Dagur - 08.10.1997, Síða 3

Dagur - 08.10.1997, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 8.0KTÓBER 1997 - 3 FRÉTTIR Bylttng á sj ónvarp smarkaði KapáLkerfi Pósts & síma iniian seilingar. 20 rásir. Einrása af- ruglari. Áskriftar- gjald 2 þúsund krón- ur á mánuði. „Barnarásin er gott dæmi um það hvernig breiðband Pósts & síma opnar möguleika fyrir nýja hópa til að komast inná sjón- varpsmarkaðinn," segir Hrefna Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Pósts & síma. Barnarásin er ný sjónvarpsstöð sem hefur útsendingar í desem- ber. Eins og nafnið ber með sér mun stöðin sérhæfa sig í ýmis- konar barna- og unglingaefni án ofbeldis. Búist er við að áskrift- arverð verði innan við 1000 krónur á mánuði og útsendingar á barnavænum tímum. Allt efni verður textað og talsett og dreift gegnum kapalkerfi Pósts & síma. Það er Hljóð & mynd sem rekur stöðina en dagskrárstjóri verður Guðrún Þórðardóttir leikkona. Fjórðungur heimila Sjónvarpsútsendingar á breið- bandi, eða kapalkerfi, Pósts & síma hefjast áður en langt um líður. Undirbúningur er þegar langt á veg kominn og eru til- raunaútsendingar þegar hafnar frá Alþingi og með efni frá Ríkis- sjónvarpinu. Gert er ráð fyrir að 20-25 þúsund heimili, eða fjórð- ungur allra heimila Iandsins, geti strax tengst kerfinu í gegnum ljósleiðara þegar tilskilin leyfi hafa fengist fyrir útsendingun- um. I upphafi er gert ráð fyrir að neytendur geti haft aðgang að allt að 20 erlendum gervihnatta- rásum allan sólarhringinn að viðbættu innlendu efni. Þarna verður m.a. boðið uppá íþrótta-, frétta- og tónlistarrásir og bland- að efni frá þýskum, frönskum og ítölskum og fleiri stöðvum. Hægt er að auka það framboð eftir þörfum. Athygli vekur að áskrift- argjald á mánuði að meðtöldum eins rása afruglara stefnir í að verða aðeins um 2 þúsund krón- ur. Það er umtalsvert lægra en allur sjónvarpspakki Islenska út- varpsfélagsins, þ.e. Stöð 2, Sýn og fjölvarpið kosta um 4700 krónur á mánuði. Lj ósleiðaravæðing Húsavík mun vera eina bæjarfé- lagið sem hefur ljósleiðara í nær öllum götum. Stefnt er að því að Ijósleiðaravæða Isaljörð, Akur- eyri og Egilsstaði á næsta ári. Ef að líkum lætur verður helmingur allra íbúða í landinu kominn með ljósleiðara fyrir aldamót. A höfuðborgarsvæðinu eru mörg hverfi komin með ljósleiðara. I Reykjavík eru það t.d. yngstu hveríin í Grafarvogi, Skjólin í Vesturbæ og Háaleiti svo dæmi séu nefnd. Ibúar í þessum götum og öðrum sem hafa ljósleiðara og vilja tengjast breiðbandinu þurfa ekki annað að hafa samband við rafvirkja til að kippa því í liðinn. Breiðbandið truflar ekki aðrar stöðvar og þarf ekki neinn búnað til viðbótar við þann sem fyrir er að undanskildum afruglara. -GRH Sveitarfélögin föst í laimanefnd Óafturkræft samn- iugsumboö. Titringur hjá sveitarstjómum. Eindreginn stuðning- ur á launaráðstefnn. „Sveitarstjórnir geta ekki aftur- kallað umboð launanefndar á meðan á samningaviðræðum stendur," segir Karl Björnsson, bæjarstjóri á Selfossi og formað- ur launanefndar sveitarfélaga. Nokkurs titrings er farið að gæta meðal einstakra sveitar- stjórna og sveitarstjórnarfulltrúa úti í launanefndina vegna kjara- deilunnar við grunnskólakenn- ara. Meðal annars mun bæjar- stjórn Seltjarnarness hafa kann- að þann möguleika að afturkalla umboð launanefndar til samn- inga og semja þess í staðinn beint við kennara. Það getur hún ekki miðað við ofangreind um- mæli formanns launanefndar- innar. Þá hafa bæjarstjómir Nes- Karl Björnsson, formaður launanefndar sveitarfélaga: Eyðum ekki púðrinu í illde/lur. kaupstaðar og Sauðárkróks lýst opinberlega yfir óánægju með gang viðræðnanna með tilliti til þeirra hagsmuna sem í húfi eru fyrir skólastarf í héraði. Jafn- framt telur bæjarstjórn Nes- kaupstaðar að alvarleg kjara- málaátök milli sveitarfélaga og kennara hafi mun skaðlegri áhrif á landsbyggðinni en á höfuð- borgarsvæðinu. Eitt og eitt upphlaup Formaður launanefndar segist ekki sjálfur hafa orðið mikið var við þennan taugatitring almennt séð hjá sveitarfélögum ef undan- skilin eru „eitt og eitt upphlaup" í fjölmiðlum. Hinsvegar sé engin launung á því að hugsanlegt verkfall getur haft áhrif á menn. Vonandi verður það einna helst til þess að menn einbeiti sér að því að ná samningum í stað þess að „eyða púðrinu sínu í einhverj- ar illdeilur". Hann bendir aftur á móti á þá staðreynd að launanefndin fékk eindreginn stuðning á launaráð- stefnu sveitarfélaga í sl. mánuði. Sá stuðningur sé enn fyrir hendi þrátt fyrir að „einn og einn“ sveitarstjórnarmaður sé kannski ósammála. Jafnframt minnir hann á að við yfirfærslu grunn- skólans frá ríki til sveitarfélaga hefði það verið eindregin krafa kennara að hafa einn viðsemj- enda í stað þess að semja við hvert og eitt sveitarfélag. -GRH Kínverjar við það að springa LeiMélagið og Tjömin fá Iðnó Borgarráð samþykkti í gær með þremur samhljóða atkvæðum tillögu borgarstjóra að hefja viðræður við forráðamenn Leikfélags Islands og veitingahússins Við Tjörnina um rekstur á Iðnó. I bókun sjálfstæðis- manna er málsmeðferð borgarstjóra í málinu gagnrýnd, enda ljóst af henni að búið væri fyrir Iöngu að ákveða að Við Tjörnina fengi veit- ingareksturinn í húsinu. Melaskóli stækkar Vegna einsetningar Melaskóla hafa borgaryfirvöld samþykkt að byggja 1460 fermetra viðbyggingu við skólann í vetur. Kostnaður vegna þessa er áætlaður um 240 milljónir króna, án lóðar. Miðborgarvakt Borgarráð hefur lýst yfir stuðningi við stofnun miðborgarvaktar og upplýsingaherferð undir yfirskriftinni „Veistu hvar unglingurinn þinn er?“. Jafnframt stefna borgaryfirvöld að því að vinna að úrbótum í hreinlætisaðstöðu í miðborginni. Útgáfu vínveitiiigáLeyfa breytt Borgarráð hefur beint þeirri áskorun til dómsmálaráðuneytis að þeg- ar verði Iagt fram á Alþingi frumvarp til Iaga um breytingu á útgáfu veitinga- og vínveitingaleyfa og opnunartíma veitingahúsa. I frum- varpinu verði gert ráð fyrir að ákvarðanir um opnunartíma verði í höndum sveitarstjórna. Borgarráð telur einnig eðlilegt að við útgáfu þessara leyfa verði lagt mat á þann sem sækir um leyfi, ss. fjárhags- stöðu hans og viðskiptaferil en ekki aðeins búnað staðarins eins og nú er gert. Kínverska sendiráðið bregst illa við heimsókn Lian Zhan, varaforseta Taívan, hingað til lands. I yfirlýsingu sem sendi- ráðið hefur sent frá sér eru árétt- uð mótmæli við heimsókn hans. I yfirlýsingunni segir að til- gangur ferðar Lian Zhan sé að reka flein í góð samskipti Islend- inga og Kína. Með því að taka á móti Lian Zahn séu íslendingar að blanda sér í innanríkismál Kínverja og særi með því tilfinn- ingar kínversku þjóðarinnar. Astæðan sé sú að hvort sem heimsóknin sé opinber eða óop- inber þá sé eðli hennar illt. Af þessum sökum geti Kínverjar ekki annað en brugðist harka- lega við.. Kínverjar krefjast þess að endir verði þegar bundinn á heimsókn hans og að íslenskir embættismenn hitti ekki Lian Zahn hvorki opinberlega né óop- inberlega. Verði ekki farið að kröfu kínverskra stjórnvalda muni það hafa alvarlegar afleið- ingar fyrir Islendinga. - HH Hafnarhúsið gagnrýnt Sjálfstæðismenn í borgarráði gagnrýndu í gær væntanlegan kostnað vegna breytinga á Hafnarhúsinu undir listasafn. Þeir telja að kostn- aður vegna breytinga og kaupa á húsinu upp á tæpar 700 milljónir króna sé alltof mikill. Þessi forgangsröðun samrýmist heldur ekki skoðunum þeirra á nýtingu á skattfé borgarbúa í ljósi þeirra fjármuna sem uppbygging á innra starfi grunnskólans og málefnum aldraðra muni kosta. -GRH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.