvarpið. Þetta fólk hefur sýnilega fá eða engin áhugamál og drepur tímann með þessu tvennu. ★ EITUR í VERMOUTH. Sænskar fréttir segja frá konum, sem koinu til lækna með hina furðulegustu sjúk- dóma. Þær sáu sýnir og þjáðust af öðrum andleg- um kviilum, voru lifrarveikar og áttu erfitt með gang. Rannsóknir visindamanná hafa nú leitt í ljós, að þessar konur hafa drukkið mikið magn af Vermouth, en í því reynast vera eiturefni, sem hafa þessi áhrif, ef nógu mikils er neytt. Rann- sóknir í Neurologiska Kliniken í Borás leiddu í ljós, að Vermouth, sem er um 15% að styrkleika, er efnið ..artemisia absinthinon,” sem einnig er { absinti, áfenginu, sem er bannað í flestum löndum. Sænsku læknarnlr komust að raun um, að konurnar höfðu drukkið mjög mikið magn. Sumar höfðu með manni sínum drukkið heila flösku á liverju kvöldi, dag eftir dag. Þótt þessi ósköp gerðust í félagsskap við sjónvarpið, töldu lækn- arnir það með öllu saklaust af kvillum kvemianna. ★ KONUR DREKKA EINAR. Annar sænskur læknir og þing- maður, Bertil von Friesen, sagði í blaðaviðtali eftir fundi um áfengismálin í Danmörku, að jafnrétti og velmegun virtust auka drykkjuskap kvenna. — Hættulegast sé, er þær drekka aleinar heima hjá sér, enda séu þær mikið einar, þegar menn þeirra eru við vinnu. Hann sagði, að hættulegt væri að drekka kokkteil í staðinn fyrir kaffi. Annars sagði þessi læknir, að bæta þyrfti verulega meðferð drykkjusjúkra og fara með þá sem sjúklinga, það væru þeir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.