Alþýðublaðið - 28.09.1966, Síða 7

Alþýðublaðið - 28.09.1966, Síða 7
28. september 1966 -- ALÞÝÐUBLADiÐ 'J BREYTINGAR þær, sem danski forsætisráöherrann, Jens Ottó Krag, hefur gert á stjórn sinni, Ihafa vakið mikla athygli. í fyrsta lagi gerði hann þessar breyting ar með svo stuttum fyrirvara, að honum igafst ekki tími til að segja Ihinum raðherrum stjórnarinnar frá ,og í öðru lagi kom það mjög á óvart, að utanflokkamaður var skipaður ,,markaðsmálaráðherra.“ Nýi ráðherrann, Tyge Dahlgaard thefur um nokkurra ára skeið ver ið aðalfulltrúi Dana í aðalstöðvum Efnahagsbandalags Evrópu (EBE) í Briissell. Lengi hefur verið um það rætt að koma á fót sérstöku ráðuneyti, er fjalla skuli um er- lend markaðsmál, og hefur Vinstri flokkurinn (bændaflokkurinn) eink um beitt sér fyrir því. Krag hefur lengi leitað að sérfræðingi, sem gæti tekið þetta m'ál að sér. Fyrst bauð hann Ivar Nörgaard efna- Ihagsmálaráðherra starfið ,en þeg ar hann hafnaði boðinu, sneri hann sér til Dahlgaards oig var hann tilleiðanlegur. Daiilgaard tekur eiginlega að sér yfirstjóri tveggja ráðuneyta, verzlunarmálaráðuneytisins og imarkaðsmálaráðuneytisins. Lars P. Jensen verzlunarmálaráðherra hefur óskað eftir lausn frá em bætti svo að hann geti tekið að sér formennsku í landssambandi neytendasamtakanna í Danmörku. Hann er einn af framámönnum samvinnuhreyfingarinnar og bauð stjóm sambandsins honum starfið. Þessu hefur nú verið komið í kring, og Lars P. hætti störfum sínum í ríkisstjórninni 23. sept. um leið og Dahlgaard tók sæti í Ihenni. ★ TVÖ EMBÆTTI SAMEINUÐ Hinn nýi verzlunarmálaráðherra (og markaðsmiálaráðhen-a) segir í viðtali við „Ak,tuelt“ (m,álgagn jafnaðarmanna), að embætti hans í stjórninni sé nýstárlegt, þar sem í rauninni 'hafi tvö embætti verið sameinuð. Tíma sínum muni hanri að miklu leyti verja til að starfá í verzlunarmálaráðuenytinu, en helzta nýmælið í embætti hans séu markaðsmálin. Markaðsmála nefnd undir forsæti utanríkisráð herrans muni taka til starfa í ut anríkisráðuneytinu, en heyra und ir hann. Hækkerup utanrikisráðherra hef ur liingað til farið með markaðs málin, en þeim verður nú létt aT honum, að vísu með öðrum hætti en ætlað var í fyrstu. Áður hefur m.a. verið gefið í skyn, að skipað ur yrði aðstoðarutanríkisráðherra sem færi með markaðsmálin, en Hækkerup hefur fallizt á þá skip an m'ála, sem Krag forsætisráð herra héfur ákveðið, í samráði við Dahlgaard. ..Aktuelt" spurði Dahlgaard að því, hvers vegna hann hætti störf um sínum í utanríkisþjónustunni til þess að skipta sér af stjórn málum. Dahlgaard svaraði því til að hann hefði ekki hætt störfum sínum í utanríkisþjónustunni held ur fengið orlof á þeirri forsendu að hann gæti horfið aftur til ut anríkisþjónustunnar. 4r UNGUR MAÐUR. Dahlgaard ráðherra er tiltölu lega ungur maður eða 45 ára að aldri. Hann er sonur hins kunna leiðtoga róttæka flokksins, Bert el Dahlgaards fv. ráðherra, en þar með er ekki sagt að sonurinn sé áhangandi sama stjórnm.flokki og faðir hans. Hann er ekki með limur í neinum stjórnmálaflokki Hinn nýi mstrkaðsmálaráðherra, Tyge Dahlgaard til vinstri, Lars P. Jensen verzlunarmálaráðherra og Jens Otto Krag forsætisráðherra. HELVEG PETERSEN sérfræðingur dönsku stjórnarinn-] ar í afvopnunarmálum. 1] hafnaði boðinu. en er hvað sem öðru liður „vinstri sinnaður“. í viðtalinu við ..Aktuelt“ segir hann, að ákvörðunin um að igerast stjórnmálamaður hafi ekki verið1 erfið. Ég ólst upp í pólitísku and rúmslofti, og faðir mann hóf stjórn málaferil sinn þegar hann var em bættismaður, sagði Dahlgaard. Að spurður hvort harm væri jafnað armaður, sagði Dahlgaard ,,já og nei“. Allt frá unglingsárum sín- um hefur hann haft mikla sam úð með jafnaðarstefnunni. Af þessum ástæðum hafi ákvörðun in um að taka sæti í jafnaðar— mannastjórn ekki verið erfið, enda telji hann aðild að stjómmála flokki ekkert aðalatriði. í Dan- mörku sé ekkert stórt djúp stað- fest milli stétta og stjórnmála- flokka. Dahlgaard kveðst ekki hafa í hyggju að ganga í Jafnaðarmanna flokkinn, en hann muni sitja fundi þingflokksins. Aðspurður hvenær Danmörk muni sækja um upptöku í EBE sagði ráðherrann, að engin breyt ing yrði gerð á stefnunni í mark aðsmálum í bráð. En Danir verðl j að fylgjast náið með þróun þeirri sem hafiri sé í Evrópu. Forsendurn ' ar eru í þann veginn að breytast, sagði hann. Blöðin í Danmörku eru flest þeirra skoðunar, að Krag hafi ver ið heppinn í vali sínu og að stjórn in hafi treyst sig í sessi. Sjálf ur sagði Krag forsætisráðherra: Við munum halda áfram þeirri stefnu, að stuðla að því að markaðs málin í Evrópu verði leyst 'á breið um grundvélli, og ég held að Tyge Dahlgaard sé rétti maðurinn til að móta þessa stefnu . En hvað finnst Bertel gamla Dáhlgaard um það að sonur hans taki sæti í hreinni jafnaðarmanna stjórn? Blaðið „Aktuelt" hefur reynt að fá úr því skorið, en Dahl gaard gamli svaraði „diplómatískt Ég hef aldrei skipt mér af mál- efnum sonar míns síðan hann náði 18 ára aldri. ★ „AFVOPNUNARSENDI- SENDIHERIIA." Krag forsætisráðherra liefur fengið annan mann til stai'fa úr röðum þeirra manna, sem standa nærri Róttæka flokknum (Radikale venstre.) Helveg Petersen þingmað ur og fyrrum menntamálaráðherra tekur nú við starfi svokallaðs ,,af vopnunarmálasendiherra". Þegar forsætisráðherrann minnt ist á þá hugmynd, að slíkt embætti yrði stofnað í sumar ('á Rebildhátíð inni), fékk hún fremur misjafnar undirtektir. Fyrst var Frode Jak obsen þingmanni boðin staðan, en hann afþakkaði, og var þá stað an boðin Petersen, sem féllst á að taka hana að sér. Enn sem komið er, er ekki litið á stöðuna sem sendiherraembætti Helveg Petersen situr enn á þingi : I sem fulltrúi róttækra og gréih argerðinni um starf hans sem faY gjafa í afvopnunarmálum segir tti. a.: Einn liðurinn í starfi yðar vefð ur að fylgjast með afvopnunar um ræðunum í Genf, á vettvangi SÍ> og annarra alþjóðasamtaka. í þeséLi sambandi er mikilvægt að náiri samvinna sé höfð við hin Norður löndin, ekki sízt Svíþjóð, sem á fulltrúa á 18 ríkja ráðstefnunni i Genf. Orðrómur hefur vefið á kreiki um, að Helveg Petersen 'hafi véi* ið boðið r'áðherraembætti, en Krag forsætisráðh. hefur vísað þessum orðrómi eindregið á bug. Slíkt tilboð hefur ekki legið fyrir og- mun ekki liggja fyrir, sagði Krag Hins vegar er það engin furða að ýmsir þeir, sem vel fylgjast með gangi mála, skuli líta á bréýt ingarnar sem tilraun til að bæta sambúð jafnaðarmanna og Rot- tæka flokksins. ÁBYRGÐ Á HÚSGÖGNUM Athugið, að merki þetta sé ó húsgögnum, sem óby rgðarskí rteini fyigir. Kaupið yönduð húsgögn. HÚSGAGNAMEISTARAFÉLAG REYKJAVÍKUR fyígist mol Maldssopni í Ssmvinnunni eftir Tarjei Vesaasj Auglýsingasími AEþýSublaðsins er 14906 KASTLJÓS

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.