Dagur - 08.10.1997, Qupperneq 6

Dagur - 08.10.1997, Qupperneq 6
6- MIÐVIKUDAGUR 8.0KTÓBER 1997 ÞJÓDMÁL Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON STEFÁN JÓN HAFSTEIN ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GLEMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON Skrifstofur: strandgöru 31, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6100 OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.680 kr. á mánib Lausasöluverð: 150 kr. OG 200 KR. helgarblai Grænt númer: 800 7080 Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 6171 Trúverðugt? í fyrsta lagi Oddviti minnihlutans í Reykjavík gerir ýmislegt til að sýnast trúverðugur stjórnmálamaður. Lætur sér til dæmis ekki nægja vettvang stjórnmálanna einan, heldur skipuleggur aðgerðir gegn fáveldi tryggingafélaganna, svo dæmi sé tekið af hrós- verðum verkum. I pólitíkinni - undir vaxandi þrýstingi vegna aðvífandi kosninga - slær gjörsamlega útí fyrir honum. Blaða- grein gegn Listasafni Reykjavíkur til að hýsa ERRO-gjöfina er dæmi um stjórnmálamann sem heldur að við séum vitlausari en við erum. I öðru lagi Árni Sigfússon kann vel að hafa rétt fyrir sér í því efni að Hafnarhúsið þurfi að hýsa fjölbreyttari starfsemi en bara Listasafnið og ber að huga að því. En að hætta við? I fyrsta lagi er húsið vel staðsett til að hýsa lifandi og fjölsótta stofnun og vera til sóma þeirri gjöf sem ERRÓ færði borginni. Við þá gjöf hafa borgarbúar skyldu. I öðru lagi er tillaga hans um að greiða kennurum hærri laun sem nemur upphæðinni gjörsam- Iega út úr korti enda hreinræktað alþýðusnobb og tækifæris- mennska. Listasafnið útilokar á engan hátt öflugt skólastarf í borginni. | þriðja lagi Ámi Sigfússon hafoi tækifæri til að vera á móti húsbyggingum til að hækka laun í borginni, og koma því í verk. Hann æmti hvorki né skræmti í þá átt. Hann var fylgjandi því að byggja yfir ERRÓ gjöfina á Korpúlfsstöðum fyrir margfalda þá upphæð sem nú stendur til að nota. Hann var Perlumaður á samdrátt- artímum hjá launafólki. Og Ráðhúsið? Listasafnið yfir ERRÓ verkin kostar minna en bílastæðin undir því. Var Árni Sigfús- son á móti dýrustu skrifstofubyggingu Islandssögunnar til að hygla launafólki? Stígi fram sá maður sem minnist þess að Árni Sigfússon hafi vilja spara margfalda þá upphæð sem hann nú sér ofsjónum yfir til að hækka laun. Og hafði þó ærna ástæðu til. STEFÁN JÓN HAFSTEIN. Vinstri snú?! Morgunblaðið á greinilega við einhverja tilvistarkreppu að etja þessa dagana. Blaðið sem í áratugi hefur verið boð- beri fijálslyndrar hægristefnu og yfirlýst málgagn sjálfstæð- isstefnunnar, er nú sífellt að hlaupa útundan sér í hvers kyns vinstri villu. Mogginn hefur sem kunnugt er um ára- bil haldið uppi andófi í sjávar- útvegsmálum við foringja sjálfstæðisstefnunnar í Sjálf- stæðisflokknum. Á meðan andófið hefur einskorð- ast við þetta eina mál hafa menn látið sér nægja að tala um gamla Marbakkasamkomulagið milli ritstjóra og fyrrum formanns Alþýðuflokksins og afgreitt málið sem sérvisku. Á öðrum sviðum hefur Mogginn haldið sig á Iínunni og stutt sína menn þegar svo ber undir með ráðum og dáð. Tony Blair flottur Nú hins vegar hefur blaðið farið ótroðnar slóðir í tvígang og Garri hefur satt að segja verið að velta íyrir sér hvort gamla Alþýðublaðið eða jafn- vel Vikublað Alþýðubanda- lagsins sé vaknað til lífsins á ný - pólitíkin hefur gefið fullt tilefni til þess. Um daginn tal- aði Mogginn svo fagurlega um Tony Blair í leiðara að sjálf Margrét Thatcher varð græn af öfund. Alla hennar tíð á forsætisráðherrastóli mátti hún bíða árangurslaust eftir sh'kri ofur-lofgrein í Morgunblaðinu á fslandi. Og þó var skrifað vel um hana í blaðið. Sósíalisminn í formi hins nýja sósíal demókrat- isma virðist vera að ná undir- tökunum á fjórðu hæðinni í Morgunblaðshöllinni í Reykjavík en gamla frjáls- lynda íhaldsstefnan að sama skapi á undanhaldi. Errósafn í Hafu- arhúsið Þó kastar fyrst tólfunum þeg- ar Morgunblaðið ræðst gegn helstu foringjum sjálfstæðis- manna í Reykjavík rétt fyrir borgar- stjórnarkosn- ingar. í' leiðara um helgina er farið hamför- um gegn Árna Sigfússyni og Vilhjálmi Vilhjálmssyni vegna listasafnsmála, en báðir hafa þessir foringjar gert það að kosningamáli sínu að setja Iistasafn í Hafnarhúsinu aftar í forgangsröð verkefna hjá Reykjavíkurborg. Báðir hafa þeir sagt að margt þarfara væri við peninginn að gera. Fyrir hönd Ingibjargar Sól- rúnar og Reykjavíkurlistans svarar Morgunblaðið þessu og hundskammar sjálfstæðis- menn fyrir að vilja ekki koma upp safn undir Erró-verkin sem Morgunblaðsritstjórar áttu raunar stóran þátt í að betla út úr Erró á sínum tíma. Niðurstaðan virðist því vera að Morgunblaðið verður sjálft að bjóða fram í sveitarstjóm- arkosningunum - Sjálfstæðis- flokkurinn syngur greinilega ekki hin eina sanna tón sjálf- stæðisstefnunnar. Nema auðvitað að Mogginn telji sig hafa fundið rétta tóninn hjá Reykjavíkurlistanum og það væri saga til næsta bæjar. Glæpmim stolið og engiim sekur Álitamál er hvort eru Iélegri fréttir, fjárlagafrumvarpið með föstum Iiðum eins og venjulega, eða hvar Stöð 2 fékk frumvarpið í hendur rétt áður en það var gert opinbert. Samt veíta fjöl- miðlar sér upp úr þessu rýra fréttaefni, rétt eins og að um daglegar heimsfréttir af kjara- málum kennara sé að ræða. Fréttastofa Stöðvar 2 skaut öðrum fjölmiðlum ref fyrir rass með því að skýra frá því að \ óbirtu fjárlagafrumvarpi væru heilbrigðismálin stærsti útgjalda- liðurinn og þar næst koma menntamálin. Aðrar rokufréttir úr frumvarpinu voru í svipuðum dúr, svo sem að stefnt sé að tekjuafgangi, sem þó er ekki víst að takist. Fjármálaráðherra brást ókvæða við og heimtaði skýring- ar á því hvers vegna hann fékk ekki að leggja frumvarpið fyrstur fyrir og skýra frá því að heilbrigð- ismálin væru stærsti útgjaldalið- urinn og að þar næst koma menntamálin og að stefnt sé að tekjuafgangi. En árvökulir og fingralangir fréttamenn voru búnir að stela glæpnum og vesl- ings fjármálaráðherrann hafði ekkert fram að færa nema gaml- ar lummur þegar hin mikla og spennandi hugarsmíð hans um tekjur og gjöld ríkisins er kynnt. Hiirn óttalegi leyndardómur Það kom sem reiðarslag yfir fjár- málastjórnina þegar fréttamenn voru á undan ráðherra að skýra frá þeim óttarlega leyndardómi að heilbrigðismálin væru stærsti útgjaldaliður fjárlaga. Það kallar á rannsókn á öðrum óttalegum leyndardómi, sem er hvar hægt var að nálgast svo vel með farnar og óvæntar upplýsingar. Frumvarpið fór ekki út úr prentsmiðjunni, en samt á að herða þar öryggisgæslu til að ekkert endurtaki sig þar. Bókar- kornið slapp heldur ekki út úr fjármálaráðuneytinu, en samt á að endurskoða meðferð gagna þar og samskiptareglur starfs- manna við fjölmiðla. Og Stöð 2 þykist ekkert hafa haft frumvarp- ið undir höndum þótt þar hafi verið þulið upp úr því í fréttatím- um fyrir útgáfudag og birtar myndir af plagginu til að sanna, að rétt væri með farið að heil- Friðrik Sóphusson. brigðismálin væru stærsti út- gjaldaliðurinn. Frétta- eða tnmaðarbrestur? Þar sem allir hljóta að segja satt er bersýnilegt að frumvarpið fór aldrei út úr prentsmiðju né ráðu- neyti í ótíma. Hitt er erfiðara að sjá hvaða stór- frétt það er að vera á undan ráð- herra að skýra frá plaggi sem all- ir vita hvað stendur í. Hitt er álíka torskilið hve nærri fjár- málaráðherra tekur sér, að fá ekki að vera fyrstur til að skýra frá því að á næsta ári verða heil- brigðismálin stærsti útgjaldalið- ur fjárlaga og að stefnt sé að tekjuafgangi, sem allir vita að verður ekki neinn nema með gagnsæjum bókhaldkúnstum. En altént hafa fjölmiðlafríkin eitthvað að iðja, ráðherra að ásaka fréttastöð um trúnaðar- brest og fréttastöðin að ásaka ráðherra um að vera ekki ráð- herralegur, hvað sem það nú þýðir? Von er til að þessum til- gangslitla kjaftavaðli fari að ljúka og þá verður gaman að lifa, þeg- ar hægt er að veita enn meira rými og tíma fjölmiðlanna til að sinna kjaramálum kennara, sem ávallt er ofurspennandi frétta- efni sem mata verður þjóðina á í tíma sem ótíma. — OÓ Eiga íslenskir rádherrar að ræða við ráðamenn frá Taívan, þóttþað styggi Kínverja? Hjálmar Ámason þingmaðurFTamsóknarflokks ogjull- trúi í utanríkismálanefnd. Islending- ar hafa hefð fyrir því að vera gest- risnir og taka vel á móti gestum og gangandi. Nú kemur maður í einkaerindum Iangt að og er því ekki nema sjálfsagt að hella upp á könnuna, í anda rómaðrar skagfirskar gestrisni. Kökur og harðfisk eigum við að gefa hon- um sem viðbit og önnur þjóðleg verðmæti sem kunna að gleðja. Lára Margrét Ragnarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks ogfull- trúi í utanríkismáianefnd. Eg sé ekk- ert á móti því að þeir ræði saman óformlega, og það þurfa ekki að vera n e i k v æ ð skilaboð til ríkisstjórn- arinnar í Peking. Ekki síður geta þau skilaboð verið jákvæð, því ég á erfitt með að ímynda mér það að íslenskir ráðamenn séu að tala með neikvæðum hætti um Kína og stjórnarfarið þar eystra. Gunnar Eyþórsson J'v. Jréttamaður. Mér finnst að við getum ekki látið Kínverja ráða því við hverja við tölum. Við verðum að byggja okkar eigin utan- ríkisstefnu á eigin forsendum. Arnþór Helgason formaður Kínversk íslenska vináttufélagsins. Mér finnst sjálfsagt að Taívanar geti rætt við í s 1 e n s k a ráðamenn, sé það til dæmis um menningar- og viðskipta- mál. En umræðuefnið getur tæpast verið stjórnmál því Is- Iendingar hafa viðurkennt Kína- stjórn sem ríkisstjórnina í Taívan og þá viðurkenningu verður að standa við.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.