Dagur - 01.11.1997, Blaðsíða 4

Dagur - 01.11.1997, Blaðsíða 4
4- LAUGARDAGUR l.NÓVEMBER 1997 rD^ir FRÉTTIR AKUREYRI Skátar vilja reka tjaldsvæði bæjarins Bæjarráð Akureyrar ræddi nýverið um uppbyggingu nýs tjaldsvæðis að Hömrum í tengslum við útilífsmiðstöð skáta sem þar er fyrirhug- uð samkvæmt sameiginlegri tillögu frá fundi skipulagsnefndar og um- hverfisnefndar bæjarins. Skátafélagið Klakkur stefnir að óbreyttum áætlunum varðandi Hamra í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar og lýsir áhuga á samningaviðræðum við Akureyrarbæ um uppbyggingu og rekstur tjaldsvæðis þar og taka jafnframt við rekstri tjaldsvæðisins við Þórunnarstræti. Bæjarráð frestaði afgreiðslunni. „Kontaktmaimainót“ í Noregi Bæjarstjóm Alesund í Noregi hefur boðið til vinabæjarmóts (kontakt- mannamóts) dagana 18. til 21. júní 1998. Mótshaldið tengist hátíð- arhöldum í tilefni af 150 ára afmæli Alesundbæjar. Háskólinn mótvægi við fólksflutninga Bæjarráð Akureyrar styður uppbyggingaráform Háskólans á Akureyri á Sólborgarsvæðinu af heilum hug og Iýsti því yfir á fundi með full- trúum Háskólans nýverið, þeim Þorsteini Gunnarssyni rektor, Jóni Þórðarsyni og Ólafi Búa Gunnlaugssyni. Bæjarráð telur eflingu Há- skólans á Akureyri mikilvæga aðgerð til mótvægis við þá mildu fólks- flutninga sem verið hafa frá landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið, Óskað hefur verið eftir viðræðum við ríkisvaldið um málefni Háskól- ans og byggingaáform hans. Akureyri kaupir ÞiugveUi Bæjarráð Akureyrar hefur Iýst áhuga á að kaupa býlið Þingvelli. Bæj- arlögmaður, Baldur Dýrljörð, greindi frá samningaviðræðum um kaup bæjarins á býlinu sem ber þetta stóra nafn. — GG Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ARNBJÖRG STEINUNN GUNNARSDÓTTIR, Garðshorni, Glæsibæjarhreppi, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 4. nóvember kl. 13.30. Ólafur S. Ólafsson, Garðshorni, Ólafur R. Ólafsson, Guðrún Þorláksdóttir, Áskell Ólafsson, Hrafnhildur Haraldsdóttir, Siguriaug Ólafsdóttir, Egill Sigurgeirsson, Ingveldur Ólafsdóttir, Magnús Magnússon, Gunnar Ólafsson, Halldóra Jóhannsdóttir, Tómas Ólafsson, Matthildur Stefánsdóttir og barnabörn. Framsóknarflokkurinn Aðalfundur Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík haldinn laugardaginn 8. nóv. 1997 kl. 10 í Súlnasal Hótel Sögu. Dagskrá: 1. Skýrsla formanns. 2. Skýrsla gjaldkera. 3. Umræður um skýrslur formanns og gjaldkera. 4. Kosning formanns. 5. Kosning 5 manna í aðalstjórn og 3ja til vara. 6. Kosning 2ja endurskoðenda og eins til vara. 7. Kosning 8 manna í miðstjórn Framsóknarflokksins og 8 til vara. 8. Ávörp gesta: Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins Egill Heiðar Gíslason, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins 10. Framboðsmál 11. Önnur mál. Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. £ . iS.' • " 'h Sá guii virðist nú vera í meira magni fyrir Norðuriandi en mörg undanfarin ár. Rækjan hrekst imdan þorskmum Við stofumælingar Hafrannsóknastofnun- ar á rækju íyrir Norð- urlaudi nýverið fannst mikið afþorski, meira en mörg undanfarin ár. Lftið sem ekkert hefur fundist af þorski við stofnmælingar á rækju undanfarin haust. Þó byrjaði aft- ur að verða vart þorsks við stofn- mælingar Hafrannsóknastofnun- ar í fyrra og svo mun meira nú. Hækkandi hitastig sjávar hefur þar töluvert vægi. „Það er búið að vera ágætis kropp undanfarið á rækjunni hér í Eyjafjarðarál og víðar en það er snöggtum minna nú, hálfgert „rag“. Þetta er þó eina svæðið sem hefur gefið eitthvað af rækju undanfarnar vikur. Við sjómenn viljum meina að þegar þorskurinn kemur í svona miklu magni inn hér fyrir Norðurlandi hrekst rækjan undan og hún hefur hald- ið austur fyrir, allt austur á Bakkaflóa og Héraðsdýpi, en þar hefur verið góð rækjuveiði í allt haust og eins kom nýlega mjög gott rækjuskot í Langaneskantin- um. Frystitogararnir hafa verið að mokveiða norður af Grímsey, hafa fyllt sig þar sem þeir hafa borið niður. M.a. var Mánabergið frá Ólafsfirði hér þegar togarinn var í mettúrnum. Veiðin stóð í langan tíma t.d. norður á Hól og þetta var góður fiskur. Einnig hafa smábátar frá Grímsey gert það mjög gott í þorskinum, stundum alveg við eyjuna,“ segir Birgir Laxdal, skipstjóri á rækju- bátnum Stefáni Rögnvaldssyni EA frá Dalvík, sem var ásamt mörgum öðrum skammt austur af Grímsey, skip við skip á takmörk- uðu svæði. Rækjan hefur verið góð, eða 180 til 250 stykki í kílói. Birgir segir að það hafi verið ör- deyða á allri rækjuslóð vestur af Eyjafjarðarál og því sæki flotinn eðlilega austur fyrir Sléttu. — GG Opnað fyrir Páli Tveir karlmeim eru í Landssambandi fram- sóknarkvenua. PáU Pétursson félagsmála- ráðherra er ekki eim sem komið er í lands- sainbandinu, en er að sjálfsögðu velkominn. „Eg er mikill jafnréttissinni og alltaf þegar þau mál ber á góma í þinginu þá tek ég þátt í umræð- um um þau,“ segir Ólafur Har- aldsson, þingmaður og meðlimur í Landssambandi framsóknar- kvenna. Ólafur segir að þegar framsóknarkonur hefðu opnað samtök sín fyrir karlmönnum hefði hann litið á það sem ósk um að karlmenn gengju f lið með þeim. „Ég tel það árangursríkást að við vinnum með þeim og ég vildi sýna það í verki.“ Ólafur segir að það sé að sjálfsögðu hægt að sýna málefnum Lands- sambands framsóknarkvenna stuðning án þess að ganga inn. Ingibjörg Davíðsdóttir, vara- formaður Landssambands fram- sóknarkvenna, segir að enn sem komið er hafi tveir karlmenn gengið í sambandið. En væri ekki æskilegt að ráðherra jafn- réttismála, Páll Pétursson, gengi til Iiðs við þær? „Það væri mjög gott mál ef hann myndi gera það,“ segir Ingibjörg og tekur fram að hún hafi ekki rætt það við hann. Ingibjörg segir að aðal- umræðuefni framsóknarkvenna sé hlutur þeirra í komandi sveit- arstjórnarkosningum. En væri þá ekki gott að hafa ráðherra sveit- arstjórnarmála í landssamband- inu? „Jú, ég myndi fagna því að fá hann í landssambandið." Páll Pétursson segist vera í Framsóknarflokknum hvort sem er og í framsóknarfélagi Austur- Húnavatnssýslu. „Landssam- band framsóknarkvenna hefur unnið ómetanlegt starf fyrir flokkinn í þeirri mynd sem það hefur verið og ég veit ekki hvort þetta lyftir því neitt sérstaklega,“ segir Páll. Er það gott mál í grundvallaratriðum að hleypa karlmönnum í landssambandið? „Eg hef svo sem enga skoðun á því.“ — HH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.