Alþýðublaðið - 29.09.1966, Blaðsíða 7
nyir
söluskilmálar
olíufélaganna
í MEIRA en tvo áratugi hefur álagning á vörur þær,
sem olíufélögir selja verið ákveðin af verðlagsyfir-
völdum. Segja má, að allan þann tíma hafi álagning
á fuelolíu, gasolíu og bílabenzín verið þannig ákveð-
in, að hún hafi tæplega staðið undir kostnaði við inn-
flutning og dreifingu á þessum vörum, hvað þá, að
sala þeirra skilaði eðlilegum hagnaði. Fjármagnsþörf
olíufélaganna, til þess að standa undir aukinni sölu
og vegna þynningar gjaldmiðilsins hefur hins vegar,
svo sem augljóst má vera, aukizt ár frá ári.
STEFNA verðlagsyfirvalda hefur því óhjákvæmilega
leitt til þess’ að olíufélögin hafa stöðugt orðið að leita
til viðskiptabanka sinna um aukin lán til þess að
standa undir auknum innflutningi og hækkandi kostn-
aði. Viðskiptabankarnir hafa eðlilega talið þessa þró-
ua bæði óæskilega og hættulega.
AF þessum ástæðum var svo komið í júlímánuði sl.,
að vikskiptabankar olíufélaganna synjuðu um opnun
ábyrgða fyrir olíuförmum Irá Rússlandi’ og hélzt það
ástand fram yfir miðjan ágústmánuð, en á því tíma-
bili höfðu útflytjendur í Rússlandi sent þrjá olíu-
farma til félaganna, án þess að ábyrgðir væru opnað-
ar fyrir þeim samkvæmt gildandi samningum við
Rússa, sem ohufélögin hafa tekið að sér að fram-
kvæma í umboði ríkisstjórnarinnar sem samningsað-
ila gagnvart hinum rússnesku útflytjendum.
TIL ÞESS að koma í veg fyrir að olíuinnflutningur
stöðvaðist, féllust bankarnir loks á, að opna nauð-
synlegar ábyrgðir, gegn því skilyrði, að olíufélögin
tækju upp nýja hætti, að því er varðar útlán og inn-
heimtu. í samræmi við þetta hefur riú verið ákveðið,
að taka upp í allri olíusölu staðgreiðsluviðskipti, að
svo miklu leyti sem mögulegt er. Til þess að hvetja
til staðgreiðsluviðskipta hafa verðlagsyfirvöld heim-
ilað olíufélögunum að taka sérstakt aukagjald, ef
viðskipti eru ekki staðgreidd.
Samkvæmt þessu gilda eftirfarandi
reglur f rá 1. október n. k.
1. Öll smásala frá benzínstöðvum skal fara fram
gegn staðgreiðslu. Ef um félög eða firmu
er að ræða, sem hafa minnst 5 bíla eða
tæki, er heimilt* að selja gegn mánaðar-
viðskiptum, enda sé greitt aukagjald, kr.
25.00 fyrir hverja afgreiðslu, vegna vinnu
við bókhald og innheimtu.
2. Öll sala til húsakyndingar skal fara fram
gegn staðgreiðslu. Ef viðskiptamaður af ein-
hverjum ástæðum greiðir ekki við afhend-
ingu vörunnar skal reikna sérstakt auka-
gjald. kr. 100.00 fyrir hverja afhendingu,
vegna vinnu við bókhald og innheimtu.
3. Önnur vörusala olíufélaganna beint til not-
enda skal að jafnaði vera gegn staðgreiðslu.
Þó skal olíufélögunum heimilt að semja við
stóra viðskiptamenn um mánaðarviðskipti,
enda greiði þeir sömu aukagjöld og um
getur í 1. og 2. grein. Skulu þeir greiða út-
tektir sínar fyrir 15. dag næsta mánaðar
eftir úttektarmánuð.
4. Hafi mánaðarviðskiptamaður ekki greitt
' skuld sína að fullu fyrir lok greiðslumán-
aðar, skal reikna honum dráttarvexti, 0,83%
á mánuði, miðað við skuld í lok úttektar-
mánaðar, að frádregnum innborgunum í
greiðslumánuði. Jafnframt skal stöðva
reikningsviðskipti og hefja venjulegar inn-
heimtuaðgerðir.
Reykjavík, 15. september 1966.
Olíuféldgið h.f.
✓
Olíuverzlun Islands h.f.
Olíufélagið Skeljungur h.f.
29. september 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J