Alþýðublaðið - 18.12.1966, Síða 8
s
18. desember 1966 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Kæliskápar — Frystiskápar — Frystikistur
14 GERÐIR - STÆRÐIR VIÐ ALLRA HÆFI
• ATLAS kæ!i- og frystitækin eru glæsileg útlits, stílhrein og sígild.
• ATLAS býður fullkomnustu tækni, svo sem nýja einangrun, þynnri
en betri, sem veitir aukið geymslurými og meiri styrk. • ATLAS full-
nýtir rýmið með markvissri, vandaðri innréttingu, og hefur m.a. lausar,
fseranlegar draghillur og flöskustoðir, sem einnig auðveldar hreinsun.
• ATLAS kæliskóparnir hafa nýtt, lokað ★ ★ ★ djúpfrystihólf með
nýrri gerð af hinni snjöllu, einkaleyfisvernduðu 3ja þrepa froststill-
ingu. • ATLAS býður einnig sambyggða kæli- og frystiskópa með sér
hurð og kuldastillingu fyrir hvorn hluta, alsjólfvirka þíðingu og raka
þlósturskælingu. • ATLAS hefur hljóða, létta og þétta segullokun og
möguleika ó fótopnun. • ATLAS skóparnir hafa allir færanlega hurð
fyrir hægri eða vinstri opnun, • ATLAS hefur stöðluð mól og inn-
byggingarmöguleika með þar iil gerðum búnaði, listum og loft-
ristum. • ATLAS býður 5 óra óbyrgð ó kerfi og trausta þjónustu.
• ATLAS býður hagstætf verð. • ATLAS er afbragð.
KÆLISKÁPAR .... — 4 STÆRÐIR
SAMBYGGÐIR KÆLI-
OG FRYSTISKÁPAR . — 2 STÆRÐIR
FRYSTISKÁPAR .... — 3 STÆRÐIR
FRYSTIKISTUR .... — 3 STÆRÐIR
ViÐAR-KÆLISKÁPAR — 2 STÆRÐIR
me<5 og ón vín- og tóbaksskóps. Val um viSarlegundir.
FYRSTA
FLOKKS
FRÁ....
SlMl 24420 - SUÐURGÖTU
Lögfræðingafélag íslands
Aðalfundur félagsins verður haldinn á morg-
un mánudag kl. 17.30 í fyrstu kennslustofu
Háskóla íslands.
DAGSKRÁ:
Aðalfundarstörf samkvæmt 9. grein
félagslaga.
STJÓRNIN.
✓
Odýrar bækur til jólagjafa
Bókinf Skólavörðustíg 6.
FÖNIX
10 - REYKJAVÍK
HEIMSOKNIHUÖMPLÖTUVE
Við hittum fyrst að máli for-
stjóra Fálkans h.f., Harald Ólafs-
son, og leitum fregna af íhljóm-
plötuútgáfu fyrirtækisins.
Hann seigir, að Fálkinn hafi fyrst
hafið hljómplötuútgáfu lárið 1930
og gefið út alls um það bil 350
plötur fyrst hraðgengar plötur,
en nú eftir að hin nýja tækni í
hljómplötugerð kom tii sögunnar
gefið út bæði meðal- og hæggeng-
ar plötur. Af þeim mætti helztar
nefna upplestrarplötur með próf.
Sigurði Nordal og próf. Jóni Helga
syni, Halldóri Laxriess og Davíð,
Vilhjálmi frá Skáholti og söng-
plötur með Stefano íslandi, Karla-
kór Reykjavíkur-og Fóstbræðrum,
Söngfélaginu Heklu svo og safn-
útgáfuna Gullöld íslenzkra söngv-
ara endurupptökur af gömlum
plötum, Rímnalög og fleira, alls
um 20 12 þuml. hæggengar plötur
og 6Q 7 þumlunga meðalgengar
plötur. Stöðug sala er í þessum
plötum bæði til einstaklinga og
skóla, sem fá 15% afslátt af öll-
um plötum verzlunarinnar.
Væntanlegar eru kaflar úr
Fjallkirkjunni með Gunnari Gunn
arssyni, ljóð Tómasar Guðmunds-
sonar, Sönglög með Stefáni ís-
landi og söngur Karlakórsins Vís-
is á Siglfirði og nú er íslands-
klukkan nýkomin.
Ennfremur hefur Fálkinn umboð
fyrir heimsfræg útgáfufyrirtæki
svo sem brezka fyrirtækið EMI
(Electric and Musical Industries)
en á vegum þess eru t.d. His Mas-
ters Voice með sínu heimsþekkta
vörumerki, hundinum sem hlýðir
á rödd húsbónda síns af grammó-
fóni. Aðalútgáfa þess er Angel-
fl«kkur*nn með gullenglinum sem
einkennismerki, Capitol, Colum-
bia, Parlophone, MGM, Encore (ó-
dýr) og Emper (ódýr).
Ennfremur Decca, sem er enskt,
ásamt RCA (Radio Corporation of
America) hinu ameríska Teldeck,
sem er þýzkt og Philips með aðal-
stöðvar í Hollandi.
Enn má geta CBS (Columbia
Broadcasting System) enskt fyrir-
tæki í samvinnu við ameríska Co-
lumbia.
Merkin Concert Classic, Encore
og Emper eru mun ódýrari en hin
merkin, vegna þess að hér er um
að ræða plötur af frumupptöku,
en eintakafjöldinn orðinn það mik-
ill, að ágóðahlutur listamannanna
sem flytja verkin er óverulegur
oig í sumum tilvikum enginn orð-
inn. Sama fyrirkomulag og tíðkast
um útgáfu vasabrotsbóka. Gæðin
eru því í flestum tilfellum þau
sömu og í venjulegum plötum, en
verðið mun lægra. Concert Clas-
sics kostar t.d. kr. 240 en verð á
plötum er yfirleitt rúmar þrjú
hundruð krónur og eru þær þá
orðnar mun ódýrari en bækur.
Tollur á erlendum plötum er 80
prósent.
Niðri í verzluninni hittum við
verzlunarstjórann, Sigríði Sigur-
bjarnardóttur og spyrjum hana
um sölu á hljómplötum.
— Salan með sígildum verkum
er alltaf nokkuð stöðug, jöfn sala
í symfóníum ok konsertum, fólk
biður oft um verk sem flytja ó á
tórileikum til að kynnast verkun-
um. Requiem Brahms hefur til að
mynda selzt mjög vel síðan í fyrra,
að spurðist að flytja ætti verkið
nú í vetur, kórfólkið sjálft kaup-
ir líka mjög þessar plötur. Missa
Solemnis er farin að seljast núna,
við höfum hana með Klemperer.
Við tónleika Kempffs í fyrra jókst
sala mjög á verkum, sem hann
leikur.
— Af hljómsveitarstjórum, sem
nú ber hæst meðal annarra, eru
ef til vill Klemperer, Solti og
Karajan og svo ungur maður, Lo-
ren Maazel, sem hefur nýlokið
við að stjórna öllum symfóníum
Tjækovskís og hlotið mjög góða
dóma fyrir.
— Ungt fólk kaupir mjög mikið
af klassík, það er á-berandi skóla-
fólk úr Tónlistarskólanum og
Menntaskólanum, þar eru svo-
nefnd tónlistarkvöld, 'þá eru leik-
in klassísk verk. Við seljum mik-
ið þangað, en skólar fá afslátt 15
% frá útsöluverði.
— Óperur í stereoupptöku eru
mjög keyptar til gjafa, yfirleitt
má segja að við seljum tvær mono •
á móti sex stereo. Óperurnar eru
mjög mislangar, allt frá einni
plötu ,svo sem Kastali Bláskeggs
konungs eftir Bela Bartok, að 5
plötum eins og Tristan oig ísold
Wagners.
— Óperettur seljast alltaf mjög
vel, bæði þýzkir og amerískir söng
leikir.
— Sú ópera sem ef til vill hefur
selzt bezt er Carmen með svert-
ingjakonunni Leontyne Price
stjórnað af Herbert von Karajan.
— Ég held, að unga fólkið, sem
leggur peninga sína í plötur stilli
sig um aðrar skemmtanir. Ekki
svo að skilja að eldra fólk kaupi
ekki plötur. Tónlistin á leið að
eyrum fólks á öllum aldri. Áber-
andi er, að fólkið, sem sækir sym-
fóníutónleikana er fastakaupend-
ur að plötum.
Þarna eru í sýningarbkápum
plötur með jjjóðlögum frá ýmsum
löndum. Flamengo frá Spáni og
Bouzoukilöig frá Grikklandi. Enn-
fremur endurupptökur af hrað-
gengum plötum með heimsfræg-
um listamönnum, sem stóðu í
blóma á fyrri hluta aldarinnar svo
sem Maggi Teyte, Titta Ruffo,
John McCormack, Chaljapin
Arthur Schnabel Beethov-
enssónötur, en fyrir túlkun sína á
þeim er hann annálaður.
— Nú eru jólaplöturnar að
/ V // V / SV/.V< >
V
Vr hljómplötuverzlun Fálkans.