Dagur - 11.10.1997, Side 8

Dagur - 11.10.1997, Side 8
Vm - LAVGARDAGUR 11. OKTÓBER 19 9 7 MINNINGARGREINAR ANDLÁT Anna Arsælsdóttir Hólmgarði 4, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudag- inn 30. september. Axel Eyjólfsson frá Seyðisfírði, lést laugardaginn 4. október. Elín Þórólfsdóttir frá Hraunkoti, Litla-Hvammi 9a, Húsavík, lést á Sjúkrahúsi Þingey- inga miðvikudaginn 1. október. Guðbjörg Runólfsdóttir Efriey 1, Meðallandi, lést þriðju- daginn 30. september á hjúkrun- arheimilinu Klausturhólum. Guðmundur Freyr Halldórsson Faxatúni 16, Garðabæ, andaðist að morgni miðvikudagsins 1. októ- ber á Landspítalanum. Guðmundur Vigfússon skipsfíóri, frá Holti í Vestmanna- eyjum, andaðist á heimili sínu Hraíhistu, Hafnarfírði, aðfaranótt mánudagsins 6. október. Gunnar B. Einarsson Litlu-Grund, áður til heimilis í Nóatúni 26, lést aðfaranótt mið- vikudagsins 8. október. Gunnlaugur Stefánsson íyrrv. fulltrúi, frá Ærlækjarseli í Öxaríirði, Dalbraut 20, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum þriðju- daginn 7. október. Hallbjörg Bjamadóttir Laugavegi 62, lést á Landspítalan- um sunnudaginn 28. september. Haukur Hreggviðsson Ytri-Hlíð, Vopnafírði, lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur að kvöldi fímmtudagsins 2. október. Helgi Gunnlaugsson trésmiður, Heiðargerði 7, Reykja- vík, lést á heimili sínu 4. október. Hólmsteinn Aðalgeirsson múrarameistari, Hafnarstræti 17, Akureyri, lést á heimili sínu að morgni fimmtudagsins 2. október. Ingveldur Agústa Jónsdóttir lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 3. október. Jóna Magnúsdóttir Ljósheimum 9, Reykjavík, andað- ist á Landspítalanum þriðjudaginn 7. október. Jónas Geir Jónsson fyrrv. kennari, Húsavík, andaðist á Sjúkrahúsi Þingeyinga laugardag- inn 4. október. Lára Guðmundsdóttir hjúkrunarheimilinu Eir, síðast til heimilis að Skúlagötu 40a, Reykja- vík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir að morgni sunnudagsins 5. októ- ber. Lárus Agúst Lárusson Afíagranda 7, Reykjavík, lést fimmtudaginn 2. október. Símon Kristjánsson Túngötu 23, Vestmannaeyjum, andaðist mánudaginn 6. október. Stefanía Jóhannsdóttir Lönguhlíð 21, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánudaginn 6. október. Steindór Þórormsson Hraunbraut 41, Kópavogi, lést á heimili sínu miðvikudaginn 1. október. Sverrir Bjömsson Sólvallagötu 39, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 7. októ- ber. Trausti Runólfsson íyrrv. framreiðslumaður, andaðist þriðjudaginn 22. september sl. Viktor Bjömsson frá Akranesi lést á sjúkradeild Hrafnistu, Hafnarfírði, laugardag- inn 4. október. Vilhelmína Einarsdóttir Vatnsnesvegi 11, Kcfíavík, andað- ist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, þann 25. september sl. Guðmimdur Hörður Þórarinsson frá Háeyri Vestmannaeyjimi Guðmundur Hörður Þórarinsson var fæddur 10. desember 1936 að Háeyri í Vestmannaeyjum. Guð- mundur Hörður lést 26. september 1997. Foreldrar hans voru hjónin Þórar- inn Anton Jóhann Guðmundsson, f.4.7. 1910, d. 6. 11. 1970 og Elísa- bet Bjamveig Guðbjömsdóttir, f. 14. 10. 1914, d.2.7.1990. Systkini hans eru Asta Guðbjörg, búsett í Hafnarfirði, f.1938, gift Guðmundi Karlssyni; Óskar, búsett- ur í Vestmannaeyjum, f. 1940, kvæntur Ingibjörgu Andersen; og Þóranna, búsett £ Reykjavfk, f. 1944, gift Kristjáni Guðbjartssyni. Þann 29. desember 1956 gekk Guðmundur Hörður að eiga eftirlif- andi eiginkonu sína Sigurbjörgu Rannveigu Guðnadóttur, f. 29.des- ember 1935 í Vestmannaeyjum. Nú kveðjum við þig elsku Týssi , okkar hinstu kveðju, Guð veri með þér. Þegar missirinn er mikill er mjög erfitt að koma hugsunum sín- um á blað. Við eigum svo margar minningar um þig. Þú varst sá allra besti vinur okkar krakkanna og við krakkarnir litum svo mikið upp til þín. Þú varst hann „Týssi frændi í Eyjum“. Margar sögur koma upp í hugann um það hve góður frændi þú varst okkur. Eitt sinn er við systkinin vorum inni í sportvöruverslun og skoðuðum leðurfótbolta sem okkur langaði svo í, en gátum aðeins leyft okkur að skoða hann og vonast eftir honum f afmælisgjöf eða jólagjöf. Þá komst þú inn í búðina, varst staddur í bæn- um og sást okkur inn um gluggann. Þú tókst boltann og spurðir okkur hvort okkur langaði í svona bolta og við játtum því. Þá réttir þú Þórarni boltann og sagðir við afgreiðslu- manninn: „Ég ætla að fá þennan bolta“. Svona varst þú, vildir alltaf vera að gleðja aðra. Þegar við vorum lítil var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til ykkar Systu á Brekkugötuna. Okkur er mjög minnisstætt að haldnar voru margar púttkeppnir í stofunni. Alltaf var mjög gaman og keppnin hörð. Þú áttir svo gott með að tala við og gleðja börn hvort sem það var með skemmtilegum sögum eða ýmsum Ieikjum. Þér datt alltaf svo margt skemmtilegt í hug. Elsku Týssi við munum sakna þess mjög að sjá þig ekki þegar við komum til Eyja en við vitum að þú verður alltaf með okkur þar því í Vestmannaeyjum verður alltaf til í minningunni hann Týssi frændi. I morgunsktmu mættir þií á Guðsfund, máttlaus við þerruðum tár af hvörmum. Umhyggju þinnar nutum alltof stutta stund, að skilnaði vildum geta vafið þig örmum. Hvar sem verður glatt á góðri stundu, gengur þú um velli iðagræna þar. Oll þau verk sem höndum þínum fyrir fundu, fagurt vitni öðrum verkum einatt har. Við hlið þt'ns hinsta hvtlustaðar hörmum missinn einn og sérhver. Lífshlaup okkar hros þitt ávallt haðar, birtist okkur líkt og sól t desember. Elsku Systa, hugur okkar er hjá þér. Sorgin er sár og missirinn mik- ill. Þið voruð svo samrýmd, gerðuð alla hluti saman enda alltaf talað um Systu og Týssa í sömu andrá. Megi Guð vera þér styrkur í hinni miklu sorg. Þórarinn Jóhann, Guðbjartur Kristján og Vilborg Þóranna Kristjánsböm Elln Þórólfsdóttir Elín Þórólfsdóttir frá Hraunkoti fæddist á Sílalæk, Aðaldal, 14. október 1921. Hún Iést á Sjúkrahúsi Þingey- inga á Húsavík 1. október síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Þórólfur Jónasson, f. 20. apríl 1892, d. 15. janúar 1969, og Ingibjörg Jakobína Andrés- dóttir, f. 28. nóvember 1896, d. 29. september 1950. Hún var önnur í röðinni af sex systkinum. Sonur hennar Ingólfur Ama- son, f. 22. mars 1943. Faðir Arni Vigfússon frá Þorvalds- stöðum, Húsavík, f. 3. desem- ber 1921, d. 23. júlí 1995. Maki Þóra Jónsdóttir, f. 25. apríl 1948. Börn þeirra: Þrá- inn Maríus, f. 17. september 1968, Þórólfur Jón, f. 27. sept- ember 1972, Bergíind Ósk, f. 19. desember 1986. 21. júlí 1962 kvæntist hún Bergvini Karli Ingólfssyni, f. 27. júlí 1912, frá Húsabakka. Dóttir þeirra Ingibjörg Mar- ía Karlsdóttir, f. 25. september 1962. Maki Friðbjörn Óskars- son, f. 20. júní 1961. Börn þeirra: Erla Torfadóttir, f. 9. janúar 1980, Hafsteinn, f. 25. nóvember 1984, Björgvin, f. 6. febrúar 1988. Ferjan hefur festar losað, farþegi er einn um borð. Mér er Ijúft - afmætti veikitm mæla nokkur kveðjuorð. Þakkir fyrir hlýjan huga, handtak þétt og gleðibrag, þakkir fyrir þúsund hlátra, þakkir fyrir liðinn dag. J. Har. Okkur langar að kveðja þig elsku amma með örfáum orðum, þó við vitum að þú munt alltaf vera með okkur. Margt rifjast upp þegar við leiðum hugann að liðnum árum. Við minnumst allra góðu stundanna sem við frændsystkinin áttum með þér, eins og þegar okkur líkaði ekki maturinn heima laumuðumst við stundum í mat til ykkar við mis- jafna ánægju foreldra okkar. Oft sagðir þú okkur sögur og ævintýri frá gömlum tímum, t.d. eins og þegar þú og systkini þín voruð að alast upp í Hraunkoti. Þrátt fyrir öll þín veikindi vant- aði aldrei kímnigáfuna og aldrei kvartaðir þú þó við vissum að þér liði illa. Við barnabörnin kveðjum þig með miklum söknuði en við vit- um að þér líður vel núna. A stundum sem þessari minn- umst við orða Kahlil Gibrans: „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Elsku amma, við viljum þakka þér allar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Guð blessi minningu þína. Því skal ei með hryggð í huga horfa eftir sigldri skeið. Allra bíður efsti dagur, enginn kýs sérfar né leið. Trú á þann, sem tendrar lífið, tryggir sátt og frið t deyð. J. Har. Þráinn, Nonni, Berglind, Erla, Hafsteinn og Björgvin. Hver kannast við fólkið? Ef lesendur Dags þekkja einhverja á þeim myndum sem hér birtast eru þeir vinsamlega beðnir að snúa sér til Minjasafnsins á Akureyri, annað hvort með þvf að senda bréf í pósthólf 341, 602 Akurevri aða hringja í síma 462 4162 eða 461 2562 (símsvari).

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.