Dagur - 08.10.1997, Side 11
MIBVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Nýr Kínakeisari
BAKSVBE)
DAGUR
ÞORLEIFSSON
SKRIFAR
Deng Xiaoping var í fréttapistl-
um kallaður „síðasti Kínakeisar-
inn“ og þá átt við að enginn
helstu ráðamanna landsins eftir
hans daga bæri höfuð og herðar
yfir hina. En nú er þegar farið að
tala um Jiang Zemin, forseta
Kína, sem „keisara“ þess.
Þetta byggist á því að talið er
að á flokksþingi kínverska
kommúnistaflokksins, ríkisflokks
landsins, sem fram fór fyrir
skömmu, hafi Jiang tekist að
ganga svo frá málum að nú sé
hann án alls vafa valdamesti
maður ríkisins ekki einungis að
formi til, heldur og í raun.
Hraði breytinga eykst
Jiang tókst á flokksþinginu að
víkja til hliðar helsta keppinaut
sínum um völdin, Qiao Shi.
Qiao var á þinginu ýtt út úr
fastanefnd stjórnmálaráðs ríkis-
flokksins, sem er mjög valdamik-
il. I stað hans kvað nú þriðji
valdamesti maður Kína (næst á
eftir Jiang og Li Peng, forsætis-
ráðherra) vera orðinn Zhu
Rongji, aðstoðarforsætisráð-
herra. Talið er að hann taki við
af Li næsta ár sem forsætisráð-
herra.
Þessi umskipti mega táknræn
teljast með hliðsjón af því, að
Zhu Rongji hefur lengi verið
helsti ráðamaður í Kínastjórn
um efnahagsmál.
Internasjónallinn, einnig kall-
aður Alþjóðasöngur verkalýðsins,
var leikinn í lok flokksþingsins í
Alþýðuhöllinni í Peking, en
breskur fréttamaður kemst svo
að orði að í eyrum þingfulltrúa
hljóti söngur þessi að hafa
hljómað eins og leifar frá Iiðnum
tíma. Samkvæmt sumum Kína-
fræðingum breytist efnahagslíf
fjölmennasta ríkis heims nú
hraðar en líklega nokkru sinni
fyrr í sögu þess. Og breytinga-
hraðinn er líklegur til þess að
aukast. Stefna Jiangs er sem sé
að stórauka einkavæðingu (þótt
það sé ekki sagt berum orðum
þarlendis) og „endurskipuleggja"
ríkisfyrirtæki.
Lengi hefur
legið í loftinu
að út á þessa
braut yrði snú-
ið, en frétta-
maður breska
blaðsins Sun-
day Times
skrifar eigi að
síður að fyrir
fáeinum mán-
uðum aðeins
hefðu margir
talið það
óhugsandi.
Alþjóðahyggjan er dáin
- alþjóðahyggjan lifir
Alþjóðahyggja verkalýðsins er,
sem fyrr er að vikið, líklega ekki
mjög hátt metin í Kína nú til
dags, en Jiang og fleiri ráðamenn
þar eru þeim mun áhugasamari
um alþjóðahyggjuna á vettvangi
fjár- og efnahagsmála, sem und-
anfarið hefur mjög magnast. Ji-
ang vill koma Kína fyrir alvöru
inn í heimsefnahagslífið, eins og
það er orðað. í því ráða Vestur-
lönd enn mestu, og er talið að Ji-
ang sé þess vegna kappsmál að
bæta samskiptin við þau, og þá
einkum voldugasta ríki Vestur-
landa og heimsins alls, Banda-
ríkin.
Því hefur lengi verið haldið
fram, að mörg og stór iðnfyrir-
tæki í ríkiseigu væru „skemmd í
kjarna“ kínverska efnahagsund-
ursins, eins og einn fréttaskýr-
andinn lætur það heita. Tap var
á helmingi fyrirtækja þessara sl.
ár. En að loka þeim þýddi að
milljónir verkamanna og að-
standenda þeirra væru reknar út
á vinnumarkað kapítalismans
nýja. Það gæti
hleypt af stað
alvarlegri
ókyrrð í þessu
risavaxna þjóð-
félagi. Ymislegt
bendir til þess
að slík ókyrrð
sé skammt
undir yfirborð-
inu. Frést hefur
af mótmæla-
fundum verka-
manna, sem
ekki fengu laun
greidd á tilsett-
um tíma. Og
yfir 100 milljónir verkamanna úr
sveitum eru meira eða minna á
faraldsfæti við að leita sér að
vinnu í stórborgunum. Kjara-
munur ríkra og fátækra er orð-
inn allmjög áberandi og eitt af
helstu óánægjuefnum hinna síð-
arnefndu.
Upphaf lýðræðisþróimar?
Jiang er sagður gera sér vonir um
að með einkavæðingunni takist
að bæta lífskjör landsmanna, á
heildina litið, og að það leiði til
þess að fleiri og fleiri gerist hlut-
hafar í fyrirtækjum og verði þar
með ánægðari með ástandið.
Eitt alvarlegustu vandamál-
anna sem stjórn Jiangs hefur við
að glíma er spilling, sem fer vax-
andi, að sögn manna sérfróðra
um þetta. A flokksþinginu sagði
Jiang að stjórnsýslukerfi ríkis-
flokks og ríkis væri gagnsýrt af
spillingu og fordæmdi það
ástand harðlega. Heyrst hefur að
herinn sé stór hluthafi í spilling-
unni. Jiang kvað hlusta með at-
hygli nokkurri á unga háskóla-
menn og tæknikrata, sem sumir
kunna að líta svo á að valdaein-
okun ríkisflokksins og vöntun á
lýðræði hljóti að leiða af sér
spillingu. Frelsi í efnahagsmál-
um muni aldrei verða stórvand-
ræðalaust nema nokkurt frelsi í
stjórnmálum sé því samfara.
Vera má að innan kínversku
forystunnar sé komið ofarlega
viðhorf á þá leið, að frjálsræði í
stjórnmálum verði að aukast ef
takast eigi að koma í veg fyrir fé-
lagslega sprengingu. Síðan 1987
hafa þorpsstjórnir verið kosnar
og virðast sumir erlendir frétta-
skýrendur telja að þær kosningar
hafi viða verið nokkuð svo lýð-
ræðislegar. Nýverið fréttist að til
stæði að færa það lýðræði út
með því að efna til kosninga í
stærri stjórnarumdæmum. Bent
er á til samanburðar að þannig
hafi verið byrjað að innleiða lýð-
ræði á Taívan, en þjóðernissinn-
ar stjórnuðu því eylandi lengi vel
af engu minni einræðishörku en
kommúnistar kínverska megin-
landinu.
Jiang Zemin virðist
bera höfuð og
herðar yfir aðra í
Mnversku forystunni.
Hann boðar
stórauhna einkavæð-
ingu og viU koma
Kína fyrir alvöru
inn í heimsefna-
hagskerfið.
NORÐURLÖND
Rasmussen flytur
stefnuræðu
Paul Nyrup Rasmussen, forsæt-
isráðherra Danmerkur, flutti í
gærmorgun stefnuræðu ríkis-
stjórnar sinnar. Þar boðaði hann
m.a. sparnaðaraðgerðir í rfkis-
rekstri auk þess sem hann til-
kynnti að Danir myndu ganga til
kosninga þann 28. maí í vor um
breytingar þær sem gerður voru í
sumar í Amsterdam á
Maastrichtsáttmála Evrópusam-
bandsins
Þéttiefnið þoldi ekki
vatn
Hundruð fiska hafa fundist
dauðir í nágrenni nýrra ganga.
Orsökin reyndist vera sú að
þéttiefni, sem notað var til að
koma í veg fyrir leka í göngun-
um, innihélt eiturefni sem
komust í umhverfið þegar efnið
komst í snertingu við vatn.
Ávítur vegna líknar-
dráps
Siðanefnd norskra lækna vill láta
vísa 79 ára gömlum lækni,
Christian Sandsdalen, úr norsku
læknasamtökunum vegna líknar-
dráps sem hann framdi í fyrra-
sumar þegar hann batt endi á líf
45 ára gamallar konu sem var
með heila- og mænusigg.
HEIMURINN
Netanyahu skipar nefnd
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Israels, setti í gær á
laggirnar þriggja manna nefnd
sem á að fara ofan í saumana á
hinni misheppnuðu tilraun ísra-
elskra leyniþjónustumanna að
ráða af dögum einn leiðtoga
Hamas-hreyfingarinnar í Jórdan-
íu. Netanyahu hefur verið harð-
lega gagnrýndur fyrir hlut sinn í
tilræðinu.
Yassiu býður vopnahlé
Ahmad Yassin, stofnandi og and-
legur leiðtogi Hamas-hreyfingar-
innar, sagðist í gær - degi eftir
heimkomu sína til Gasasvæðis-
ins - reiðubúinn til að hvetja
Iiðsmenn Hamas til að stöðva
árásir á ísraelska borgara ef Isra-
elar hætti niðurrifí húsa og land-
námi á hernumdu svæðunum.
Betlarar fengu leifamar
Nálægt 600 betlarar fengu í gær
að gæða sér á leifunum úr brúð-
kaupsveislunni sem konungs-
hjónin á Spáni héldu dóttur
sinni Kristínu og handboltakapp-
anum Inaki Urdangarin í
Barcelona á laugardaginn.
Sapmingaviðræður á
N-Irlandi
Fyrstu raunverulegu samninga-
viðræður allra deiluaðila á Norð-
ur-Irlandi hófust í gær þegar
fulltrúar átta stjórnmálaflokka,
jafnt kaþólska minnihlutans sem
meirihluta mótmælenda, settust
niður til að semja um frið eftir
nærri þriggja áratuga ófrið í
landinu.