Dagur - 05.11.1997, Page 2

Dagur - 05.11.1997, Page 2
2 -MIÐVIKUDAGU R S.NÓVEMBER 1997 ro^tr FRÉTTIR qðfo3°l Lífeyrissjóðurinn sagði að Jóhanna ætti ekki rétt á iifeyrinum þar sem hún hefði hafið störf hjá útibúi Tryggingastofnunar eftir að sjúkrasamlagið hætti. Dómarinn var á öðru máli. Knésetti kerfið Sjötug skoraði Jóhauna Pálmadóttir kerfið á hólm og krafðist sinna rétt- inda. Kerfið brást til vam- ar en tapaði. Hæstiréttur hefur dæmt að Lífeyris- sjóður starfsmanna Akureyrarbæjar skuli greiða Jóhönnu Pálmadóttur, 70 ára, alls tæplega 730 þúsund króna líf- eyri, ásamt dráttarvöxtum, en Jóhanna stóð frammi fyrir því að glata þessum réttindum sem hún taldi sig eiga inni eftir að Sjúkrasamlag Akureyrar var lagt niður. Jóhanna starfaði sem aðalbókari hjá Sjúkrasamlagi Akureyrar um langt ára- biJ, en 1. janúar 1990 tóku gildi Iög um að sjúkratryggingar yrðu eingöngu á verksviði ríkisins og sjúkrasamlögin lögð niður. Jóhanna tók við starfi trygg- ingafulltrúa hjá útibúi Tryggingastofn- unar ríkisins á Akureyri. Laun hennar lækkuðu og fékk hún greidd biðlaun sem skerðingunni nam í eitt ár. Hún varð 65 ára í ágúst 1992. Dómarinn sammála Jóhömiu Agreiningurinn í málinu snérist um það hvort Jóhanna hefði rétt á að fá eftirlaun greidd úr lífeyrissjóði Akur- eyrarbæjar frá 1992, enda hefði hún verið látin hætta hjá sjúkrasamlaginu og ekki færst sjálfkrafa til Trygginga- stofnunar, hvað þá í sambærilegt starf. Lífeyrissjóður Akureyrar taldi sig ekki eiga að greiða Jóhönnu eftirlaun, þar sem hún hefði farið í sömu vinnuna og nýr vinnuveitandi tekið við réttindum hennar. Dómari málsins komst að þeirri niðurstöðu að Jó- hanna hefði rétt fyrir sér; hún hafði starfað hjá sjúkra- samlaginu en var ráðin til nýrra starfa, með nýju starfsheiti og á nýjum vinnustað. Engin lagafyrir- mæli voru um að starfsmenn færð- ust sjálfkrafa til nýja vinnuveitand- ans við niðurlagningu sjúkrasamlag- anna. Jóhanna er að vonum ánægð með niðurstöðuna. „Á sínum tíma frétti ég af því fyrir tilviljun að jafnaldrar mínir karlkyns hefðu fengið eftirlaun úr líf- eyrissjóðnum er þeir urðu 65 ára og þá ritaði ég bréf og spurði hvort ég ætti ekki rétt á þessu líka. Það leið og beið og svarið kom um að ósk minni væri hafnað, þar sem ég hefði gegnt áfram starfi og haldið Iaunum. Það dugði ekki fyrir mig að benda á fordæmin af samstarfsfólki mínu, en Jakobína, for- maður Starfsmannafélags Akureyrar- bæjar, var allan tímann sannfærð um að réttur minn væri ótvfræður." Er ekki alltaf traðkað á konum? Jóhanna telur að líklega hafi hún legið vel við höggi sem öldruð kona. „Er ekki alltaf verið að traðka á konum. Það hefur stundum verið bryddað á því að okkur konunum sé ýtt til hliðar. En málið er gengið og málið er unnið fyrir mig. Hitt er annað mál að ég hélt að þetta væri fordæmismál. og að þessi niðurstaða kæmi sér vel fyrir aðra sem ætluðu að leita réttar síns. Mér skilst nú að þetta sé ekki slíkt fordæmismál og það eru mér mikil v'onbrigði," segir Jóhanna. Hún tekur fram að sigur hennar í málinu sé ekki síst Örnu Jak- obínu Björnsdóttur, formanni STAK, að þakka. „Ég er ánægð með niðurstöðuna. Hún kemur mér ekki á óvart, enda var málið að mfnu mati augljóst frá byrjun og þess vegna fór ég af stað,“ segir Arna Jakobína í samtali við Dag. - FÞG Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður STAK: Máiið var aug- Ijóst frá upphafi. FRÉTTAVIÐ TALIÐ í heita pottinum þykir það alltaf tíðindum sæta þegar menn í góðum stöðum á landsbyggðinni hætta skyndilega og flytja til Reykjavíkur. Það kom því á óvart að frétta að Hallur Magnússon, félagsmálastjóri á Höfn í Hornafirði, væri að hætta og flytja suður. Höfn hefur sem kunnugt er verið tilraunasveitarfélag og tekið yfir hæði fræðslumál og málcfni fatlaðra og gert það með miklum bravör. Hallur mun hins vegar ætla að stofna ráðgjafaíyrirtæki í Reykjavík og sérhæfa sig í ráðgjöf og úrvinnslu sérverkefna íyrir lítil og meðalstór sveitarfélög. Nema hvað.. Skammir Péturs Reimars- sonar, stjórnarformanns Pósts og síma, í gær fóru ekki framhjá pottverjum. Pétur skammaðist yfir því að gjaldskrárhækkunar- málið hafi verið kynning- arflopp - málið einfald- lega ekki verið nægjanlega vel kyimt. í pottinum fóru menn á stúfana til að kanna hvaða kynningar- fyrirtæki hafi séð um þessa breytingu og ætti heiðurinn af mistökunum sem stjómarfomiað- urinn var að tala um. Ekki tókst að hafa upp á slíkri stofu enda segja flestir enga slíka stofu tU. Póstur og sími hafi ákveðið að sjá uin þessa við- kvæmu kymúngu sjálfur og ekki talið sig þurfa á aðstoð annarra aö halda.. Hafi Póstur og sími talið sig gcta séð uin málið sjálfur og ekki kallað á utanaðkomandi aðstoð liggur ljóst fyrir að reiði stjórnarformannsins beinist að tveimur aðilum sérstaklega. Annars vegar að Guðmundi Bjömssyni forstjóra og hins vegar að Hrefnu Ingólfsdóttur upplýsingafull- trúa sem em þeir aðilar sem ættu að bera ábyrgð á málinu.... V Um 4000 fm verslimarhús Einar Jónsson í Nóatúni Spreiiging virðist framimdan í matvöruversl- un íReykjavík. Margir renna hýru auga til Smára- hvammslands í Kópavogi og þ.ám. forráðamenn Nóa- túns, s.s. Einar Jónsson. — Hvað hyggist þið reisa stórt verslunar- húsnæði í Sinúrahvammslandinu? „Um 4000 fermetra. Þá erum við aðeins að ræða um matvörubúð en ég vil ítreka að þetta er fyrirhuguð matvöruverslun. Við höfum enga ákvörðun tekið enn um fram- haldið þótt hugmyndin sé búin að vera í píp- unum nokkuð lengi.“ — Ef af verður? Hvaða tímasetning er fyrirhuguð? „Enn er ekki tímabært að spá fyrir um það. Fyrst verður náttúrlega að ákveða hvort út í þetta verður farið. I kjölfarið kem- ur svo hitt.“ — Á hvaða stigi er þá málið? „Það er í undirbúningsvinnu." — Fleiri fyrirtæhi hyggjast liasla sér völl á þessu svæði. Eruð þið í e.k. samstarfi við aðra aðila hvað varðar þessa fyrirhug- uðu stórbyggingu? „Nei.“ — Telurðu það styrkja verslunina á svæðinu ef samkeppni verður milli versl- ana í hverfinu? „Já, það myndi ég halda.“ — Heyrst hefur að mikil leynd hafi ríkt vegna þessara fyrirætlana? „Engin sérstök leynd hefur ríkt, en menn vilja náttúrlega ekki ræða það sem ekki er komið á hreint. Við þurfum bara að fá frið til að sinna undirbúningi." — Hvað gefur ykliur tilefni til að skoða þetta stóra verslun? „Við höfum kannað markaðinn og höfum hingað til ekki verið með svona stóra búð. Við töldum tímabært að taka þetta skref og þessa staðsetningu töldum við bjóða upp á bestu möguleikana. Mestu sóknarfærin." — Vegna þess að Smárahvammsland er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu? „Já. Við metum það svo að þessar lóðir séu einar þær bestu sem hægt er að fjárfesta í á höfuðborgarsvæði n u.“ — Er þróunin sú að stærri verslanir verði æ vinsælli á kostnað litlu búðanna? „Menn verða einfaldlega að hafa ákveðinn innkaupamátt til að verða samkeppnishæfir. Það þarf ákveðnar stærðir til að geta lifað þessa samkeppni af.“ — Fer stærð verslana saman við lægra vöruverð? „Það verður á endanum þannig. Það hef- ur t.d. hjálpaö okkur mikið að geta verið í innkaupasamböndum með öðrum. Við höf- um getað lækkað verðið verulega fyrir vik- ið.“ — Þið liafið fram til þessa aðeins starf- rækt verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Er meiningin að hasla sér einnig völl á landsbyggðinni ? „Það er aldrei að vita. Við útilokum ekk- ert.“ — Hve mörg stöðugildi eru innan fyrir- tækisins? „Um 125.“ — Hafið þið reiknað út hve margir starfsmenn myndu bætast við í nýju búð- inni? „Nei." — Hve margar verslanir staifrækir Nóa- tún fyrir? „Þær eru níu talsins.“ — Hvernig hefur reksturinn gengið að undanförttu? „Þokkalega. Mjög viðunandi." — Og bjartsýnin sannarlega fyrir hendi? „Já. Markaðsrannsóknir sýna það. Langt og mikið mál er hins vegar að útskýra það nánar og ég vil ekki fara nánar út í forsend- ur okkar á þessu stigi.“ — BÞ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.