Alþýðublaðið - 11.08.1966, Blaðsíða 2
owiwwhwwtawiw'
eimsfréttir
f....siáastlidna nótt
SAIGON: 15 óbreyttir borgarar biðu bana og 182 særðust
þegar bandarískar sprengjuflugvélar réðust á þorp á Mekongósa-
svæðinu í Suður-Vietnam, þar sem talið vai: að hermenn Viet-
cong leyndust. Óstaðfest frétt hermir, að Vietcongmenn hafi
iátið skot dynja á þorpsbúa er reyndu að flýja. Aðeihs þrír
Vietcongmenn fundust særðir.
DJAKARTA: Malaysískum fulltrúum verður tekið með mik
illi viðhöfn þegar þeir koma til Djakarta í dag til að undirrita
samning er bindur enda á hina óyfirlýstu styrjöld landanna,
sem staðið hefur í þrjú ár. Tun Abdul Razak utanríklsráðherra
undirritar samninginjji fyrir hönd Malaysíu, en í fylgd með lion-
um verða 50 ráðherrar og embættismenn. Á föstudaginn fer Adam
Malik, utanríkisráðherra Indónesíu, til Kuala Lumpur.
KUALA LUMPUR: Samtímis því sem friður er formlega að
komast á með Indónesíu og Malaysíu hefur Malaysíustjórn mikl
ar áhyggjur af hinum nýju hryðjuverkum kommúnista, er kost-
að hafa tíu mannslíf til þessa. Forsætisráðherra Malaysíu,
, Tunku Abdul Rahman, sagði í gær að hann væri undir það
. sbúinn að uppreisn kommúnista frá áranum 1948—60 brytist
út á nýjan leik, enda væru kommúnistar óánægðir með friðar
, samninginn.
J. .
TOKIO: Ný yfirlýsing um menningarbyltinguna í Kína
var lesin upp í Peking-útvarpinu í gær. Þar er játað, að
',„frávik“ liafi átt sér stað í vissum lilutum Kína. Fólk hef
ur gengið í ranga átt, segir í yfirlýsingunni. Mao Tse-tung
flokksformaður hefur samið skjöl, sem fjalla um markmið og
' leiðir byltingarinnar og aukinn pólitískan aga, segir ennfremur.
MANILA.: Forsætisráðherra Suður-Vietnam, Cao Ky mar-
skálkur, sagði í Manila í gær, að hann væri 1.000 prósent viss
um, að kommúnistar mundu bíða ósigur í Vietnam. Hann er
í fjögurra daga heimsókn á Filippseyjum.
MOSKVU: Sovézka stjórnarmálgagnið „Izvestia" liélt því
fram í gær, að einkabankar og kaupsýslumenn í London,
Ziirich, Vín, Vestur-Berlín og öðrum vestrænum borgum skipu
legðu brask með gjaldeyri er beint væri gegn Sovétríkjun-
um. Blaðið sakaði „vissa erlenda diplómata“ og fjölda kaup
sýslumanna og ferðamanna frá Vestur-Evrópu og Líbanon
um að vera flæktir í braskið. Því er haldið fram að ferð-
ir gjaldeyrissmyglara til Sovétríkjanna séu skipulagðar.
Bítlarnír til
Bandaríkjanna
LONDON, 10. ágúst (NTB-
Reuter). — Brezku Bítlarnir
halda í hljómleikaferð til
Bandaríkjanna á morgun þrátt
fyrir uppnám það sem þeir
hafa vakið þai- vegna ummæla
sinná um trúmál. Það var John
Lennon sem mun hafa sagt í
blaðaviðtali, að Bítlarnir væru
vinsælli en Jesús, og hljóm-
leikaferðin mun sýna hvað
hæft er í kenningum hans.
Talsmaður Bítlanna viidi ekk
ert segja um liina fjandsam-
'legu afstöðu bandarískra út-
varpsstöðva við athugasemdum
Lennons, en benti á að við-
brögð manna hefðu ekki ver-
ið aðeins fjandsamleg. hvorki
í Bandaríkjunum né annars
staðar, t. d. hefði „Kristeligt
Dagbiad" í Kaupmannahöfn
sagt að Lennon hefði á réttu
að standa. „Jesús var krossfest
ur, en Bítlarnir urðu vinsælir",
sagði blaðið. Fulltrúi Bítlanna,
Brian Epstein, sem fór til New
York í síðustu viku til að
reyna að lægja reiði Banda-
ríkjamanna, sagði að ummæli
Lennons hefðu verið slitin úr
samhengi.
Ummæli Lennomns voru birt
í kvöldblaði í London og end-
urbirt í bandarísku blaði. Að
sögn blaðsins sagði Lennon:
„Við erum vinsælli en Jesús
núna. Ég veit ekki hvort hverf
ur fyrr rock and roll eða krist
indómurinn". ‘
WWtWWWWWVWWWWMWMWWWWUWVMiWHW
Víkinga-
skipíð
tilbúið
Reykjavík OÓ.
LOKIÐ er viff smíffi á vík-
ingaskipinu sem notaff vcrffur í
sambandi viff kvikmyndun Völs-
ungasögu. Skipiff er smíffaff í
Skipasmíðastöð Njarðvíkur og verð
ur í dag' flutt landleiðina austur
að Dyrhólaey og sjósett þar.
Það er þýzka kvikmyndafélagið
CCC Film sem er að gera kvik-
myndina og verður hluti hennar
afhent verða mjög falleg verð-
er. Kvikmyndatökumenn og leikar
ar munu koma til landsins síðar
í þessum mánuði og er áætlað að
kvikmyndunin hefjist 19. ágúst.
Meðal atriða sem tekin verða
hérlendis er þegar Sigurður Fáfn-
isbani leggur skipi sínu að landi
og verður það við Dyhólaey.
Skipið er smíðað upp úr gömlum
nótabát. Hefur verið bætt ofan
á hann nokkrum borðum og feikn
Geta má þess að fréttaritari
Skipið, sem er um 12 lestir
að stærð er skarað skjöldum og
hefur eitt mastur að fornum
sið, og mikið segl. Að minnsta
kosti fimm menn þarf til að sigla
skipinu, en það er búið hjálpar-
Framhald á 11. síðu
w- ■ • ■
Bandarískar þotur
ráðast á þorpsbúa
SAIGON, 11. ágúst (NTB-Reut
er). — 15 óbreyttir borgarar voru
drepnir og 182 særðust i gær
þegar bandarísk sprengjuflugvél
réffist á þorp nokkurt í Suður-
Vietnani, þar sem talið var að
Vietcongmenn hefðust við. Óstað
fest frétt hermir, að Vieteong
menn hafi Iátiff skot dynja á þorps
búum til aff koma í veg fyrir að
þeir flýðu þcgar árásin var gerð.
Affeins þrír Vietconginenn fund-
ust særðir.
Fréttir um orsök árásarinnar
eru mótsagnakenndar, en þorpið
er á Mekongósasvæðinu. Banda-
rískur formælandi segir, að það
hafi verið suður-vietnamisk yf-
irvöld sem fóru fram á það við
Bandaríkjamenn, að þeir gerðu
árás á svæðið, en leyniþjónustu-
skýrslur hermdu að 150 Vietcong
menn hefðu sézt þar. Tvær
sprengjuþotur af gerðinni F-100
Super-Sabre lét sprengjum rigna
yfir svæðið eftir að Vietcong-
menn höfðu skotið á bandaríska
könnunarflugvél, sagði talsmaður-
inn.
Fréttir frá þorpinu lierma, að
Margir falla I
óeirðum í Assasn
SHILLONG, 10. ágúst (NTB-
Reuter). — Margir menn biðu
bana effa særðust þegar indversk
ir hermenn gerðu skotárás á
mannfjölda, sem gerði árás á
stjórnárskrifstofurnar í Shillong
í indverska fylkinu Assam í dag.
Átökin fylgdu í kjölfar mótmæla
a'ðgerða, sem stúdentar efndu til
í mótmælaskyni við matvælaskort
og hátír verðlag.
Ekki er vitað með vissu um
fjölda-þeirra sem biðu bana.
Óháða blaðið „The Statesman"
í Nýju Delhi sagði í dag, að inn
anríkisráðlierrann væri sannfærð
ur um, að kommúnistar sem
fylgja Pekingstjórninni að málum,
liyggðust koma af stað skemmd-
arverkaaðgerðum um allt landið,
en að undanförnu hafa verið unn
in mörg skemmdarverk á járn-
brautalínum. Innanríkisráðherr-
ann hefur komizt að þessari nið-
urstöðu eftir að hafa kynnt séi
leyniþjónustuskýrslur um fu»i,
sem kommúnistar héldu .• lenali
í fylkinu Andhara í júlí.
íbúarnir hafi reynt að telja Viet
congmennina á að skjóta ekki á
Framliald á 11. síðu
Orsök og
! afleiöing
NEW YORK, 10. ágúst
(NTB-Reuter) - Nokkur
sjúkrahús í New York hafa
skýrt frá því að barnsfæð-
ingum hafi fjölgað verulega
í þessari viku, en um þess
ar mundir eru liðnir níu
mánuðir síðan New York og
allstór hluti Bandaríkjanna
myrkvaðist vegna rafmagns
bilunar.
Félagsfræðingurinn Ro-
bert Hodge, sem vinnur að
því. að semja skýrslu um
rafmagnsbilunina segir m.a.
að gögn þau sem hann hafi
undir liöndum sýni að flest
ir hafi dvalizt á heimilum
sínum þegar rafmagnið fór
af, en það gerði m a. það
að verkum að sjónvarpstæki
stöðvuðust. Því sé ástaeða
til að ætla að töluverð kyn-
mök hafi átt sér stað.
11. ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ