Alþýðublaðið - 18.12.1966, Síða 2
z
18. desember 1966 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐÍO
Bezta jólagjöfin,
handa unnustunni,
3)
j eiginkonunni,
dótturinni,
gjafakassar frá
Dorothy Gray
Ingélfs Apóiek.
Leiðrétting
í jfrétt af borgarstjórnarfundi,
sem birtist í blaðinu , gær var sú
prentviila að sagt var að Björgvin
Guðmundsson hefði flutt breyt-
ingartillögu vjð ályktunartillögm
Alýðuflokksins, en átti auðvitað
að vera Alþýðubandalagsins.
JÓLABÆKUR FRÁ FRÓÐA
Breiðfirzkar sagnir III-
Hér birtist þriðja bindi Breiðfii'zkra sagna ásamt nafnaskrð
yfir þau bindi, sem út eru komin. Líklegast er, að- þetta verði
síðasta bindið í þessu ritsafni. Fyrsta og annað bindi eru nær
uppseld hjáf orlaginu, og því ráðlegast fyrir þá, sem ætla að
eignast öll bindin, að kaupa þau sem fyrst.
★ 1
Tvær tunglskinsnætur
er ævisaga sveitapilts á fyrrihluta þessarar aldar. IJað var
ekki sök Jóns Sigurðssonar þó sú kona yrði á vegi hans, sem
réði honum örlög að sið fomra valkyrja,
Hann réði því ekki, hve mikið vald þessi kona hafði yfir
lífi hans, fremur en liann réði, hvernig hann sjálfur kom ut-
an úr myrkrinu og kuldanum inn í þennan helm.
Þetta er spennandi saga frá byrjun til enda.
Ást i sneinum
Bjarni í Firði er höfundarnafn Bjarna Þorsteinssonar kennara,
Hann er fæddur Hvítatungu í Hrútafirði 1892.
Bjarni fékk snemma áhuga á bókmenntum og hefir samið
nokkrar smásögur sem birzt hafa á prenti. Ást í meinum er
fyrsta skáldsaga Bjarna, sem bhtist í bókaformi, hún er í
senn átakamikil og viðburðarrík, svo lesandinn lætur hana ó-
gjarnan frá sér, fyrr en henni er að fullu lokið.
------★----
Famsýui og forspár
Frú Jeane Dixon hefur vakið feikna athygli vegna dulhæfi-
leika sinna. Undanfarið hafa forspár hennar birzt árlega í
blöðum Bandaríkjanna og þótt rætast svo rækilega, að undr-
um sætir. Meðal annars sá hún fyi’ir morð Kennedys forseta
og gerði ítrekaðar tilraunir til þess að koma í veg fyrir hina
örlagaríku ferð hans til Dallas.
þessari bók segir blaðakonan Ruth Montgomery
arlega frá vitrunum og forspám frú Dixon. —
, ókin er skemmtileg, en um leið merkilegt íhug
aarefni.
Kysstu konuna þína
er satt að segja ólík öllum öðrum bókum. Þetta er tómstunda
iðjufræði eiginmannsins, en efnið er tekið.nokkuð sérstæðum
tökum og öðrum en þér búizt við. Galdur hennar er nefni-
lega sá, að kenna yður þá list, að öðlast tómstundagaman án
þess að þurfa að stunda nokkra tómstundaiðju.
~ " ★
Leiðin tifl míp
Kristian Schjelderup biskup er nafnkunnur maður, gáfaður og
fjölmenntaður. Hann hefir víða farið og mörgu kynnzt, eins
og þessi bók sýnir. Á stríðsárunum var hann um hríð fangi
á Grini og flutti fagnaðarerindi Krists meðal fanganna.
Skömmu síðar varð hann biskup í Hamarsstifti.
Hingað til íslands var honum boðið fyrir allmörgum árum
og munu margir enn minnast glæsilegs persónuleika hans.
Bók hans, Leiðin mín, er andleg saga hans, rituð af hrein-
skilni og sannleiksást.
★
Strokubörnin
Unglinga- og barnabækur Hugrúnar eru með því bezta af
þeim bókmenntum sem út hafa komið eftir íslenzka höfunda.
Það er einhvér heiðríkja yfir öllu, sem hún skrifar. Hún
stælir engan, en fer sínar eigin leiðir, hvað sem liver segir.
-------★----
Týndtir á öræf um
Barna- og unglingasaga eftir Eirík Sigurðsson, skólastjóra.
Sagan fjallar um týndan hest og leit Palla og félaga lians
úr dýraverndunarfélaginu. Þessi saga mun hljóta vinsældir
allra þeirra sem hana lesa.
Lotta í Ólátagötu
í þýðingu Eiríks Sigurðssonar, skólastjóra. Lotta er orðin
firnrn ára. Einn morgun vaknar hún í vondu skapi. Þess
vegna var hún reið við alla. Hún var svo reið, að liún strauk
að heiman.
Þessi skemmtilega bók er einkum fyrir yngstu lesendurna.
BÓKAOTGÁFAN FRÓPB
Á LANDI
OG
Á SJÓ
Lofíltældir og gangþýðir DEUTZ-dieselhreyflar I dráttarvélum og hverskonar vinnuvélum
hafa sannað yfirburði sína við íslenzkar aðstæður og veðurfar.
Þar sem fyllstu kröfur eru gerðar til GANGÖRYGGIS —
SPARNEYTNI — ENPINGARGÆÐA verða
DEUTZ-vélar fyrir valinu.
j|«||psgs
■
IggÉ
■
{'■ ■ \ , -í s y
■
;
* . % ■■■:■':■»-
. :: “-ír i
mSmm
eitt nýjasta og fullkomnasta skip flot .ns. knúið DEUTZ-diselvélum.
MS. „Freyfaxi'
Aðalumboðið á íslandi:
H.F. HAMAR
véladeild
Sími 22123 — Pósth.
Tryggvagötu — Reykjavík.