Alþýðublaðið - 09.07.1966, Síða 9
iW-
I 1
felf *§ -5* ■ :
w s
§|ýlí * I:
I phu|>
■•■•§*..• 33* • •■:
.7 \ eg J
sC- -
:7 f
l:’ V. J
' r ' ''Mr 'WJrnm
#.- \ *£
-s ar fi ?'sí; @!
mmsímusim.
&S$Mm$M0!0$0
U'S'í.'Uj'fi ?
Éf/A*A/ • / .' '
Enska sjónvarpið hefur ekki farið varhluta af bylti
ngu þeirri, sem átt hefur sér stað í leikhúsinu, og
sýnir oft frábær verk. Myndin sýnir, þegar Jack
Ruby skýtur til bana Lee Oswald, en það var há-
punktur sannsögulegrar sjónvarpsmyndar, sem kall
ast Dallas — 22. nóvember, og eru allar viðræður
teknar orðrétt úr hinni svokölluðu Warren-skýrslu.
Myndin rekur æviferil Oswalds til þess dags, er
liann situr í geymsluherbergi vöruhúss í Texas og
ctur kjúkling á meðan hann bíður komu bílalestar
íorsetans — og svo þetta augnablik í fangelsinu í
Dallas, sem milljónir manna voru sjónarvottar að.
Bylting í leikhúsinu
Gerbylting á sér nú stað í
enska leikhúsinu, sem talið er það
bezta í heiminum í dag. Þar rík-
ir óiga, sláandi hreinskilni, og
vilji til að takast á við sérhvert
viðfangsefni, reyna sérhverja
tækni, og virðir enga fordóma eða
bönn. Hin ungu og vaxandi leik-
ritaskáld hafa hæfileika og dirfsku
í ríkum mæli.
Þetta iífsfjör hefur haft sín á-
hrif á fleiri sviðum lista og fjörg-
að menningar- og félagslíf í Eng-
landi. Þessi „endurreisn” hófst
fyrir einum tug ára með reiðu
leikriti eftir nýtt leikritaskáld.
Gömui sígild verk eru enn sýnd
og gefa lcikhúsinu visst gildi, en
nútímaverkin vekja mesta athygli
— og uppnám.
Eitt atriði í leikritinu „Saved”
þar sem enskur umrenningur
grýtir ungbarn í vagni til bana,
varð til þess, að sumir leikhús-
gesta flýðu leikhúsið, méð hend-
ur fyrir munni. Hin opinbera rit-
Framhald á 10. síðu.
Talið er að „National Theatre” sé eitthvert bezta
leikhúsið í Englandi í dag. Það var stofnað fyrir 3
árum síðan, en hefur upp á að bjóða fjölbreyttustu
leikhúsverk heimsins. Stjórnandi þess er enginn ann-
ar en Sir Laurence Olivier, virtasti leikhúsmaður
Englands. Hann sýnir þar verk af öllum tegundum,
sigild, ný og óhefðbundin. Myndin sýnir atriði úr
„Armstrong’s Last Goodnight” eftjr John Arden,
en það fjallar um landamæraskærur í Skotlandi 16.
rldar, en með áhrifum af upplausninni í Kongó
Í.P61. Því lýkur með því, að skozk hetja er hengd á
sviðinu. Leikritið fjallar einnig um ástamál Ger-
aidine McEvan og Robert Stevens. Þó að Stephens,
sem er 35 ára, sé lítt þekkt utan Englands, er hún
samt talin arftaki Sir Laurence Olivier á sviðinu.
Hafnarfjörður.
ATVINNA
Verkamenn vantar nú þegar til afleysinga
í sumarleyfum.
Upplýsingar í vinnumiðlunarskrifstofunni
Hafnarfirði, sími 50113.
TILBOÐ
óskast í nokkrai* fólksbifreiðar, er verða
sýndar að Grensásvegi 9 mánudaginn 11.
júlí kl. 1—3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5
sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Á Akureyri í dag kl. 4 keppa á Akureyrar-
velli
íþróttabandalag Akureyrar -
íþróttabandalag Keflavíkur
Dómari: Guðjón Finnbogason.
s Mótanefnd.
Hafnarfjörður
Alþýðuflokksfélögib í Hafnarfirði halda
sameiginlegan fund í Alþýðuhúsinu mánu-
daginn 11. júlí kl. 8,30.
Fundarefni:
1. Bæjarmál.
Frummælandi: Kristinn Gunnars-
son bæjarfulltrúi.
2. Önnur mál.
Stjórnir féíaganna.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 9. júlí 1966 0*
NOTIÐ
HEMPELS málningu
úti og inni
SLIPPFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK H.F.
Auglýsingasíminn er 14906
mmim