Alþýðublaðið - 09.08.1966, Síða 15
SUNNUFERÐIR til sólarlanda
Vinsælar utanlandsferðir með íslenzkum fararstjórum.
Margra ára reynsía og' ótvjræðar vinsældir trygffja farþegum okkar snurðulaust ferðalag: undir
Ieiðsögn reyndra fararstióra, sem mörg ár í röð Iiafa farið sömu íerðirnar, viðurkenndar og vin-
sælar af þeim mörgu, sem reynt hafa. — Á síðasta ári komu yfir 800 ánægðir farþegar heim úr
SUNNU-ferðum og það sem af cr þessu ári hafa rúmlega 700 bætzt í þann lióp, eða fleiri en
farið hafa á sama tíma með öllum öðrum íslenzkum ferðaskrifstofum tjl samans. — Við auglýsum
a’aldan, því ánægðir viðskiptavinir komnir heim úr vel heppnuðum og skemmtilegum SUNNU-ferð
um, eru okkar bezta auglýsing. — Enda er svo komið, að nú er upppantað £ nær allar okkar
auglýstu ferðir, nema þær, sem hér eru auglýst ir j fyrsta sinn.
Lonci@si — Amsterdaan — Kanpmannahöfn
Brottfarardagar 14. ágúst og 4. september — 12dagar. — Verð kr. 11.800,00.
Þessar stuttu oe ódýru ferðir gefa fólki tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborgum
Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar. Milljónab orgin London, tilkomumikil og sögufræg höfuð-
borg heimsveldis með sfnar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam, heillandi og fögur með
fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í skapi. Og svo „Borgin við sundið“, Kaupmannahöfn
þar sem íslendingar una sér betur en víðast á erlendri grund. Borg í sumarbúningi með Tivoli og
ótal aðra skemmtistaði. Það er hægt að framlengja dvöl í ferðalok. Þessi stutta og ódýra ferð hef
ur átt vaxandi vinsældum að fagna með hverju óri. í fyrra voru farnar fjórar slíkar ferðir og
kornust færri með en vildu. í sumar er þegar bú ð að fara þrjár — allar fullskipaðar!
Fararstjórar: Jón Helgason og Þorleifur Guðm undsson.
(Uppselt, nema það, sem kann að losa vegna forfaila).
París — Rínarlönd — Sviss
Brottför 19. ágúst. — 17 daga ferð. Verð kr. 17.650,00,
Þessi vinsæla ferð hefur verið farin svo til óbr eytt í sjö ár og jafnan við miklar vinsældir, enda
fólk komið heim með óbrotgjarnar endurminningar. Fólki gefst hér tækifæri til að kynnast
nokkrum fegurstu stöðum Evrópu, í rólegri ferð. Flogið er til Par.ísar og dvalið þar í borg feg-
urðar og gleði sólríka sumardaga. Frá París er flogið til Sviss, skroppið í skemmtiferð suður yf-
ir fjallaskörðin til ítalíu. Frá Sviss er farið fljúgandi til Rínarlanda, og dvalið í fjóra daga við Rín
í Rudesheim, einum frægasta skemmtanabæ við sögufræga Rín. Þar er „Vínhátíðin", þar sem
drottningin er krýnd. Farið er í ökuferðir um Rjnarbyggðir og siglt á fljótinu með skemmtileg-
um farþegaskipum. — Fararstjóri Jón Helgason.
(Uppselt, nema það sem losna kann vegna forfalla).
Edinborgarhátíöin
Brottför 27. ágúst. — 7 daga ferð. Verð kr. 7.210,00,
Þessi vinsæla ferð hefur verið farin á hverju ári í sex ár og jafnan fullskipuð. Fara allmargir ár-
lega, enda er Edinborgarhátíðin mikilfenglegasta listahátíð álfunnar, auk þess sem Edinborg er
mjög fögur borg, og ánægjulegt að dvelja þar sólheita sumardaga. Farið er í skemmtiferðir
upp í hálendi Skotlands og hin fögru vatnahéruð en jafnan komið heim á hótel í Edinborg að
kvöldi, Hægt er að framlengja dvölina og skrep pa til London.
Fararstjóri Gunnar Eyjólfsson, leikari. — (4 sæti laus).
ítalía -
septembersól
Brottför 21. september —
21 dagur. —
Verð kr. 21.300,00.
Þessi lúxusferð er mun ódýrari en aðrar hliðstæð ar ferðir vegna hagkvæmra viðskiptasambanda
SUNNU á Ítalíu. .. Flogið til Milano og ekið þaðan um fegurstu byggðir ítalfu, með 3 — 4
daga viðdvöl í bessum borgum: Feneyjum, hinni „Fljúgandi borg“ ævintýra, söngs og sögu. Um
ferðin Ijður fljótandi um skurðina frægu, milli skrauthalla og hótela. Florenz, hin fagra höfuð-
'borg listanna á miðöldum Ítalíu. Róm eru helgaðir fimm dagar, því að þar er margt að sjá. Frá
Róm liggur leiðin suður um Napoli, Pompei til Sorrento, hinnar undurfögru borgar við Caprí-
flóann. Skroppið er út til Capri. Eftir ökuferðir u m fegurstu byggðir ítalíu kemur að þvf ævintýri
ferðarinnar að sigla með einu glæsilegasta lrafskipi heims, risaskipinu Michelangelo (63 þús.
smál, að stærð) og ganga á land í Cannes á frönsku Rivieran og aka síðan til Nizza, þar sem
dvalið er síðustu daga ferðax-innar. Frá Nizza er flogið heirn með viðkomu í London, þar sem
hægt er að framlengja ferðinni, ef óskað er.
Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson, rithöfundur, — (2 sæti laus).
Btalía og Spánn
Brottför 23. september. — 21. dagur. — Vérð kr. 24,860,00.
Þessi óvenjulega og glæsilega ferð var farin í fyrsta sinn í fyrra, fullskipuð og komust færi’i
en vildu. Hefur fólki ekki áður gefizt kostur á að kynnast bæði Ítalíu og Spáni í einni og sömu
ferðinni.'Flogið er til Feneyja og dvalið þar. Flogið til Rómar og dvalið þar í nokki-a daga, til
Napoli og alla ieiC til Soi-rento. Frá Napoli er sfðan siglt með glæsilegu hafskipi til Spánar. Það
an er ekið til Torremolinos, baðstx-andarbæjarin s fræga á Sólströnd Spánar. Frá Sólströndinni er
flogið til Madrid og að dvöl lokinni þar, er floigið til London og höfð þar tveggja daga viðdvöl.
Fararstjóri: Jón Helgason. — (Uppselt, nema það, sem losna kann vegna forfalla).
Ævintýraferðin til Aysturlanda
Brottför 7. október. — 21 dagur. - Verð 23.700,00.
Þeir möx-gu, sem tekið hafa þátt í þessum vinsæl u ferðum SUNNU á ævintýraslóðir Austurlanda,
eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim undr um og furðum, sem fyrir augun ber. Flogið er
til London og þaðan til Aþenu,, þar sem dvalið er { tvo daga. Flogið til Beirut. Skoðaðir leyndar
dómar þessarar frægu borgar vegamóta í Austurlöndum nær. Heimsóttir persneskir teppasalar í
fríhöfninni. Frá Beirut er flogið til Kairo og dva lið á góðu hóteli á bökkum Nílar. Frá Kaix-o er
flogið til Jerúsálem, dvalið í fimm daga og skoð aðir allir helztu sögustaðir Biblíunnar. Frá Jerú-
saleni er flogið til London og hægt að framlengja dvöl ef óskað er. Fararstióri: Guðni Þórðar-
son. — (Uppselt nema það, sem losna kann vegna forfalla).
Ferðaskrifstofan
Nýjar ferðir
auglýstar í fyrsta sinn
Malforka - Kaupmannahöfn
8. sept. og 22. sept. — 19. dagar. — Verð kr, 12,600,00,
Þessar ótrúlega ódýru ferðir til hinna sólríku Spánarstranda og
glaðværu Kaupmannahafnar verða tvær í september, vegna fjölda
áskorana, Við getum haft þær svona ódýrar vegna þess að vin-
sældir þeirra leyfa, að teknar eru heilar flugvélar á leigu, sem
flytja farþegana á miili áfangastaða og hótelin gefa SUNNU
beztu fáanleg kjör, vegna þess, að skrifstofan semur um fyrir
rúmlega 600 gesti yfir árið.
Búið er í tvær vikur á glæsilegum baðstrandarhótelum með einka
Sundlaugum og baði .með hverju herbergi, aðeins 7 km. frá miðri
höfuðborginni Palma. Mallorca er vinsælasti ferðamannastaður
ihn í Evrópu í dag, enda fær fólk þar allt, sem hui’urinn girnist.
Sól, náttúrufegurð og fjölbreytt skemmtanalíf, góð hótel og góð-
an mat. Á heimleiðinni er stanzað fjóra daga í hinni giaðvæni
Kaupmannahöfn. Innifalið í verði ferðar eru flugferðir, ferðir
milli flugvalla og hótela, gisting og þrjár máltfðir á dag á Mall
orku og gisting og morgunverður í Kaupmannahöfn.
Fararstjóri: Þorleifur Guðmundsson.
(Uppselt í ferðina 8. september. — Nokkur sæti laus 22. sept.)
Kaupmannahöfn (Hamborg) Edinborg
21. september. — 10 dagar. — Verð kr. 6,900,00.
Þessi ódýra og vinsæla haustferð var farin í fyrsta sinn í fyrra.
Ferðin er svona ódýr vegna þess að S.UNNA leigir eina af milli-
landaflugvélum Flugfélags íslands til ferðarinnar. Dvalið er í
hinni glaðværu Kaupmannahöfn, skroppið í tvo daga til Ham-
borgar og stanzað \ sólarhring í Edinborg á heimleiðinni. Þó
þessi ferð sé nú auglýst í fyrsta inn eru margir búnir að panta
af þeim, sem voni með í fyrra.
Fararstjórar: Geir Aðils og Guðni Þórðarson.
í SUNNUFERÐUM
eru eingöngu notuð góð hótel. Flogið lengstu leiðirnar og ekið
eingöngu þar sem landsfegurð er mest. Kjörorð okkar eru: Aðeins
það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum'sjálfmn
okkur ekkj einkunn, en spyrjið þá mörgu, sem reynt liafa
SUNNU-ferðir og veVa þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur verð
og gæði annarra ferða — og vandið valið. Biðjið um nákvæma
ferðaáætlun og pantið snemma, því yfirleitt komast aldrei allir,
sem vilja í SUNNU-ferðir. Það eru ferðir, sem fólk getur treyst,
og síðast en ekki sízt: — SUNNA auglýsir aldrei ferð, sem ekki
fprÍRt
-iokei oKkar á Mallorka.
SUNNA
Bankastræti 7
Símar 16400 og 12070.