Dagur - 11.10.1997, Blaðsíða 4

Dagur - 11.10.1997, Blaðsíða 4
IV- LAUGARDAGUR 24.SEPTEMBER 1997 rD^ir SOGUR OG SAGNIR Nýjar draugasögur og gauilar VlÐFJARÐARUNDRIN eru hvergi nærri um garð gengin, eins og sjá má á frásögnum af miklum fyrirburði, sem birtust í Degi föstudaginn 3. október s.l. I aprílmánuði á síðasta ári varð fjöldi manns vitni að þeim undrum í Viðfirði, að megna steik- arlykt lagði um bæinn, sem er í eyði en björgunarsveit frá Neskaupstaða var þar við æfingar. Mikið bál varð af litlum kesti, skammt frá bænum og bvítklædd vera dansaði þar klukkustundum saman fyrir augun- um á björgunarsveitinni, sem hreyfði sig ekki úr húsi á meðan á ósköpunum stóð. Þegar eldaði að degi hvarf veran og bálið slökknaði. Þegar að var gáð var kösturinn óbrunninn, sem þó hafði skíðlogað hálfa nóttina. Talstöð sló út meðan elddansinn stóð yfir. Náttúrlegar skýringar á fyrirbærinu eru engar. Viðfjörður gengur suður úr Norð- tjarðarflóa, og er í honum eitt sam- nefnt býli, sem nú er í eyði, en búið hefur verið í á sögulegum tíma. Er það afskekkt mjög. Bærinn Iagðist í eyði 1955, en þá hafði sama ættin búið þar samfellt í tvær aldir. Reimt öldiun saman Reimt hefur verið í Viðfirði allt síðan á söguöld og eru margar sagnir um slys og voðaverk, sem rakin eru til búsetu þar og frægar eru allar þær verur sem gengu þar ljósum Iogum, með miklum eld- glæringum og settu skrekk í fólk með hrekkjum og miður kurteislegum uppátækj- um. Árið 1936 fórust þrír bræður ffá Viðfirði, sem voru í róðri þar úti íyrir. Mögnðust þá mjög reim- leikar á staðnum. Þórberg- ur Þórðarson rithöfundur var manna trúgjamastur á frásagnir af yfimáttúrleg- um fyrirbærum. Komst hann í kynni við fólk frá Viðfirði, sem sagði honum merkilegar sögur af öllum þeim undrum sem hentu — eftir það hörmulega slys. Það eru „Viðfjarðarundrirí' sem samnefnd bók fjallar um. I Viðfirði eru dysjar, sem sagðar eru til sanninda um illvirld og manndráp. Einhvern tímann áttu Viðfirðingar og Sandvíkingar að hafa barist út af beitarlandi og er dys yfir þá sem þar féllu. I skarði milli Viðfjarðar og Reyðarfjarðar er önnur dys og þar í eiga að vera bein nær tuttugu Spánveija, sem gengu á land og innfæddir unnu á. Skylt er hveijum þeim sem um skarðið fer, að kasta steini á dysina. I nærliggjandi fjöllum og dölum hafast við vættir, sem flestar sögur sýna að eru heldur leiðinlegar og eru kennd illvirki sem þjóðsagnarit- arar og aðrir hafa skráð. Svo er um fólskuverk sem framið var í Hrafn- kelsdal um miðja átjándu öld. Hef- ur Sigfús Sigfússon ásamt öðrum ritað þar um. Þar segir frá Gunn- laugi Amasyni, sem átti heima hjá foreldrum sínum að Brú á Efra- Viðfjörður fór í eyði 1955. Jökudal. Hann lagði hug á heima- sætuna á næsta bæ, Solveigu að nafni. Gerðist hann vinnumaður hjá föður hennar, sem Þorkell hét og bjó á Eiríksstöðum. Atti Gunn- laugur að gæta fjár í Hrafnkelsdal, sem var í eyði um þær mundir. Al- talað var að Gunnlaugur og Solveig væru heitbundin hvort öðru. Solveig átti á sem Glókolla var kölluð,og hafði á henni hið mesta dálæti. 1 dalnum þótti óhreint og þóttust menn í byggð sjá að Gunn- laugur yrði þar margs var, sem hann hafði lítið orð á. Eitt sinn kom hann til dæmis sprengmóður heim og hafði greinilega átt í höggi við eitt- hvað. Nokkru síðar fannst Glókolla dauð og var skrokkurinn illa farinn, brotinn og marin. A aðfangadag átti að drekka kaupöl, því þá áttu þau að trúlofast, Solveig og Gunnlaugur. Gekk hann í dalinn að sækja hesta og reka féð saman. Veður var bjart og snjór á jörðu. Ekki kom Gunn- laugur heim um kvöldið og næsta morgun var hafin leit að honum. Aður en leitarmenn lögðu upp, sagði Solveig þeim, að sér hafi vitrast unnusti sinn um nóttina. Hafi hann komið alblóð- ugur á gugga og sagt eitt- hvað á þá leið, að illa hafi Ný draugasaga ilrVió'TÓi verið farið með Glókollu, en ver hafi verið farið með sig. Inni í dalnum fundu leitarmenn för Gunnlaugs og traðk mikið og hafði verið glímt þar með átökum. Samhliða sporum Gunnlaugs voru önnur spor. Maðurinn hafði greini- lega slitið sig lausan og hlaupið, en sá sem elti náði honum oftar og var mikið traðk þar sem þeir áttust við. A leiru við ósa Skænadalsár lá Gunnlaugur dauður. Var hann snú- inn úr liði um axlir og hné, brjóst- kassinn brotinn og hjartað numið burtu og var horfið, eins og annar handleggurinn. Spor lágu frá vett- vangi og voru kringlótt eins og eftir hófa að aftan en að framan sem eft- ir amarklær. Lágu sporin suður á öræfi. Ekki lögðu allir trúnað á að óvættur hafi drepið Gunnlaug, heldur hafi dauða hans borið að af mannavöldum. Endur fyrir löngu voru tveir menn á ferð í Viðfirði og komu þar um kvöld og gistu í útikofa. Sagt er að þeir hafi verið ölvaðir og hafi sinnast. Endaði það með því að annar drap hinn, sem heitaðist við morðingja sinn og hótaði að hefna glæpsins, dauður. Vilja sumir rekja reimleika í Viðfirði til þeirra heit- strenginga. Bjarni sterki Sveinsson var fædd- ur 1769. Þegar hann bjó á Jökuldal átti hann erindi niður í fjörðu að hausti til. Seint um kvöld kom hann í Viðfjörð, sem þá var í eyði vegna reimleika. Baðstofuhró var uppistandandi. Hann fór á glugga og sagði að þeirra tíma sið, hér sé guð. Hér er enginn guð, var urrað í húsinu. Bjarni guðaði oftar á glug- ga, en fékk ávallt sama svar. Samt skreiddist hann inn og lagðist á rúmbálk. Er hann var nýsofnaður vaknar hann við að kastað er í hann katt- arhaus. Bjarni sterki lét sér ekki bregða en endasendi hausinn í sömu átt og hann kom úr, og lagð- ist aftur til hvíldar. Þá er kastað í VA RD A Alvöru pjóoustá fi/r'r alvöru tólk „Eg fékk kort frá bankarwm mmum um daginn, Gulldebetkort. Þetta kort segir engum hvað ég á mikla peninga. Enda kemur það engum við. Kortið segir að ég sé virkur og traustur viðskiptavinur. Bank'mn minn er tilbúinn til að ábyrgjasr það. Þetta kann ég að meta. Ég rreysri bankanum — bankinn trei/stir mér. “ Landsbankirm trei/stir fólki eins og Birgi og veitir því sveigjanlega fjármálaþjónustu í Vörðunni. Birgir ki/s öri/ggið og þægindin sem felast í því að hafa öll sín fjármál á einum stað. GlAt|debetkorjið er ávísun á fjölbrei/tta þjónustu Vörðunnar. Við bjóðum þér að slást í hópinn með Birgi. Vörðunni er margt í boði, meðal annars: Yfirdráttarheimild, allt að 300.000 kr. án ábi/rgðarmanns. Vörðulán, allt að 700.000 kr. án ábi/rgðarmanns. Gulldebetkortið, aðildarkort Vörðunnar sem veitir aðgang að ýmsum fríðindum. • Gullkreditkort, Visa og Viidarkort Flugleiða. Ferðaklúbbur f jölski/ldunnar. Bílalán, hagstæð lán til bílakaupa. Stighækkandi vextir á E'mkareikningi. Punktasöfnun, í hvert skipti sem þú notar gullkortin færð þú 2 punkta, hvar sem þú verslar. Með því að beina viðskiptum sínum á einn stað á fjölski/ldan auðvelt með að safna i/fir 15.000 punktum hjá bankanum áári ÍVildarkerfi Flugleiða. Vörðufélagar geta einnig safnað punktum með viðskiptum hjá Landsbréfum, með því að kaupa F+ fjölskyldutri/ggingu VÍS, og nú þegar hjá i/fir 160 verslunar-og þjónustufi/rirtækjum sem tengjast Vildarkerfi Flugleiða. Síðan má brei/ta punktum í peninga eða nota þá sem greiðslu vegna ferðalaga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.