Alþýðublaðið - 22.07.1966, Síða 1
Föstudagur 22. júlí 1966 - 47. árg. — 164. tbl. - VERÐ 5 KR.
Skriðuföll
í Hvalfirði
Reykjcivík OÓ.
Vegurinn jyrir Hvalfjörð lokað
ist á tveim. stöðum í gær vegna
skriðufalla. Þegar búið var að
opna veginn aftur lokaðist vegur
inn á Kjalarnesi þar sem ræsi yfir
fylltist. UnnitS var að viðgerðum
þar til í gærkvöldi og var buist
við að mögulegt væri að opna veg
inn aftur fyrir morguninn.
Óhemjumikil rigning var í gær
í Reykjavík og nágrenni og spillt
ust vegir mjög á því svæði, þótt
ekki hafi þeir lokast alveg nema
á fyrrgreindum stöðum.
Úrkoman olli skriðunum í Hval
AWWWWtWWWWVWWW
I Vísitalan {
|| 192 stig i|
j [ Kauplagsnefnd hefur reiknað !»
!! vísitölu framfærslukostnaðar J!
! j í júlíbyrjun 1966, og reyndist !!
j! hún vera 192 stig eða einu «J
!! stigi hærri en í júníbyrjun. J!
J Þeir liðir sem hækkuðu !;
Ieru fatnaður og álnavara og J!
liður, sem nefnist „ýmis vara !!
og þjónusta.” !j
firði. Féllu þær báðar um svipað
leyti, eða um klukkan fjögur í
gærdag. Önnur skriðan féll á veg-
inn hjá Hvítanesi og hin við Staupa
stein. Starfsmenn vegagerðarinn
ar komu fljótlega á vettvang og
ruddu veginn. Var þvf lokið um
sjöleytið. En þá lokaðist vegurinn
á Kjalarnesi, skammt frá Mógilsá,
og hafi allt gengið að óskum með
viðgerðir mun hann hafa verið
opnaður aftur í morgun.
Matreiðslumenn
sömdu í gær
Samningar mjlli Félags mat-
reiðslumanna og Sambands veit-
inga- og gistihúsaeigenda voru
undirritaðir í gær. Samningarnir
voru ondirritaðir með þeim fyrir
vara að félagsfundir í báðum fé-
lögunum samþykktu þá. Samning
arnir gilda til 1. október n.k.
Eru þá komnir á samningar hjá
öllum þeim fagfélögum, sem
tengd eru veitingahúsarekstri.
SR. SIGURÐUR PAISSON
KJÖRiNN VÍGSLUBISKUP
voru talin í fyrradag. Féllu þau
á þann veg að sóra Sigurður hlaut
32 atkvæði, séra Jón Thorarensen
26 og séra Þorgrímur Sigurðsson
á Staðarstað hlaut 5 atkvæði. Aðr
ir fengu færri atkvæði.
Alls greiddu 97 atkvæði en 93
höfðu atkvæðisrétt.
Séra Sigurður Pálsson er fædd
ur árið 1901 í Haukatungu í
Hnappadal. Hann lauk guðfræði-
prófi árið 1933 og var sama ár
veitt Hraungerði, og hefur liann
þjónað því prestakalli síðan.
Eiginkona séra Sigurðar er Stef
anía Gissurardóttir. Eiga þau sjö
börn.
Forseti íslands veitir vígslubisk.
upsembættið og þegar því er lokið
verður hinn nýi vigslubiskup vígð-
ur.
Séra Sigurður Pálsson í Hraun-
gerði var kjörinn vígslubiskup í
Skálhoitsbiskupsdæmi. Atkvæði
Séra Sigurður Pálsson.
Svona bunaði úr einni renn u á vegfarendur í gær.
Meira rigndi en í
öllum júlí í fyrra
í gær rigndi meira á einum
degi en allan samanlag'ðan júlí-
mánuð í fyrra. Úrkoman mældist
33,5 mm, en allan júlímánuð í
fyrra var hún 30, 4 mm. Heildar
úrkoma frá júlíbyrjun í ár og þar
til í gærkvöldi er orðin 74,7 mm.
Páll Bergþórsson veðurfræðing
ur tjáði blaðinu, að frá árinu 1931
til 1950 hefði mesta sólarhrings
úrkoma á tímabilinu júní-septem-
ber verið 33,4 mm, sem er 0,1
mm minna en í gær, og þau ó-
sköp hefðu ekki dunið yfir á ná-
lægt svona skömmum *tíma
Mikið hefur rignt S Reykjavík
I undanfarna daga. Stundum hefur
úrkoman verið slík, að illfært hef
ur verið milli húsa nema í vatns-
þéttum yfirhöfnum. Mjög er baga
legt í rigningartíð hve illa hús-
eigendur sjá um að halda rennum
á húsum sínum í lagi.
Mjög víða eru þakrennur ryðgað
ar sundur eða niðurfallið úr þeim
stíflað. Af þessum orsökum flóir
vatnselgurinn af húsþökunum ofan
á vegfarendur. Víðast hvar í mið
bænum eru gangstéttir allt of
mjóar og er það sama að segja
^um umferðargötur eins og Lauga
iveg. Veldur þetta því að gangandi
vegfarendur verða að hrökklast
út á akbraut undan fossaföllum
eða að fá dembuna yfir sig.
Einhver lög munu vera til um
að húseigendum beri skylda til að
sjá um að þakrennur séu í lagi, en
í allt of mörgum tilfellum er ekki
farið eftir þeim. Og ef þessir menn
sjá ekki sóma sinn í því að gera
við þakrennur sínar verður að
sjá svo um að það verði gert og
síðan verði viðkomandi húseigend
um sendur reikningur á sama hátt
og hreinsunardeild borgarinnar
gerir í þeim tilfellum að húseig-
endur hreinsi lóðir sínar.
Fengu hákarl í silunganet (
Reykjavík, GbG. Fimmtudag. alla von um að finna netið, um hákarl að ræða og enn á lífi.
Sá einstæði atburður gerðist
í Þorlákshöfn í gær, að 5 metra
langur hákarl veiddist í silunga
net þar rétt innan við plássið.
í fyrradag lögðu tveir menn
silunganet í bugnum austan við
þorpið en þar er; gjarnan dá-
góð silungsveiði í net. Þegar
þeir ætluðu að vitja um netið
í gær fundu þeir það ekki á
þeim stað, er þeir . höfðu lagt
það. Er þeir höfð{i gefið upp
sneru þeir heim á leið.
En skyndilga komu þeir auga
á dufl, sem þim fannst líkt
þeirra eigin duflum. Fóru þeir
að duflinu og drógu inn færið
og virtist vera allþungt í net
inu. Sem þeir höfðu togað inn
nokkuð af netinu, sem svo sann
arlega var þeirra eigið net,
kom upp feiknastór sporður,
alltorkennilegur. Vjð nánari at
hugun kom í ljós, að þarna var
Hann • hafði vafið netinu svq
rækilega utan um sig að hann
gat sig hvergi hreyft. Tókst
þeim félögum að draga ferlíkið
út að hafnargarði, en þar var
slegið um sporðinn og skepn
an dregin upp á gárðinn. Nú
hlakkaði heldur betur í eigend
um, þar eð gangverð á svo væn
um hákarli er um tíu þúsund
krónur. En þegar sérfræðingur
Framhald á Í5. siðu