Dagur - 11.10.1997, Blaðsíða 3

Dagur - 11.10.1997, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 24.SEPTEMBER 19 9 7 - jffif SÖGUR OG SAGNIR Gullöldiii á Akranesi Hér á árum áður voru Akurnes- ingar þekktir fyrir að rækta góðar kartöflur og stúlkur þóttu hvergi fegurri en þar. I því sambandi má minna á vísuna, sem ég man ekki í svipin eftir hvern er, en hún er svona: Enginn þarf að vera i vafa um virðulegan heiðurssess. Því kartöflur og konur hafa kosti sannað Akraness. Nú eru gömlu góðu kartöflu- garðarnir, sem voru nánast við hvert hús, horfnir undir hús og grænar lóðir og því ekki ræktaðar þar gömlu og góðu kartöflurnar, en konumar á Akranesi eru ennþá fallegar og jafnvel fegurri en áður. Síðustu áratugina hafa knatt- spyrnumenn leyst kartöflurnar af hólmi. Eg ætla á næstu vikum að spjalla við ykkur um upphaf knatt- spyrnunnar á Akranesi, því eins og flestir vita, hafa Akurnesingar get- ið sér gott orð sem knattspymu- menn og borið hróður bæjarins, bæði sem einstaklingar og Iiðs- heild bæði hér og erlendis. Þvl er Akranes nú í hugum flestra knatt- spyrnubærinn á Islandi. Þótt svo slysalega hafi tekist til í sumar, að Skagamenn hafi orðið að sjá eftir íslandsbikarnum í knattspyrnu til Vestmannaeyja eftir 5 ára sam- fellda vist á Akranesi, er það bæði víst og satt að þeir munu mæta tví- efldir til leiks að ári og freista þess að ná bikarnum aftur til Akraness, þar sem þeir telja að hann eigi að vera. Fyrsta knatt- spymufélagið Á þessu ári eru 75 ár liðin síðan fyrsta knattspyrnufélagið á Akra- nesi var stofnað, en það var Knatt- spyrnufélagið Kári. Þótt Kári sé fyrsta knattspyrnufélagið á Akra- nesi, höfðu áður starfað þar félög eins og Ungmennafélag og íþrótta- félag er Hörður nefndist, en hvor- ugt þeirra hafði knattspymu beint á stefnuskrá sinni. Forsögu stofnunar Kára má bæði beint og óbeint rekja til hins merka æskulýðs og trúarleiðtoga, sr. Friðriks Friðrikssonar, sem á ár- inu 1911 hafði stofnað knatt- spyrnufélagið Val í Reykjavík og síðar átt þátt í stofnun Knatt- spyrnufélagsins Hauka í Hafnar- firði. Sr. Friðrik var mikið á Akranesi á þessum árum og þjónaði síðar sem prestur þar í forföllum sóknar- presta. Hann hélt samkomur í kirkjunni fyrir drengi, sem voru Ijölsóttar. Auk þess að innræta þeim guðstrú og góða siði, var honum einkar lagið að flétta inní mál sitt frásagnir ýmsu öðru, sem vakti áhuga hinna ungu drengja. Þar á meðal sagði hann þeim frá knattspymu og Knattspyrnufélag- inu Val og hvað strákarnir þar væru að gera. Hvatti hann þá til að fylgja fordæmi þeirra og stofna knattspymufélag. Það var svo 26. maí árið 1922 að nokkrir drengir á aldrinum 10-14 ára mæltu sér mót og ákváðu að stofna knattspyrnufélag. Ymislegt vantaði til að hið nýja félag stæði undir nafni og það sem þeim reyn- ist erfiðast var að eignast knött, en á þessum árum kostaði hann hvor- ki meira né minna en 10 krónur og slíka Qármuni höfðu þeir ekki und- ir höndum. Þeir gripu til þess ráðs að afla peninga til boltakaupanna með fiskvinnu, kartöflurækt og ftjálsum framlögum. Þetta tókst og boltinn var keyptur. Sveinbjörn Oddsson félags- og verkalýðs- frömuður aðstoðaði þá við að semja lög fyrir félagið og fyrsti völlurinn var Langisandur, renni- sléttur og víðáttumildll. Á fyrstu æfingunni þar var félaginu valið nafn, sem fór fram með þeim hætti að hver drengur skrifaði sína uppástungu í sandinn og komu þar fram m.a. nöfnin Kári og Hörður Hólmvetjakappi. Eftir nokkra um- ræður var samþykkt að félagið skyldi heita Knattspyrnufélagið Kári. Nokkur félög stráka spruttu upp eftir stofnun Kára, en þau lifðu yf- irleitt stutt og fara engar sögur af þeim. Þeir sem stofnuðu Kára áttu flestir heima á Uppskaga um, eins og það var kallað á þessum árum og því kom að því að strákarnir á Axel Andrésson fyrsti þjálfarinn, sem rádinn er til Akraness, auk þess sem hann var fyrsti lögreglumaðurinn á Akranesi. Við komu hans færðist mikið Iff í allt íþróttalíf á Akranesi Síðar varð hann þekktur um land allt fyrir æfin- gakerfi sitt í knattspyrnu, sem nefnt var „Axelskerfið“. Niðurskaganum stofnuðu með sér félag. Það var árið 1924 að þeir stofnuðu knattspyrnufélag, sem þeir nefndu Njörð, en breyttu nafninu fljótlega í Knattspyrnufé- lag Akraness (KA). Þessi skipan mála hélst að mestu næstu áratug- ina, að Kára menn voru á Upp- Áríð 1929 gaf Skafti Jónsson útgerðar- maður bikar þann er hér birtist mynd af til keppni I fyrsta aldursflokki f knattspyrnu. Bikarnum fylgdi sæm- darheitið „besta knattspyrnufélag Akraness". skaganum, en KA menn á Niður- skaganum og þótti það hið versta mál ef einhver af Uppskaganum gekk í KA og öfugt, enda oft á tíð- um mikill rígur milli félaganna og þess nokkur dæmi að menn hafi slegist að loknum knattspyrnu- leikjum. Sr. Friðrik Fríðriksson predikar í Akraneskirkju i síðasta sinn 10 aprí/ 1960. Þá kvaddi hann söfnuðinn á 92 aldursári og alblindur. Sr. Friðrik þjó- naði Akraneskirkju á árinu 1932 og aftur 1934-1936. Hann var gerður að að heiðursborgara á Akranesi 1947. árið 1933 og eftir andlát hans var reglugerðinni um bikarinn breytt. Hann var nefndur Skaftabikarinn og að hann yrði farandgripur, sem ekki ynnist til eignar. Fyrst var keppt um Skaftabikar- inn 1929 og fór Kári með sigur. Leikurinn þótti mikill viðburður og virkaði hvetjandi á knattspyrnu- mennina, þannig að áhugi fyrir æf- ingum jókst til muna. Þá var jafn- framt farið að keppa í öðrum ald- ursflokkum milli félaganna og allt starf félaganna komst í fastara form. Þjálfari ráðinn Þrátt fyrir að mikil keppni og rígur væri milli KA og Kára, höfðu félögin alla tíð mjög gott og náið samstarf. Það var strax mikill knattspyrnuáhugi á Akranesi og metnaður hjá ungum mönnum til að verða góðir knattspyrnumenn. Það varð því úr að árið 1933 réðu félögin sameiginlega til sín þjálf- ara. Sá sem varð fyrir valinu var enginn annar en Axel Andrésson kunnur íþróttafrömuður frá Reykjavík. Axel var einn ötulasti forvígismaður knattspyrnunnar á Islandi á þessum árum. Hann var einn af stofnendum Knattspyrnu- félagsins Víkings í Reykjavík og forystumaður þess um langt skeið. Þá ferðaðist hann um land allt um áratuga skeið, sem farandkennari á vegum ISÍ og KSl og hélt nám- skeið í knattspyrnu og handknatt- Skaftabikarinn, gefinn af Skafta Jónssyni útgerðarmanni 1929. Bikarínn, sem er hinn mesti dýrgripur, er útskorinn af Ftíkarði Jónssyni myndskera. Fyrstu Akranesmeistara í knattspyrnu 1929: Aftasta röð frá vinstri: Jón Steinsson, Bjarni Bjarnason, Ólafur Jónsson, Halldór Guðmundsson, Gústaf Ásbjörnsson. M/ðröð frá vinstri: Hjörtur Sigurðsson, Valtýr Benediktsson, Sigurður Þorvaldsson. Fremsta röð frá v/nstri: Hannes Guðmundsson, Magnús Magnússon, Hannes Ólafsson. iðkan knattspyrnu og voru kapp- leikir milli félaganna fastur liður. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru á þessum árum nánast engar. Langisandur var því notaður til knattspyrnuæfinga, svo og kart- öflugarðar eftir því sem við var komið og túnblettir víðsvegar um bæinn. Fljótlega var farið að huga að vallargerð og var fyrst leikið á velli, þar sem nú eru gatnamót Stekkjar- holts og Kirkjubrautar. Hann þótti að vísu ekki góður, en samt vel nothæfur, enda menn ekki svo kröfuharðir í þá daga. Kappleikir milli KA og Kára og félagsstarf á vegum þeirra var helsti vettvangur ungs fólks á Akranesi. Arið 1929 verða nokkur þátta- skil í sögu knattspyrnunnar á Akra- nesi, er Skafti Jónsson útgerðar- maður gefur bikar í 1. aldursflokki og fylgdi honum sæmdarheitið „Besta knattspyrnufélag Akra- ness“. Þessi bikar, sem enn er til, er einn merkasti gripur, sem keppt hefur verið um í knattspyrnu á ís- landi, því hann er útskorinn af hinunt þekkta listamanni Ríkarði Jónssyni myndskera. Skafti ákvað að bikarinn skyldi vinnast til eign- ar með sigri í þijú ár í röð eða fimm sinnum alls. Skafti féll frá leik fýrír pilta og stúlkur. Hann bjó til sérstakt æfingakerfi, sem nefnt var „Axclskerfið". Eg man eftir því hve mikil tilhlökkun var hjá okkur strákunum, þegar von var á Axel og við tókum þátt í æfingunum hjá honum af lífi og sál og lögðum all- an okkar metnað í standa okkur sem best, enda hafði hann einstakt lag á því að gera æfingarnar skemmtilegar. Margir þeirra, sem síðan gerðu garðinn frægan og skipuðu fyrsta „Gullaldarlið Akur- nesinga" stigu fyrstu skref í knatt- spyrnunni hjá Axel. Þá má geta þess, að jafntframt því að vera þjálfari var Axel gerður að lög- regluþjóni og mun hann vera sá fyrsti, sem gegndi því embætti á Akranesi. Axel lést í júní 1961, 66 ára að aldri og hafði hann haldið sitt síðasta námskeið á Húsvík, þrem vikum áður. Við komu Axels til Akraness færðist nýtt líf í alla íþróttastarf- semi, því hann þjálfaði keppnis- flokka, hélt námskeið í knatt- spyrnu og handknattleik fyrir stúlkur, auk þess sem hann hélt námskeið fyrir dómara. Vallarmál- in voru tekin til enduskoðunar, þar sem gamli knattspynuvöllurinn þótti ekki boðlegur lengur. H.Dan

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.