Alþýðublaðið - 22.11.1966, Side 3
Danir kjósa í dag
KAUPMANNAHÖFN, 21. nóv.
(NTB) — Kosningabaráttunni í
Danmörku lauk I kvöld með sama
hætti ogr hún hófst fyrir þremur
vikum: Meff yfirlýsing-um um sölu
skattinn. Um helgi'na boðaffi Gru-
enbaum, fjármálaráðherra, aff
breytingar yrffu gerðar á sölu-
skatt-sfnimvarpinu, og var ætlunin
að hér yrði um hápunkl kosninga-
baráttu jafnaffarmanna að ræffa.
En nú hafa jafnaffarmenn breytt
um skoffun og Krag forsætisráff-
herra sagði á blaffamannafundi í
dag, aff breytingarnar yrffu Iátnar
bíffa fram jTir kosningar vegna
gagnrýni þeirrar, sem þaff hefur
sætf af hálfu hinna flokkanna, aff
slíkar mikilvægar tillögui- skuli
bornar fram á Iokastigi kosninga-
baráttunnar.
Þar sem kosningabaráttunni er
nú lokiff, beinist áhugi manna að
sjálfum kosningunum og breyting
um þeim, sem þær kunna að hafa
í för með sér. Menn virðast enn
vera almennt þeirrar skoðunar,
að íhaldsflokkurinn og Sósíalist-
íski þjóðflokkurinn vinnj nokkuð
á, en jafnaðarmenn tapi nokkrum
þingsætum. Enginn þorir að spá
nokkru um, hvort sósíalistísku
flokkarnir verði í meiri'hluta á;
næsta þingi eða ekki.
3,3 milljónir manna eru á kjör-
skrá, og um 80% greiða venjulega
atkvæði. 200.000 kjósa í fyrsta
sinn, og þó að þetta sé ekki ýkja
stór fjöldi geta ungu kjósendurn-
ir haft mikil álirif á úrslit kosn-
inganna, ekki sízt vegna þess, að
margir þingmenn voru kjörnir
með naumum meirihluta í síðustu
kosningum. En talið er, að flestir
hinna nýju kjósenda kjósi annað
hvort íhaldsflokkinn eða Sósíal-
istíska þjóðflokkinn.
Afstaða Róttæka flokksins (ra-
dikala venstre) þykir forvitnileg.
Flokkurinn tapaði fylgi vegna sjö
ára stjórnarsamvinnu við jafnað-
armenn og hefur nú náL'gazt sjón-
armið Vinstri flokksins (mið-
flokksins) og íhaldsflokksins, án
þess þó að binda sig með loforð-
um um stjórnarsamvinnu. Flokk-
urinn telur, að mynda vérði stjórn
á sem breiðustum grundvelii, en
ef minnihlutastjórn verður mynd-
uð á ný, er jafn hugsanlegt að
liann stj'ðji hreina jafnaðarmanna
stjórn og samsteypustjórn Vinstri
flokksins og íhaldsflokksins.
Þingleiðtogi róttækra, Karl
Skytte 'hefur sagt, að skjlyrði það,
sem flokkurinn setji, sé að stjórn-
in sýni vilja og getu til að vinna
saman og fylgi hvorki sósíalista-
stefnu né íhaldsstefnu. Ef róttæk-
Framliald á 14. síffu.
tti
Stálu skartgripum
fyrir eina milljón
Mikil bleyta á
öllurra vegum
Rvík, ÓTJ.
Mikiff vatnsveffur liefur veriff
um land allt nokkra síðustu daga
og vegir því blautir og sumsstaff-
ar erfiöir yfirferffar. Hjörleifur
Ólafsson hjá vegaeftirljtinu tjáffi
blaffinu aff miffaff við affstæffur
yrffi færffin aff teljast all sæmileg.
Hér sunnan lands er allt í lagi
og einnig austur úr. Mýrdalssand-
ur var lokaður yfir helgina en nú
er búið að opna hann. Vestur-
landsvegur er sæmilegur upp í
Borgarfjörð og Dali og austur í
Reykhólasveit. Sömuleiðis á Snæ-
fellsnesi en þó er þar töluvert úr-
rennsli. Hvammsá í Hvammsfirði
rann yfir veginn fyrir helgi, en
búið er að lagfæra hann.
Vestfirðir eru þokkalegir yfir-
ferðar t.d. fært frá Patreksfirði
tiL bæði Rauðasands og Arnar-
fjarðar. Einnig er fært milli Dýra
fjarðar og Önundarfjarðar. Á ísa-
firði hefur rignt gríðarmikið og
er ófært vegna skriðufalla til Bol-
ungai*víkur og Súðavíkur.
Flestir vegir eru færir á Norð-
urlandi t.d. til Akureyrar og á-
Framhald á 14. síffu.
Rvík, ÓTJ. I sonar aff Skólavörffustíg 3 í fyrri-
ÚRUM og skartgripum fyrir um nótt. Rannsóknarlögreglan kom á
þaff bil eina milljón króna var staffinn um kl. níu í gærmorgun
stolið úr verzlun Helga Sigurffs-1 og sex tímum síffar hafffi hún
Hlekktist a vegna isingar
Rvík, ÖTJ,
Tveggja hrcyfla vél af gerðinni
Curtiss Commando hlekktist á í
flugtaki á Keflavíkurvelli sl. laug
ardag. Ekki voru affrir í henni en
tveir flugmenn og sluppu þeir báð
ír ómciddir. Ástæffan mun hafa
verið sú aff mikiff ískrap var á
vinstri væng vóTarjnnar og af-
þakkaði flugmaffurinn boff um aff
hreinsa þaff burtu áffur en hann
tæki á loft.
Þegar svo að því kom lyftist
hægri vængurinn en sá vinstri
ekki svo að flugvélin sentist út
af brautinni og skemmdist mjög
mikið. Vélin er eign flugfélagsins
Caroline Aircraft Inc. í Banda-
ríkjunum og var á leið tii Flor-
ida með varning.
Commando vélarnar eða C-46
eins og þær eru jafnan kallaðar
Framhald á 14, síðu.
>
handtekið þjófana og endurheimt
þýfiff.
Leifur Jónsson hjá rannsóknar-
lögreglunni sagði Alþýðublaðinu
að meðal gripanna hefðu verið
um 400 úr og ógrynni af armbönd
um, festum, hringum og öðrum
skrautmunum. Hefðu þjófarnir
Framliald L4. síffu.
Saumafundur 1
Frá KvenféLagi Alþýðu- S
flokksins í Reykjavík'- Munið S
saumafundinn í skrifstofu S
flokksins kl. 8 í kvöld. Árið-^
andi að sem flestar mæti, — •
Bazarnefndin. ^
✓ /
1
Fjöldasöngur yfir
Rússum í Peking
Moskvu 21. 11. (NTB).
Undarlegt atvik kom fyrir í
Peking í nýlega, þegar hópur
Rauðra varðliða reyndi að varna
sovéskri vinóttunefnd leið út
um hlið Pekingháskóla. Rúss
arnir reyndu að fá Kínverjana
til að víkja með því að syngja
'„Austrið er rautt”.
SJíkir atburðir voru daglegt
brauð á ferð vináttunefndar-
innar um Kína í tilefni 49 ára
afmælis októberbyltingarinnar
og varð nefndin að hætta við
för sína 19. nóvember eftir að
liafa orðið fyrir auðmýkingum
hótunum og mótmælum, að því
er fimm meðlimir nefndarinn
ar sögðu ó blaðamannafundi í
Moskvu í dag.
Formaður nefndarinnar. Vikt
or Majevsky, fréttaskýrandi
Pravfda sagði að fulltrúi úr
stjórn vinóttuféiags Kína og
Sovétríkjanna hefði á vináttu
fundi sakað Rússa um að vinna
Kínverjum óbætanlegt tjón.
Hann bætti því við: — Kín
verska þjóðin gleymir þessu
Framhald á 13. síffu
STALU 200 KILOA
PENINGASKÁP
Rvík, ÓTJ.
BÍRÆFNIR þjófar höfffu á brott
meff sér peningaskáp Kaupfélags
Árnesing?a í Hveragerði um helg-
ina. Brotizt var inn í verzlunina
og þaffan fariff inn í skrifstofu þar
sem peningaskápurinn stóff á gólf
inu, undir bcrffi. Þiiófnaffúr þessi
er trúlega eitthvaff undirbúinn því
aff skápurinn vegur hátt" á annaff
hundraff kíló, og slíkt taka menn
trauðla undir hendina um leið og
þeir Iabba út.
Töluvert var af peningum í
skápnum og eins ávísanir og ýijnis-
konar skjöl sem missir er | að.
Rannsóknarlögregian í Reykjpvík
var kvödd austur til aðstoðar en
ekkert hefur enn til skápsins
spurzt.
Skáp eins og þennan er ekki
svo mjög erfitt að brjóta upjp ef
verkfæri eru við hendina. Flestir
peningaskápar sem hingað eru
keyptir eru miðaðir við það að
Framhald á 14. síffu.
22. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3