Dagur - 04.10.1997, Blaðsíða 1
Laugardagur 4. október 1997
80. og 81. árgangur- 187. tölublað
Harkaleg fóstureyðing
lilns „lærða" og illa
Ung stúlka í kirkjufötum á Möðruvöllum.
Myndin er gerð af málaranum F.C. Lund
laust fyrir 1860. Stúlkan er ekki nafn-
greind, en myndin er greinilega gerð til
að sýna hvernig spariklæðnaður stúlknar
var á þeim tíma. Kirkjuna sem á myndinni sést
reisti Stefán amtmaður Þórarinsson og var hún
oft kölluð Stefánskirkja. Hinn glæsilegi turn var
reistur 1856, en féll í kirkjubruna 1865.
Svona leit kirkjan út á dögum Jóns „lærða“
Jónssonar, hins heiftúðlega heittrúarprests, sem
sagt hefur verið frá í tveim þáttum í íslendinga-
þáttum. Hinn þriðji og síðasti birtist í þessu tölu-
blaði, og segir þar frá afdrifum Sigríðar dóttur
hans, sem hann lék svo grátt og æfilokum hans
sjálfs.
Jón prestur lét jarða sig fyrir kirkjudyrum á
Möðruvallaklaustri svo að kirkjugestir gætu lesið
viðvörunarorð hans sem klöppuð voru á stein-
inn. En þegar kirkjan brann féll turninn ofan á
steininn og braut hann og svona leit hann út
þegar séra Ágúst tók mynd af honum 1964.