Alþýðublaðið - 03.08.1966, Síða 1
Miðvikudagur 3. ágúst 1966 - 47. árg. - 172. tbl. - VERÐ 5 KR.
Svona gera þeir
í Kristiansand
ÍBÚANA í Kristiansand í S-
Noregi langaði mikið til að sjá
sænska og danska sjónvarpið,
eins og Vestmannaeyinga hef-
ur langað til að sjá myndirnar
frá Keflavík. Og Kristiansönd
urum hefur tekizt þetta án þess
að lenda í átökum við yfirvöld
in.
Áhugamenn um erlent sjón-
varp í Kristiansand stofnuðu
féiag, sem nefnist Skárdstad-
varden A/S. Félagið reisti 24
metra hátt mastur og' kom fyrir
öflugum s j ónvarpslof tnetum
efst á því. Síðan leiddu þeir
streng frá mastrinu inn í bæj
inn og línur til þeirra, sem vildu
gerast áskrifendur. Þeim kom
ekki til hugar að endursenda
út í loftið — það er óleyfilegt
endurvarp í Noregi — en loft
net og stengur er venjuleg
móttaka, enda þótt magnari sé
á línunni.
Þátttaka í þessari móttöku á
sænsku og dönsku sjónvarpi
(sem tekst mjög vel) kostar í
upphafi 600 norskar krónur og
síðan 50 kr. á ári. Alls munu
mannvirkin hafa kostað 35.000
norskar krónur.
Sjá frekar um þessi mál í
krossgötum á bls. 4.
31 ÞING
ALÞÝÐU-
FLOKKSINS
31. Þing Alþýðuflokksins
verður haldið í Reykjavík í
nóvembennánuði næstkom-
andi. SíSar verður tilkynnt
nánar um þingstaft og tíma.
Alþýguflokkurinn.
I BLIÐSKAPARVEDRI
Rvík.-þriðjudag.-GbG.
Dagurinn í gær og sunnudag-
urinn voru einstaklega hlýir og
góðir ferðadagar hér sunnanlands,
en nokkuð var livasst í gær og
olli það nokkru moldroki á veg
HRIKALEG
BILVELTA
Rvk. G.S.—GbG.
Fréttamaður blaðsins á Akur
eyri Gunnar Steindórsson, varð
áhorfandi að all-hrikalegri bíl
veltu skammt frá bænum Más-
koti á Mývatsheiði um sjö-leyt
jð á mánudagskvöld. Gunnar
var að koma frá Axarfirði og
rar á heimleið. Ók hann smá
tíma á eftir moskowitch bifreið
úr Reykjavík, sem ók mjög
hratt og glæfralega. Hafði hann
orð á því við samferðafólk sitt
að mikið mætti vera, ef ekki
hlytist af stórslys. Og í þeim
töluðu orðum tók bíllinn á rás,
þaut nokkrum sinnum á milli
vegarbrúna og tókst síðan á
loft í miklum sveig, strauk
toppnum snöggvast við veginn
og skildi eftir megnið af máln
ingunni, en hélt svo áfram
hringnum og staðnæmdist á
Framh. á 13. síðu.
tUUWMUV. :WUWWWUUUWWWWMUUUUWMU
um. Hitínn var um 20 stjg báða
dagana. Norðan og austanlands
var veðrið heldur leiðinlegra, eink
um var laugardagurinn dumbimgs
legur, þokuloft og lá við rigningu.
Mikill fjjöldi sótti út úr bæjum
um helgina, lauslega áætlað um
25 þúsund manns samtals. Á
skátamótinu á Hreðavatni voru
um 2000 manns en þangað komu
um 5000 manns til viðbótar á
sunnudag. X Þórsmörk voru um
5000 manns. Nokkuð mun hafa
verið um ölvun þar og all hávaða
samt um nætur, en ekki er vitað
um teljandi vandræði, utan þess
eina dauðaslyss, sem getið er ann
ars staðar í blaðinu. Á móti bind
indismanna í Húsafellsskógi voru
um 4000 manns. Fór mót það mjög
vel fram og engin óhöpp á fólki.
Lögreglan hafði strangar gætur á
því, að ekki væru- ölvaðir menn
innan girðingar og þeir fáu, er sá
ust með áfengi voru tafarlaust
fjarlægðir. í Vaglaskógi var sum
arhátíð bindindsmanna og voru
þar um 4000 manns, þegar flest
var. Sami háttur var hafður á
hvað snerti ölvaða menn og voru
þannig fjarlægðir 15-16 menn.
Var okkur tjáð eftir framkvæmda
stjóra mótsins, að mótið hefði í
alla staði verið hið ánægjulegasta.
Þá var Ungmenna- og íþrót1 a-
samband Austurlands með mikið
afmælismót í Atlavík, þar sem
meðferð áfengis var bönnuð.
Þarna var ýmislegt til skemmtun
Framhald á bls. 10.
Óvist um
dánarorsök
Rvík,—OTJ.
NÍTJÁN ára gamall piltur lézt í
Loftleiðavél á leið til Kaup-
mannahafnar sl. sunnudag, en
hann hafði orðið fyrir einhverju
áfalli í Þórsmörk um verzlunar-
mannahelgina. Á fundi með frétta
mönnum sagði Magnús Eggerts-
son, hjá rannsóknarlögreglunni
að emi væri ókunnugt um dánar-
orsök. Hinn látni hét Jón Guðni
Ingól-fsson, tii heimilis að Álfta-
mýri 6.
Jón Guðni hafði farið austur í
Þórsmörk ásamt nokkrum kunn-
ingjum sínum. Einn þessara kunn
ingja stóð við danspallinn um 12
leytið á laugardagskvöld þegar
einhver maður (hann man ekki
hver) hnippti í hann og sagði ann
aðhvort: „Nonni var sleginn" eða'-
„Nonni datt“. Er pilturinn ekki
viss um hvort var.
Hann fór því að huga að Jóni
Guðna og fann hann brátt liggj-
Framhald á 10. síðu.