Alþýðublaðið - 27.01.1967, Síða 8

Alþýðublaðið - 27.01.1967, Síða 8
RUNABOTAFELAGIÐ 50 ARA Um áramótin voru fimmtán ár iiðin frá stofnun Brunabótaféiags íslands, sem hér gerðist brautryðjandi í tryggingamálum og skapaði í rauninni grundvöll innlendra húsatrygginga, en þær voru megin- starfssvið félagsins um langt árabil. Nú annast félagið allar tegundir tryggingastarfsemi, nema líftryggingar_ Brunabótafélag íslands er gagnkvæmt tryggingafélag, — það er að segja, það er eign þeirra sem tryggja hjá því. Síðastliðin tíu ár liefur félagið endurgreitt tryggjendum rúmlega 21 milljón króna. Núverandi framkvæmdastjórn félagsins skipa þeir Jón G. Sólnes, bankastjóri, sem er formaður, Emil Jónsson ráðherra, sem er vara formaður og Björgvin Bjarnason sýslumaður, sem er ritari. For- stjóri félagsins er Ásgeir Ólafsson, en hann tók við þvi starfi 1958 af Stefáni Jóhanni Stefánssyni, sem veitt hafði félaginu forstöðu frá því á árinu 1945. Hér fer á eftir stutt yfirlit um sögu og þróun Brunabótafélagal íslands: AÐDRAGANDI OG STOFNUN Nauðsyn trygginga hefur verið íslendingum ljós um langan aldur Á þjóðveldisöldinni voru í sam- bandi við hreppaskipulagið settar ákveðnar reglur um það, hvern ig þæta skyldi, ef bær brann eða búfé fórst. Þetta var þeim mun athyglisverðara, þar eð í nágranna löndum okkar þekktust þá ekki hliðstæð ákvæði. Eftir að þjóðin missti sjálfsforræði sitt, féll þessi samtrygging eða samábyrgð niður. Það er ekki fyrr en seint á 19. öldinni, að menn fara á ný að rétta úr kútnum. Með breyttum aðstæð um og viðhorfum vaknar skilning ur manna á nauðsyn trygginga og þá einkum sjótrygginga og bruna trygginga. Árið 1890 ritaði ritstjóri Þjóð- ólfs, Þorleifur Jónsson, grein í blað sitt um nauðsyn á því að stofna innlent brunaábyrgðarfélag enda gátu húseigendur utan Reykjavíkur vart fengið hús sín tryggð. Árið eftir flutti Indriði Einarsson þingmaður Vestmanna eyinga, frumvarp til laga um stofn un íslenzks brunatryggingafélags. Þess má geta, að í Vestmannaeyj um var stofnað til bátaábyrgðar félags 1862 og er það félag, Báta ábyrgðarfélag Vestmannaeyja, enn þá starfandi með myndarbrag. Ekki náði frumvarp Indriða fram að iganga á þinginu, enda var landshöfðingi mótfallinn flutningi þess. Næstu 24 árin var mál þetta tek ið upp á svo að segja hverju þingi en náði ekki samþykki vegna and stöðu landshöfðingjans of; kcm ungskjörinna þingmanna. Þessari baráttu lauk þó á þá lund, að hinn 3. nóvember 1915 voru sett lög um stofnun Brunabótafélags íslands. í ársbyrjun 1916 var Sveini Björnssyni, síðar forseta íslands, falið að koma Brunabótafélaginu á fót og veita því forstöðu. Um þetta seigir Sveinn Björnsson m. a. í endurminningum sínum: ,,Á þinginu 1915 var fjallað um ýmis mál, þ.á.m. ný viðhorf vegna ófriðarins. Átti ég sæti í mörgum nefndum og hafði nóg að gera. Skal það ekki rakið. Ég vil aðeins minnast á eitt mál, stofn un Brunabótafélags íslands. Ég fékk áhuga fyrir þessu máli. Sú sannfæring min jókst með ári hverju, að það væri nauðsynlegt til þess að öðlast fullkomið sj'álf stæði islands að ná sem fyrst í okkar eigin hendur slíkum mál um, sem héldu í landinu arði og fé, sem áður hafði horfið til út- landa, aðallega Danmerkur, — vildi sigla þótt djarft þætti siglt. í dag er ég ennþá sannfærðari en nokkurntíma um, að slíkar og aðrar framkvæmdir séu okkur meiri frambúðartrygging um sjálf stæði en ýmiss konar samþykktir. Það verður auðvitað að gera sam þykktir, sem geri skipun á sjálf stæði landsins og fullveldi. En þær nægja ekki. Undirstaðan verður að vera sem öruggust.” í framhaldi af þessu segir Sveinn frá því að honum hafi verið falið að veita félaginu forstöðu og hófst hann þegar handa um að leita end urtryggingar hjá dönsku vátrygg ingafélögunum. Tóku þau málinu þunglega og töldu á því ýms vand kvæði. Sveinn segir svo frá: „Um alger afsvör var þó ekki að ræða, og 'átti ég marga fundi með þessum mönnum. Loks sann- færðist ég um, að hér væri aðeins verið að halda uppi þófi til þess að láta málið stranda. Brá ég mér þá til Svíþjóðar og Noregs. Lauk því svo, að ég komst að samning um við eitt bezta tryggingafélag Norðmanna, Storebrand, Oslo, um endurtryggingu á þeim grund- velli, sem ég stakk upp á, þ.á.m. ið gjaldalækkun. Var þar með fe'nginn traustur og öruggur igrundvöllur að félags stofnuninni og tók félagið til starfa 1. janúar 1917.“ Á 'hálfrar aldar tímabili hefir féla^ið að sj^lfsögðu geVigið í gegnum eitt og annað. Lögum um það hefir alloft vei'ið breytt allt eftir því sem við hefir átt og al- þingismenn hafa talið þurfa. NÝSKIPAN MÁLA. Á Aiþingi 1945 kom fram til laga um nýja skipan á brunatrygg ingu fasteigna utan Reykjavíkur er gekk í þá átt, að veita sveitar stjórnum heimild til þess að semja um skyldutryggingu fasteigna við eitthvert viðurkennt vátrygginga félag. Tillaga þessi var að vísu felld, en ný löig um þetta efni voru samþykkt í lok þingsins og jafnframt var kosin 5 manna milliþinganefnd, sem sk.vldi end urskoða löggjöfina um Brunabóta féiag íslands, og skila lagafrum varpi fyrir næsta þing. í nefnd þessa voru kosnir alþingismenn ii nir Jónas G. Rafnar, sem var for Ásgeir Ólafsson núverandi for- stjóri félagsins. maður nefndarinnár, Jón Sigurðs son og Guðmundur í. Guðmunds son, auk þeirra Guðmundur Guð- laugsson, forstjóri, Akureyri og Vilhjálmur Jónsson, lögfræðin'gur Reykjavík. Nefndin klofnaði um málið og skilaði tveimur frumvörpum Frumvarp meirihlutans, þeirra Jón Stefán Jóhann Stefánsson, sem var forstjóri félagsins í 13 ár. asar Rafnar, Jóns Sigurðssonar og Guðmundar já Guðmundssonar sem samið var í samstarfi við þá verandi forstjóra félagsins, Stef áns Jóh. Stefánssonar, var sam- þykkt á Alþingi 1955 og gilda þau lög um félagið enn í dag. Helztu nýmæli í hinum nýju lög um voru ákvæði um kjör fulltrúa ráðs og framkvæmdastjórnar. Með þessari lagabreytingu hefst í raun og veru nýr kafli í sögu félagsins. Félagið fær lýðræðis- legri stjórn og um leið heimild til þess að færa út starfsemi sína. allt eftir því sem kjörið fulltrúa ráð og framkvæmdastjórn ákveð ur. Stjórn félagsins er þannig byggð upþ ,að bæjar- og sýslufé lög kjósa einn mann hvert i full trúaráð félagsins, en fulltrúaráðið kýs síðan framkvæmdastjórn tii fjögurra ára í senn. Forstjóri er skipaður af ráðhqrra þeim, er fer með málefni félagsins af hálfu ríkisstjórnárinnar, venjulega íé- lagsmálaráðherra. Fyrsti aðalfundur fulltrúaráðs- ins var haldinn í Reykjavík 21 júní 1955. Fundurinn kaus fyrstu framkvæmdastjórn félagsins. Kosn ingu hlutu Jón G. Solnes, banka stjóri, Akureyri, formaður, Emil Jónsson páðherra, Hafnarfirði, varaformaður. Jón Steingrímsson sýslumaður, Borgarnesi, ritari.. Framkvæmdastjórn hefir verið ó- breytt síðan nema Björgvin Bjarna son, sýslumaður, Hólmavík, tók sæti Jóns Steingrímssonar, þegar hann lézt 1961. Varamenn eru nú Sigurður Óli Óiafsson alþm., Ólafur Ragnars, kaupm., Siglufirði og Bjarni Guð björnsson, bankastjóri, ísafirðr. NÝJAR TRYGG- INGAGREINAR Á fulltrúaráðsfundinum 1955 var stjórn og framkvæmdastjóra heim ilað að taka upp ýmsar trygginga greinar, aðrar en brunatryggingar, eftir því sem ástæður leyfðu. Þessi heimild hefur verið notuð og hefir félagið fært út starfsemi sína stig af stigi. Má segja, að það taki nú að sér allar tegundir trygginga aðr ar en líftryggingar. Brunatryggingar eru eftir sem áður langstærsti tryggingaflokk- urinn. Af öðrum tryggingum má helzt nefna heimilstrygigingar, á- byrjjðartryggin^ar, bifreiðátrygg- ingar, slysastryggingar, skipatrygg ingar, vörutryiggingar, vélatrygg- ingar, rekstursstöðvunartrygging- ar, jarðskjáftatryggingar, óveðurs tryggingar o.fl. Hér verður eigi getið um marg ar tölu , enda samanburður við iiðin ár óraunhæfur veigna breyt ilegs peningagildis, þó má nefna að iðgjaldatekjur félagsins fyrir sl. ár námu 65 milljónum króna og höfðu aukizt um 26% miðað við fyrra ár. ENDUR- TRYGGINGAR. Fá viðskipti eru í eðli sínu jafn alþjóðleg og tryggingar. Síðustu ár og áratugi hafa verðmæti í bygg ingum, verkfærum, tækjum, skip um, afurðum og hverskonar verð mætum, vaxið mjög ört. Trygging arupphæðir hafa því margfaldazt að sama skapi og áhætta trygg ingarfélaga aukizt samsvarandii Hlutverk tryggingafélagsins í nú tímaþjóðfélagi er að dreifa þess ari áhættu á sem flesta aðila, milli vátryggingafélaga og milli landa. Aðalendurtryggjendur Bruna- bótafélagsins 'hafa verið tveir: Norska- tryggingarfélagið Store- brand, Oslo, sem ásamt dótturfé lögum sínum er stærsta trygging arfélag á Norðurlöndum. Það var Storebrand, sem gerði fyrsta end urtryggingarsamninginn við Bruna bótafélagið 1916. Viðskipti þess ara félaga hafa því staðið í hálfa öld. íslenzk endurtrygging er hinn aðalendurtryggjandi félagsins, en það féiag er eina íslenzka tryg'g ,íngafélagið. er eingöngu fæst við endurtryggingar. Brunabótafélagið r Hin nýja og myndarlega bygging Brunabótafélags íslands að Lai vegi 103 í Reykjavík. 8 27. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.