Dagur - 11.10.1997, Síða 4
4- LAUGARDAGVR ll.OKTÓBER 1997
rD^tr
FRÉTTIR
Brotajitáhnur fluttur af
Háfsfjöru
Fyrirtækið Hringrás byijar á næstu vikum að flytja á brott brotajárn úr
Víkartindi, þar sem hann liggur á Háfsfjöru eftir að skipið var skorið
þar í sundur í sumar. Afráðið var að bíða til haustsins með þá flutninga,
eða þar til kviksyndi sandsins myndi fijósa. „Þá verður sandurinn alveg
einsog malbik,“ segir Heimir Hafsteinsson, oddviti í Þykkavabæ, og að
þá skapast bestu og raunar einu aðstæðurnar til að flytja járnið á brott.
Vill leggja áfengisvamanefnd
niður
Svanur Kristinsson, formaður áfengisvarnanefndar Selfoss, lagði til á
síðasta fundi nefndarinnar að hún verði Iögð niður frá og með næsta
kjörtímabili og verkefni hennar falin félagsmálaráði bæjarins. I samtali
við Dagskrána segir Svanur að hann telji að verkefnum nefndarinnar
sé altjend betur fyrir komið hjá félagsmálaráði, en það sé í meiri og
betri tengslum við bæjarlífið en áfengisvarnanefndin. Dagskráin segir í
frétt sinni að nefndarmenn hafi tekið misvel í þessa róttæku hugmynd
Svans.
Kynna gufuna sem orkugjafa
Stofnað hefur verið til stefnumótunarverkefnis í atvinnumálum og
markaðssetningu Hveragerðis sem ferðmannabæjar. Dagskráin hefur
eftir Olaf Forberg, verkefnisstjóra, að meðal annars verði lögð á það
áhersla að kynna gufu sem orkugjafa, til dæmis fyrir Qárfestum.
„Gufan er ódýr og vistvænn orkugjafi sem er lítið kynnur," hefur blað-
ið eftir Olaf.
Forvltiii
Hjörleifur Guttormsson hefur lagt fram Alþingi fímm fyrirspurnir til
iðnaðarráðherra. Hann spyr um álbræðslu Norsk Hydro á Islandi,
stöðu viðræðna við Atlantsál-samsteypuna vegna álbræðslu á Keilis-
nesi, kfsilmálmverksmiðju á Reyðarfírði, sölu á raforku um sæstreng
til útlanda og stóra olíuhreinsunarstöð hérlendis
Kjör stjómenda Pósts og sima
Ogmundur Jónasson vill fá að vita hver séu
kjör stjórnenda Pósts og síma og leggur fram
fyrirspurn til Halldórs Blöndal samgöngu-
málaráðherra þar um. Hann vill fá að vita hver
séu kjör 10 æðstu stjórnenda fyrirtækisins og
hvernig þau eru ákveðin. Hvort það sé í laun-
um, í öðrum beinum fjármunum, í bifreiðum
eða öðru. Þá spyr hann sérstaklega hvort
keyptar hafi verið bifreiðar sérstaklega fyrir
þessa einstaklinga og þá hverja og hvað það
hafi kostað.
ViH HaUdór veg?
Hjörleifur Guttormsson spyr Halldór Blöndal samgönguráðherra að
því hvort hann sé tilbúinn að beita sér fyrir því að samhliða lagningu
nýs kafla á hringvegi frá Langadal að Armótaseli verði lagður nýr veg-
ur frá Brunahvammshálsi stystu leið suður hringveg sem Iiður í stór-
verkefninu yfir Fjöllin.
Breyta lögum um umboðsmaim
bama
Þau Kristjana Bergsdóttir, Jón Kristjánsson og Hjálmar Arnason hafa
Iagt fram lagafrumvarp um breytingu á lögum um umboðsmann
barna. Þau leggja til að 8. gr. laganna hljóði svo: Skýrsluna skal prenta
og birta opinberlega fyrir 1. september ár hvert og taka til umræðu á
Alþingi. — S.DÓR
Um milljón rjúpur bíða veiðimanna i vetur.
F/ngÍTin skortur
á jólarjúpu
Rjúpnastofninn
stærri en árum sam-
an. Samt talin hætta
á svæðisbundinni of-
veiði í nágrenni
Reykjavikur.
Rjúpnaveiði hefst eftir tæpa viku
og eru menn bjartsýnir á góða
vertíð. Það byggist annars vegar
á því að stofninn er stærri nú en
verið hefur um margra ára skeið
og einnig hafa hausthlýindin
mögulega áhrif. „Eg hef rætt við
menn í smalamennsku um allt
land og þeir hafa víða séð veru-
Iega mikið af fugli," segir Sigmar
B. Hauksson, formaður Skot-
veiðifélags Islands.
Ólafur Nielsen fuglafræðingur
er sérfróður um rjúpnastofninn.
„Hann er á uppleið. Það þarf að
fara 6 ár aftur til að finna jafn-
mikið og núna samkvæmt taln-
ingum. Hretið í vor hefur ekki
haft áhrif á stofnstærð," segir
Ólafur.
Mflljón rjúpur á landinu
Leiða má getum að þ\á að um
milljón fuglar séu í rjúpnastofn-
inum. I fyrra voru skotnir um
150.000 fuglar. Sumir fræði-
menn áætla að um 10% stofns-
ins séu veidd árlega en veiðihlut-
fallið er mjög misjafnt eftir hér-
uðum. Langmesta sóknin er í
nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
„Það gæti verið svæðisbundin of-
veiði þar en ég get ekki fullyrt
um það. Á öðrum svæðum er aft-
ur mjög lítið veitt. Veðurfarið
ræður alltaf miklu en ég er á
móti þessum aflamóral. Menn
eiga bara að líta á þetta sem
sport,“ segir Ólafur.
Aðeins hefur ræst úr gæsa-
veiðinni en hún er þó léleg um
allt land og spilar votviðri þar inn
í. Síðustu gæsirnar fara að lík-
indum utan í mánaðarlok. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins eru
líkur á að gæsaveiði verði mun
minni en í fyrra. — BÞ
Háspeimulína fer
í iimbveríismat
Umliverfisáhril af
lagningu háspeunu-
línu yfir lönd jarða í
Grímsnesi metiu, en
ýmsir höfðu mót-
mælt. Davíð herst við
Golíat, segir hóudi í
Grímsnesi.
Umhverfísráðherra hefur ákveð-
ið að metin skuli umhverfisáhrif
af lagningu 400 KW háspennu-
línu frá Tungnársvæðinu að
Sandskeiði, en þessi framkvæmd
er fyrirhuguð vegna virkjunar- og
stóriðjuframkvæmda. Landeig-
endur í Grímsnesi og Náttúru-
verndarsamtök íslands kærðu að
umhverfisáhrif af þessari fram-
kvæmd skyldu ekki metin.
Landsvirkjun bar því við gagn-
vart kærendum að iðnaðarráð-
herra hefði veitt leyfi til fram-
kvæmdanna árið 1991 og þá
væri lagning Iínunnar jafnframt
inni á staðfestu aðalskipulagi
sveitarinnar. Leyfi iðnaðararráð-
herra miðast hinsvegar við 220
KV línu, færri turnstæði og ekki
jafn breiðar þverslár í möstrum
og nú stendur til að setja upp. -
Með þetta til hliðsjónar telur
Guðmundur Bjarnason um-
hverfisráðhera að rétt sé að
Skipulag ríksins meti umhverfis-
áhrif af Iagningu línunnar, en
taka ber fram að lög um um-
hverfismat tóku gildi árið 1993 -
það er eftir að iðnaðarráðherra
gaf sitt Ieyfí út.
I samtali við Dag sagðist
Tómas Brandsson, bóndi á
Ormsstöðum í Grímsnesi, fagna
því að ráðherra skyldi setja málið
í þennan farveg. „Það var þetta
sem við báðum um, enda teljum
við ekki eðlilegt að leggja há-
spennulínu hér þvert yfir vin-
sælasta útivistarsvæði landsins.
Við viljum að línan verði lögð
ofan við byggðina, inni á hálend-
inu,“ sagði Tómas. Hann sagði
að Landsvirkjun hefði boðið eig-
endum þeirra jarða í Grímsnesi,
sem línan á að liggja yfír, bætur -
en þær hefðu ekki hugnast
mönnum; svo lágar hefðu þær
verið.
„Það er gott að vita til þess að
nú eigi að meta umhverfisáhrif
af lagningu þessarar háspennu-
línu og það gefur okkur bændum
von. Hinsvegar vitum við að
Landsvirkjun hefur víða ítök í
stjórnkerfinu og því erum við hér
í hlutverki Davíðs á meðan þeir
Ieika Golíat," sagði Tómas
Brandsson. — SBS.