Dagur - 11.10.1997, Blaðsíða 1
Heilinn bilar síður
Rannsókn leiddi í ljós
mnn meiri vdtræna
getn aldraðra í sveit-
arsamfélagi en í sjáv-
arplássi á landsbyggð-
inni. Heilabilaðir
reyndust um tvöfalt
fleiri við sjóinn.
Getur verið að íslensk bænda-
menning Ieiði til betri vitrænna
hæfileika en íslensk sjómanna-
menning? Þessari spurningu er
varpað fram af læknum sem
enga skýringu gátu fundið á
verulegum mun á vitrænni getu
70 ára fólks og eldra, sem í ljós
kom í rannsókn þeirra, á tveim
í sveit en við sjó
aðskildum landsvæðum,
annars vegar þar sem
Iandbúnaður hefur verið
aðalatvinnuvegur og hins
vegar þar sem það var
sjávarútvegur. Rannsókn-
in bendir einnig til þess að
heilabilun sé meira en
tvöfalt algengari (nær
36%) við sjávarsíðuna en í
sveitinni (rúm 14%).
Að rannsókninni stóðu
fjórir öldrunarlæknar og
segja þeir frá niðurstöð-
unum í Læknablaðinu.
Markmiðið var að fá vitn-
eskju um vitræna hæfi-
leika aldraðra Islendinga í
afmörkuðu dreifbýli og
hugmynd um algengi
heilabilunar. Reynt var að
ná til allra á svæðunum
Sveitasælan svíkur engan. - mynd: gs
sem náð höfðu sjötugs-
aldri. Heimtur voru tæp
80% á báðum svæðunum,
280 einstaklingar í sveit-
inni og 190 við sjávarsíð-
una. Notast var við íjögur
einföld próf á vitræna
getu, sem oft hafa verið
notuð í samsvarandi
könnunum erlendis. Ut-
koman úr öllum prófun-
um reyndist marktækt
betri á landbúnaðarsvæð-
inu.
Hugsanlegar skýringar
reyndust vandfundnar.
Skólaganga var álíka h'til í
báðum hópunum. Hlut-
fall þeirra sem líkamlegt
ástand gat hamlað, t.d.
vegna lélegrar sjónar,
heyrnar, hreyfifærni og
skjálfta, var líka það sama (20%)
og engu breytti heldur þó allt
verulega heilabilað fólk væri tek-
ið út. Brottflutningur frá þessum
svæðum á árunum 1920-70 var
svipaður og skýrði því ekkert.
Skýringin fólst heldur ekki í
stærsta áhættuþættinum - aldr-
inum - því fólkið í sveitinni var
m.a.s. örlitlu eldra en hinir.
Arfgengi eða mismunandi
menning er það sem höfundum
dettur helst í hug sem hugsan-
legar skýringar, en þá þætti sé
ekki hægt að meta út frá fengn-
um niðurstöðum. Skýringin á því
af hverju gömlu sveitafólki geng-
ur áberandi betur að Ieysa af
hendi einföld verkefni sem
byggja á vitrænni getu er því
ófundin enn. — HEI
Póstiijtn
meðra
Póstur og sími á Akureyri tók
skref inn í framtíðina í vikunni
þegar rafbíll var notaður við
dreifingu á pósti í einu stærsta
hverfi bæjarins, Lundahverfi.
Rafveita Akureyrar lánaði bílinn
til starfans og hefur tilraunin tek-
ist mjög vel að sögn Skúla Páls-
sonar, fulltrúa hjá Pósti og síma.
„Rafveitan sem er eigandi bíls-
ins bauðst til að lána okkur hann
í tilraunarskyni en Svíar hafa
notað nákvæmlega eins bfla við
póstdreifingu. Þetta er í fyrsta
skipti sem þetta er reynt hérlend-
is. Forráðamenn fyrirtækisins
hafa sýnt þessu mikinn áhuga og
hafa Reykvíkingar t.d. fylgst mjög
spenntir með þessu," segir Skúli.
Engin vandamál
„Bíllinn hefur reynst mjög vel í
margskonar veðri en það hefur
reyndar ekki snjóað. Hann er
mjög góður í brekkum, fer reynd-
ar ekki hratt en nær þó um 35
kílómetra hámarkshraða. Svo er
ami
m M „Meiriháttar gæjalegt,"
'0 I segir Lilja Stefánsdótt-
'r Pfctburðwkona sem
1' notid hefur þess lieió ■
urs I heila vlku að
g| dreifa póstinum á Ak-
bHUS ureyri með rafbfl Sktíli
Pálsson fulltrtíi segir
að tilraunin hafi tekist
mjög vel.
- mynd: brink
hann algjörlega hljóðlaus og full-
komlega umhverfisvænn. Mið-
stöðin er gasknúin og hann er
heitur og góður. Það er líka þægi-
legt að geta snúið honum alveg á
punktinum.“
Lilja Stefánsdóttir póstburðar-
kona hefur ekið bílnum í heila
viku og hún er mjög ánægð með
viðkynninguna. „Þetta er meiri-
háttar gæjalegt og vekur milda at-
hygli. Krakkarnir eru mjög for-
vitnir og vilja skoða bílinn. Ég á
örugglega eftir að sakna þessa
bíls þegar hið hefðbundna tekur
aftur við, sagði Lilja í gær. — BÞ
BIACKSlDECKER
Handverkfæjj
SINDRI Sí
;o
;o
■P
■Öv
-sterkur í verki
LTl
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024