Dagur - 01.11.1997, Blaðsíða 11

Dagur - 01.11.1997, Blaðsíða 11
Ifc^ur' LAUGAHDAGVR 1. NÓVEMBER 1997 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Ævilangt fangelsi Hörð viðbrögð við dðmi yfir 19 ára breskri au-pair stiilku í Baudaríkjuuiun. „Eg gerði ekkert, ég gerði ekk- ert,“ æpti Louise Woodward, nítján ára bresk au-pair stúlka, og grét ákaft þegar kviðdómur í Cambridge í Bandaríkjunum hafði kveðið upp úrskurð sinn um að hún væri sek um morð á átta mánaða gömlum dreng. „Af hverju gera þeir mér þetta?“ Einn af lögfræðingum hennar reyndi að hugga hana, en hinir stóðu sem lamaðir í kringum hana. Foreldrar látna drengsins voru ekki viðstödd, en foreldrar hinn- ar dæmdu sátu hljóðir í réttar- salnum. Málið hefur vakið gríðarlega athygli um heim allan, sérstak- lega þó í Bretlandi og Bandaríkj- unum þar sem sjónvarpað hefur verið beint frá réttarhöldunum. Úrskurðurinn hefur einnig vakið efasemdir um réttarreglur í Bandaríkjunum, því hann þykir byggja á afar veikum forsendum. Loise Woodward er sökuð um að hafa myrt drenginn, Matthew Eappen, með því að hrista hann hrottalega og slá höfði hans utan í harðan hlut. Saksóknarar í málinu lýstu henni sem skap- mikilli unglingsstelpu sem hefði verið orðin pirruð á að passa barnið sem var með magakveisu, auk þess sem hún var reið út í foreldra barnsins vegna þess að þeir vildu takmarka útivistartíma hennar. Lögreglan kom á stað- inn eftir að hún hringdi í neyðar- númer vegna þess að barnið væri hætt að anda, og sögðu lögreglu- þjónarnir að þá hefði hún viður- kennt að hafa verið „dálítið harðhent" við drenginn. Segist aldrei hafa játað Woodward neitaði þeirri játn- ingu í framburði sínum fyrir dómi, og sagðist aðeins hafa sagt lögreglunni að hún hefði hrist drenginn Iauslega til í von um að koma honum aftur til meðvit- undar eftir að hann Ieið út af. Lögfræðingarnir hennar reyndu árangurslaust að sannfæra kvið- dóminn um að lögregluþjónarnir hafi hugsunarlaust fellt dóm á staðnum og kennt Woodward um höfuðáverkana á barninu. Fjölmargir læknar báru einnig fyrir dómi að blæðingar í heila barnsins gætu vel hafa verið síð- búnar afleiðingar af slysi, sem átti sér stað nokkrum vikum fyrr, en þá brákaðist einnig úlnliður barnsins. Saksóknarar héldu því hins vegar fram i lokayfirlýsingu sinni að slíkar kenningar væru fáránlegar. Að öllum líkindum verður málinu áfrýjað, en Andrew Good, lögfræðingur Woodwards, sagðist vera yfir sig hneykslaður á ákvörðun kviðdómsins og furðu lostinn. Varnarlögfræðing- arnir höfðu allt fram að úrskurði kviðdómsins verið óvenju vissir um að þeir myndu vinna málið. A þriðjudaginn var höfnuðu þeir, í samráði við Woodward, þeim möguleika að kviðdómurinn gæti úrskurðað hana seka um manndráp, sem myndi sæta vægari refsingu en morð. Kviðdómurinn komst að þeirri niðurstöðu að hún væri sek um morð af annarri gráðu, en ekki fyrstu gráðu sem hefði þýtt að morðið væri framið af „ýtrustu grimmd“. Úrskurður kviðdómsins felur í sér að hún verði dæmd í lífstíðar fangelsi, en eigi möguleika á náðun eftir 15 ár. Martraðir rætast Málið hefur vakið mikla athygli beggja vegna Atlantshafsins og hrært upp í tilfinningum fjöl- margra sem fylgst hafa með því í fjölmiðlum. Þykir mörgum sem þarna hafi allar verstu martraðir sem tengjast barnapössun orðið að veruleika. Fjöldi fólks hefur til dæmis hringt í útvarps- og sjónvarps- stöðvar til að lýsa yfir hneykslun á því að móðir drengsins, Dr. Deborah Eappen, hafi skilið tvo unga drengi sína eftir í umsjá Woodwards til þess að hún gæti snúið aftur til starfa sinna sem augnlæknir. Hún vann þrjá daga í viku, en kom heim í hádeginu til að gefa yngri drengnum bijóst. Bæði hún og eiginmaður hennar, Sunil Eappen, sem er svæfingarlæknir, segjast hafa fengið bæði bréf og símhringing- ar þar sem ráðist er á þau með ókvæðisorðum. Þá hefur málið einnig vakið efasemdir um réttmæti au-pair kerfisins. A hverju ári koma um 10 þúsund ungmenni til Banda- ríkjanna, mest stúlkur, og búa hjá fjölskyldum gegn því að passa börn. Þær eru ódýr vinnu- kraftur, en þeim eru greiddir vasapeningar, oftast 10 til 15 þúsund á viku, og fá að auki ókeypis fæði og húsnæði. Yfir- leitt hafa þær Iitla reynslu af barnapössun, en þó eru oft gerð- ar til þeirra miklar kröfur af for- eldrum barnanna, og meiri en reglur um au-pair stúlkur gera í raun ráð fyrir. - Los Angeles Times Mary MacAleese næsti forseti ÍRLAND - Nær öruggt var í gær að Mary MacAleese, prófessor frá Norður-írlandi, yrði næsti forseti írlands, en kosningar fóru fram á fimmtudag. Ekki nema um helmingur kosningabærra manna tók þátt í kosningunum, og er það Iægsta kosningaþátttaka í þeim sex forseta- kosningum sem fram hafa farið í landinu. Rússar vilia ekki beita hervaldi uj Ut; RÚSSLAND - Utanríkisráðherra Rússlands, Jevgenní Prímakov, sagði í gær ekki koma til greina að gripið verði til vopna gegn Irak vegna þess að Saddam Hussein neitar starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna um að hafa eftiriit með vopnabúnaði Iraka. Bandaríkja- menn höfðu áður lýst því yfir að til hernaðaraðgerða geti komið á vegum Sameinuðu þjóðanna. Prímakov sagðist þó hafa áhyggjur af þróuninni í Irak og að ákvörðun Saddams hefði ekki verið sérlega skynsamleg. 9> . JL %. Krabbameinsfélagið Krabbameinsrannsóknir Norræni krabbameinsrannsóknasjóðurinn auglýsir eftir umsóknum um styrki. Umsóknarfrestur er til 15. desember 1997. Nánari upplýsingar og eyðublöð fást hjá framkvæmdastjóra Krabbameinsfélags íslands, Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík, sími 562 1414. Húsnæði - Kaupleiga VII taka á leigu 4-6 herbergja íbúðarhúsnæði á Akureyri. Kaup á eigninni þyrftu að vera möguleg síðar. Vinsamlega hafið samband við Fasteignasöluna ehf., Gránufélagsgötu 4, e.h. Akureyri. Hermann R. Jónsson, kvöld og helgarsími 462-5025 != Fasteignasalan ehf. Sími 462 1878 .... Fax 461 1878 vAtryggingafélag ^ClBf ÍSLANDS HF Vátryggingafélag íslands hf. Akureyri, óskar eftir tilboðum í eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. 1. MMC Lancer stw.4x4 árgerð 1997 2. Opel Astra — 1997 3. Peugeot106 — 1997 4. Hyundai Accent SL — 1996 5. Suzuki Samurai — 1992 6. Toyota Corolla H/B — 1991 7. Subaru Justy J12 — 1990 8. Honda Accord — 1989 9. MMC Colt — 1985 Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð Vfs að Furuvöllum 11, mánudaginn 3. nóv. nk. frá kl. 9 til 16. Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16 sama dag. ff) ÚTBOÐ F.h. Rafmagnsveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í steyptar hlífðarhellur yfir 132 kV jarðstreng. Um er að ræða 60.000 stk. af stærðinni 250x500x50. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri. Opnun tilboða kl. 11 miðvikudaginn 19. nóv. 1997 á sama stað. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 • 121 Reykjavík Sími 552 5800 Bréfsími 562 2620 Nctfang: isr@rvk.is VÉLBOÐA Wí Hi HBB WBBp Wtr WWW Jl A Stærðlr: 4 -10 þús. Iltra Flotdekk, hæöamælir, vökvadrifiö lok á lúgu, Ijósabúnaöur. VÉLBOÐI HF. Sfmi 565 1800 Hafnarfiröi. Mjöggott verö og greiðslukjör við allra hæfí.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.