Alþýðublaðið - 27.01.1967, Qupperneq 2
Umræðufundur um
náttúruvernd
Stúdentafélág Háskóla íslands
efnir til almenns umræðufundar í
Sigtúni við Austurvöll miðviku-
tíagiijui 1. febrúar n.k. og hefst
fundurinn klukkan 20,30. Fundar-
efni verður Náttúruvernd á ís-
landh, en framsöguræðuna flytur
Éyþár Einarsson, mag. scient. Að
henni lokinni verða almennar um-
ræður.
Til fundarins hafa sérstaklega
verið boðaðir eftirtaldir aðilar,
sem flestir hafa tilkynnt komu
SÍna ?á fundinum: Náttúruverndar-
ráð, Ferðamáiaráð, Þingvallanefnd
og framkvæmdastjóri hennar,
Podgorni
í Torino
TORINO, 26. jan. (NTB-Reuter)
— Nikolai Podgorny, forseti Sov-
étríkjanna, hélt í dag áfram ferða-
lagi sínu um Ítalíu undir strangri
Framliald bls. 13.
stjórn Kísiliðjunnar, skipulags-
stjóri ríkisins, vegamálastjóri,
skógræktarstjóri, þjóðminj a vörð-
ur gerð fyrsta skóflustungan að
íslands og fleiri.
Öllum er heimill aðgangur að
fundinum og fólk hvatt til að
mæta stundvíslega.
Bygging toll-
stöðvar
að hefjast
í DAG klukkan 3 siðdegis verð-
ur gerð fyrsta skóflustunga að
nýrri tollstöðvarbyggingu í Reykja
vík. Hun bygging þessi standa við
ifnina, þar sem áður voru vöru-
’ymsluhús Eimskipafélagsins og
Sameinaða. Mun svipur borgar-
innar þarna í hjarta hafnar- og
miðbæjar breytast til batnaðar, er
þarna rís myndarlegt stórhýsi.
Stai bíl og lenti í árekstri
Rvík, SJÓ.
Einhvern tíma í fyrrinótt eða
fcvöldið þar áður var bifreiðinni
R-14999 stolið. Þetta var Opel
Carivan station af eldri gerð og
blá að lit.
Rétt eftir hádegi í gærdag var
svo lögreglunni tilkynnt um að
bifreið hefði verið ekið á grind-
verk við Kleppsveg 108. Reyndist
þetta vera hin stolna bifreið, en
eftir að henni hafði verið ekið á
grindverkið komu nokkrir menn úr
nærliggjandi húsi að henni. Sáu
þeir hvar tveir ungir menn stigu
úr bifreiðinni og lögðu þeir þegar
á flótta og náðist ekki í þá. En
áður en þeir lentu á grindverk-
inu höfðu þeir einnig ekið á Ijósa-
staur, er stóé við sömu götu.‘
Nú biður rannsóknarlögreglan
alla þá, sém eitthvað kynnu að
hafa orðið varir við ferðir bifreið-
arinnar um nóttina og daginn eft-
ir að hafa samband við sig sem
Cvrst.
•:f iv- ■
i-Sx.:-- (ssfAc.nyÓM-
. Pc '.V.-.VC1 .y o-. -V »
>:.y. >•■>•: •>< .-v: '...///<1/.»*.'
.■ *■<<■ >;>;>.:><<•.•.,•>.•' ‘M:>.
, 'WA-.V.V >4 /'• v .jsj/ KnyM »■> !«/.-
. M,»■» »><■:■:•: K<*: •>.<>■<>
1 »:-fe>o9.
M> :<%« I".. F»>
I FLJUGA AN FAR-
IMIÐA TIL EVRÓPU
með viðkomu á Islandi
í janúarhefti hins þekkta
bandaríska tímarits Esquiere
birtist mikið myndskreytt
grein um ferðir einkafiug-
manna milli Ameríku og Evr-
ópu. Er greinin aðallega byggð
á flugi hjóna sem fóru á tveggja
hreyfla vél frá New York til
Genfar síðasta sumar.
Sagt er að nær 2 millj.
Bandaríkjamanna fljúgi árlega
til Evrópu en rúmlega þúsund
þeirra fljúga í litlum einka-
flugvélum. Farmiði frá New
York til Genfar fyrir tvo kostar
um 600 dollara en kostnaður
við flug hjónanna var aðeins
194,50 dollarar.
Eins og áður segir fylgja
margar myndir greininni, eru
flestar þeirra frá íslandi, enda
stönzuðu þau lengst hér og
taka fram að Reykjavík sé vel
þess virði að hafa þar nokk-
urra daga viðdvöl.
Myndirnar frá íslandi eru að-
allega frá Reykjavík, eru það
götumyndir og myndir af verk-
um Ásmundar Sveinssonar og
úr Nausti. Þá er litmynd sem
nær yfir heila opnu í blaðinu
Comanche, á flugi yfir Surtsey.
.....................mmmm.mm......................
111111111111111111111
niiiiitiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiaiai
2
3
5
3
3
3
2
5
i
§
|
I
E
■3
i
s
2
1
5
2
2
lí
[ptQ[nl[feQ(ai[FD D D D ° 0
Hægristjórn í Noregi
Það þóttu mikil tíðindi í heimi
cvrópiskra stjórnmála. er jafnað-
c.rmenn biðu lægri hlut í kosning-
V.m i Noregi og fjórir hægriflókk-
cr mynduðu samsteypustjórn. —
Hefur sií stjórn nú setið við völd
nokkuð á annað ár, og er for-
vitnileyt að athuga, hver ferill
hennttr hefur orðið.
Ekki verður sagt, að ráðuneyti
Per Bortens hafi látið hendur
stanða fram úr ermum og er það
almeimt talið aðgerðalítið. Sum
ir skýra þetta með því, að öll
byrjun sé erfið, en aðrir benda á
cð ráðuneytið þjáist af venjuleg
um kbillum samsteypustjórnar, þar
sem stjórnarflokkar verða að
semja sín á milli um öll mál.
Ekki hefur hægristjórn Bortens
enn gert róttækar breytingar á því
velferðarþjóðfélagi, sem jafnaðar
menrt hafa komið upp í Noregi
með þriggja áratuga starfi. Samt
sem áður> er greinileg stefnubreyt
ing, sem sýnir, hvert hægriflókk
arnir ætla að leiða norsku þjóðina.
Meginbreytingin er sú, að sam
starf milli ríkisstjórnar og verka
lýðssamtaka hefur dð rnestu rofn
að. Þetta samstarf hefur verið ná
ið um langt árabil, enda fannst
'verkyúýðshreyfingunni ráðuneyti
jafnaðarmanna ávallt stánda sér
nærri. Sátu þar jafnan á ráðherra
bekkjum fleiri eða færri menn, er
voru meðlimir verkalýðsfélaga, oft
trúnaðarmenn þeirra eða leiðtogar.
Ríkti þvi í ríkisstjórn skilningur
á viðhorfum launþega, sem eru
fjölmennasti hagsmunahópur
landsmanna. Nú er enginn maður í
stjórn, sem hefur haft slík kynni
'verltalýðshreyfi'þgunnv, field'
ur aðeins menn, sem hafa verið
eða eru tengdir samtökum vinnu
veitenda.
Jafnaðarmenn voru, er þeir létu
láf völdurn, langt komnir með
mikla löggjöf um þjálfun og
kennslu fyrir fullorðna og var til
gangur þeirrar áætlumr að greiða
fyrir tilflutningi manna á vinnu
markaði og auka með því öryggi
verkalýðsins á tímum nýrrar
tækni og mikilla breytinga. Þessa
áætlun hefur Borten-stjórnin eyði
lagt, og er aðeins brot af henni
eftir. Xplur verkalýðshreyfingin
það mikinn ósigur fyrir sig.
Á síðastliðnu ári fóru fram ein
hverjir mestu samningar um kaup
og kjör sem-tim getur. En þá gerði
ríkisstjórnin ýmsar ráðstafanir í
skattamálum, sem léttu mjög
byrðar hinna efnuðu, svo sem
þeirra er höfðu aðrar tekjur en
vinnulaun, af húsaleigum, hluta
bréfum o.s.fv.. Þetta var gert á
sama tíma, er stjórnin krafðist hóf
semdar í kröfugerð verkálýðsfé-
laganna!
Ofan i þetta lcom vcrðlag land
búnaðarafurða. Lagði stjórnin á-
herzlu á allmikla tekjuaukningu
til bænda með hækkun á afurð
um þeirra, sem allri var velt
yfir á neytendur í hærra vöru
verði. Þessar hækkanir voru til
kynntar á viðkvæmasta tíma í þýð
ingarmikilli vinnudeilu og höfðu
meðal annars þau áhrif, að verka
menn höfnuðu sáttaboði. Stjórnin
hikaði þá ekki við að setja gerð
ardóm til lausnar deilunni. Virð
ist þessi hægristjórn hafa mikla
tni á gerðardómum og vilja nota
þá sem oftast til að leysa vinnudeil
ur. Nú síðast hefur gerðardómur
verið settur í deilu starfsmanna 1
síldarverksmiðjum — gegn hörði
um mótmælum verkalýðshreyfing
arinnar, sem vill ekki, að slík að
ferð verði gerð að fastri reglu,
þótt einstaka sinnum geti þurft að
grípa til hennar.
Meðal margra lagabálka, serrt
voru í undirbúningi hjá jafnaðar
mannastjórninni, var einn bálkur
um aukið lýðræði á vinnustöðum,
Þessu máli — og mörgum fleiri —«
hefur nú verið stungið undir stól,
Borten og menn hans hafa áhuga
á öðru fremur en slíkum umbót
um.
Þannig segir íhaldsandinn tiI
sín í vaxandi mæli i Noregi.
JllfllllllllMIIIMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII 11111111111111111 IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMItllllllllllllliiiiiiin 11111111111,111 ||||M || j|g
| Bridgespilarar I
| Spilum bridge í hinum vistlegu nýju salarkynnum Ingólfs- §
§ kaffi laugardaginn 28. janúar kl. 2 e. h — Stjórnandi Guð- 1
| mundur Kr. Sigurðsson. — Öllum heimiil aðgRngur.
\ Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur, |
ÍllMIMIMMIIIIIIIIIIIIMIMIMIMIMIMIMIMIIMMIMIMIMMMMMIIIIMMMIIIMMIMIIMMIItMlMIIIMIIIMIMIIIIMIIIIIMIIIIMIIMMMI
2 27. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ