Dagur - 05.11.1997, Blaðsíða 9

Dagur - 05.11.1997, Blaðsíða 9
8- MIÐVIKUDAGUR S.NÓVEMBER 1997 MIDVIKUDAGUR S. \ ÓVEMBER 1997 - 9 FRÉTTASKÝRING Þingmenn spöruðu ekki stóryrðin í utan- dagskrárumræðum á AlJjingi í gær um gj aldskrárbreytingar Pósts og síma. Rætt var um einkavætt ein- okunarfyrirtæki, hroka, yfirgang og vafasamar embættis- færslur. „Samgönguráðherra hafði ætlað heimilunum að greiða lækkun millilandasímatala, sem stangast á við allar reglur, hvort sem EES reglur eða samkeppnislög. Heim- ilin, aldraðir, barnafjölskyldurnar, netverjarnir, áttu að greiða niður millilandasímtöl fyrirtækjanna,11 sagði Asta Ragnheiður Jóhannes- dóttir, þingmaður jafnaðar- manna, í heitum umræðum á Al- þingi í gær um gjaldskrárbreyt- ingar Pósts og síma. „Hér virðist um margfalt brot að ræða og vafasamar embættisfærslur,“ sagði Ásta Ragnheiður og talaði um trúnaðarbrest milli sam- gönguráðherra, fyrirtækisins og almennings. Þingmenn fjölmenntu í ræðu- stól á Alþingi í gær, en það flækti nokkuð umræðuna að þeir gengu ýmist út frá upphaflegri ákvörðun Pósts og síma um verulega hækk- un staðartaxtans eða út frá boð- aðri lækkun á hækkuninni,“ allt eftir því hvað hentaði málstaðn- um betur. Einkavætt einokimarfyrir- tæki Uppákoman í verðlagsmálum Pósts og sfma er „eðlileg afleiðing af þeirri fráleitu ákvörðun að einkavæða fyrirtæki sem býr við einokunaraðstöðu. Alþingi hefur glatað þeirri aðstöðu sem það hafði til að hafa eftirlit með þessu fyrirtæki og verðhækkunum þess,“ sagði Ragnar Arnalds, þingmaður Alþýðubandalagsins. Hann sagði ljóst að fyrirtækiö hefði áformað að ná af neytend- um 2 milljörðum umfram úgjöld á árinu. Það þýddi 20 til 30 þús- und króna aukaskatt af hverri meðalfjölskyldu. Til að bæta gráu ofan á svart hefði fyrirtækið neit- að að gefa upplýsingar um for- sendur gjaldskrárhækkunarinnar. Hroki og yfirgangur af því tagi væri einmitt það sem vaénta mætti þegar einokunarfyrirtæki ríkisins væru einkavædd. Það versta væri þó að Póstur og sími hefði reynt að fela hækkunina á bak við það sjálfsagða réttlætis- mál að gera landið að einu gjald- svæði. Hún væri aðeins að Iitlu Ieyti til komin vegna þess, en þetta væri ekki eina dæmið um að Póstur og sími níddist á við- skiptavinum sínum. Halldór Blöndal stóð í ströngu á Alþingi i gær þegar gjaldskrárhækkun Pósts og sima var rædd utan dagskrár. Hér sést Lúðvík Bergvinsson í ræðustóli en Halldór Blöndal er á leið ti/ sætis síns. Kristín Halldórsdóttir Kvennalista fylgist með. - mynd: hilmar Hroki og fyrirlitning Stjórnarandstæðingar vönduðu samgönguráðherra og ráðamönn- um Pósts og síma sjaldnast ekki kveðjurnar í umræðunum í gær. Það mætti ætla að þeir héldu að hf. stæði fyrir hroki og fyrirlitn- ing, sagði Ogmundur Jónasson, Alþýðubandalagi og óháðum. Hvað á að gera við ráðherra sem segja ósatt, spurði Jóhanna Sig- urðardóttir, þingflokki jafnaðar- manna, og sagði að víðast erlend- is hefði ráðherra verið látinn fjúka eftir viðlíka framkomu og Halldór Blöndal hefði sýnt. Hún sagði jafnframt að það hlyti að koma til skoðunar að skipa sér- staka rannsóknarnefnd til að fara ofan í saumana á embættisfærslu ráðherrans. Kristín Ástgeirsdóttir, Kvenna- lista, sagði málflutning sam- gönguráðherra einkennast af skætingi og ekki þingheimi bjóð- andi og Ágúst Einarsson, þing- flokki jafnaðarmanna, sagði Ijóst að ráðherra væri ekki starfi sínu Ósaiuigjamar árásir Stjórnarsinnar lögðu sig ekkert sérstaklega fram við að verja sam- gönguráðherra, nema reyndar flokksbróðir hans Sturla Böðvars- son. Hann sagði árásirnar á Hall- dór mjög ósanngjarnar, enda hefði hann lagt sig fram um að auka samkeppni til að bæta hag neytenda. Einar K. Guðfinnsson, Sjálf- stæðisflokki, barði hins vegar á stjórnandstæðingum af miklum þrótti. Sagði þá forðast að ræða það sem máli skipti, sem væri að símkostnaður hefði verið jafnað- ur og heimilin nytu góðs af veru- legri lækkun á millilandagjaldinu. Ætla mætti af máli stjórnarand- stæðinga að boðuð lækkun, þýddi í raun hækkun. „Það er undarlegt að hlusta á málflutning af þessu tagi. Upphrópanir og útúrsnún- ing um að verið sé að rýra kjör al- mennings í landinu, þegar það liggur fyrir að það er verið að bæta kjör almennings og fyrir- tækja um 400 milljónir,“ sagði Einar og bætti við að símgjöld á Islandi væru þau lægstu sem þekktust á byggðu bóli. Baráttumál í höfn Magnús Stefánsson, Framsókn- arflokki og varaformaður stjórnar Pósts og síma, sagði fagnaðarefni að gamalt baráttumál væri í höfn og landið orðið að einu gjald- svæði. Öllum hafi átt að vera Ijóst að afnám langlínutaxta myndi kalla á hækkun á staðartaxta. Margir sæju ofsjónum yfir hagn- aði fyrirtækisins, en afkoma þess þyrfti að vera góð til þess að hægt yrði að halda áfram uppbyggingu símkerfisins og það gæti greitt eiganda sínum arð. Magnús sagði mikilvægt að millilandataxtinn hefði verið lækkaður um nærri fjórðung, enda minnkuðu útgjöld margra heimila verulega við það. Áríð- andi væri einnig að fyrirtækið byði upp á sveigjanlegri viðskipta- kjör í framtíðinni, t.d. afslátt til Internetsnotenda. Mikill óleikur Það kvað við allt annan tón hjá flokksbróður Magnúsar, Gunn- laugi Sigmundssyni. Hann sagði að með gjaldskrárbreytingum Pósts og sfma hefði þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að hlutafélaga- væða ríkisstofnanir verið gerður mikill óleikur. Hækkun hefði ver- ið illa útskýrð og sennilega illa ígrunduð lfka. Hún væri fráleit og ekki hægt að réttlæta hana með því að landið hefði verið gert að einu gjaldsvæði. Það væri einnig afar óheppilega að orði komist hjá samgönguráðherra, að tala um að breytingarnar væru gerðar til að mæta samkeppni. Fyrirtæki sem stæðu frammi fyrir sam- keppni lækkuðu taxta sína, til þess að varna öðrum að komast að. Og hver stýrir Pósti og síma, spurði Gunnlaugur. Er það stjórn fyrirtækisins eða ráðherra og þá hvaða ráðherra. Ef stjórnin vill stýra fyrirtækinu, þá væntanlega stendur hún við fyrri ákvörðun. Ef ekki hlýtur ráðherra að kalla sam- an hluthafafund og skipa nýja. Gunnlaugur fagnaði frumkvæði forsætisráðherra. Hann hefði skynjað hvað þjóðin hugsaði í þessu máli. „Og þjóðin ætlast til þess að þessar hækkanir verði teknar til baka og Póstur og sími mæti samkeppninni með því að lækka kostnað, en ekki velta þessu út í verðlagið." Kjarabót heimilanna Halldór Blöndal, samgönguráð- herra, rifjaði upp að þegar sam- þykkt hefði verið að breyta land- inu í eitt gjaldsvæði, hefði ekki nokkur maður talað um að Póstur og sími ætti að greiða með því. Þær breytingar sem nú stæði til að gera þýddu 22% verðlækkun á millilandasímtölum, sem fyrirtæk- ið tæki sjálft á sig. Það myndi kosta Póst og síma 380 milljónir króna „og verulegur hluti af því kemur einmitt í hlut heimilanna," sagði Halldór. Halldór sagði frá því að ný tækni myndi fljótlega gera Pósti og síma það mögulegt að gefa afslátt af lengri símtölum, til dæmis vegna Jnternetsnotkunar. Verið væri að ræða við netverja um þau mál. Halldór fagnaði því að Sam- keppnisstofnun skyldi ætla að fara yfir málið og viðúrkenndi að kynn- ingu gjaldskrárbreytinganna hefði ef til vill verið áfátt, en taldi ekki við sig að sakast í því. „Ég vil taka undir það að þær skýringar sem upphaflega voru gefnar á þeim hækkunum, sem ákveðnar höfðu verið af stjórn fyrirtækisins, voru ekki fullnægjandi. En auðvitað vita allir þingmenn að það er ekki ráðherra að standa fyrir eða skipu- leggja kynningar á ákvörðunum eða breytingum í einstökum fyrir- tækjum eða stofnunum." vaxinn. Tekjulækkun upp á 380miUjónir Nýjar tillögur stjóm- arP&S þýða 380 milljóna kr. tekju- lækkun niiðað við óbreytta umferð. Staðarsímtöl iiiunu halda áfram að hækka í framtíðinni. Þótt Neytendasamtökunum og fleiri aðilum finnist sem staðar- símtöl hafi hækkað óeðlilega mikið frá 1. desember 1996, eða 88% miðað við að samgönguráð- herra lækki hana frá því sem boðað var, stefnir ekki í að gjald- hækkunin verði afnumin síðar, þvert á móti. „Okkar stefna er að útlendu símtölin muni halda áfram að lækka, en staðarsímtöl- in hækka á næstum árum,“ segir Pétur Reimarsson, stjórnarfor- maður Pósts og síma. Pétur segir að þróunin í heim- inum sé í þá átt að símafyrirtæki hafi almennt hækkað staðartaxta en alþjóðasímtöl lækkað veru- lega „Við búumst við að þessi þróun haldi áfram. Menn gera sér almennt ekki grein fyrir hve dýrt er að hringja til útlanda miðað við innlendu símtölin. Þannig kostaði mínútan til Dan- merkur 50 lcr. fyrir breytinguna 1. nóv. en staðarsímtalsmínútan 1,11 kr. Þannig var hægt að tala í 3 stundarljórðunga á svæðinu fyrir eina mínútu til Danmerk- ur,“ segir Pétur. Ný áætlun kostar 280 millj- ónir Formaður Neytendasamtakanna Pétur Reimarsson stjórnarformaður Pósts og síma boðar frekari hækkun staðarsímtala á næstu misserum, en á móti segir hann að millilandasímtöl muni lækka. spyr í blaðinu í dag hvort Póstur og sími fari aldrei hagræðingar- leiðina heldur hækki alltaf gjald- skrána þegar breytingar séu í vændum. Pétur segist ekki geta tjáð sig um mál fyrirtækisins frá fyrri tíð, en upplýsir hvað muni verða lagt fyrir stjórnarfund nk. föstudag. „Meginforsendan fyrir breytingunni 1. nóvember var að tekjur Pósts og síma myndu ekki aukast með sömu notkun. Fyrst ákvað stjórnin að gera ráð fyrir að tekjurnar lækkuðu um 100 milljónir kr. en á föstudaginn verður gert ráð fyrir að tekjurnar lækki um 380 milljónir miðað við óbreytta umferð. Það er því ekki rétt að við séum að auka tekjurnar." Víða erfiðui dagur Á sama tíma og allt varð vitlaust á íslandi sl. föstudag og forsætis- ráðherra blandaði sér í leikinn, kom upp svipuð staða í Svíþjóð. „Svíar voru búnir að boða gjald- skrárhækkun á svæðissímtölum en voru kallaðir á teppið á föstu- daginn eins og fleiri! Þetta er langt í frá að vera einstakt mál hérlendis en kennir manni að ef ekki er staðið vel að svona breyt- ingum kemur tvennt til: Pólitískt illviðri eða jafnvel fárviðri," segir Pétur. Mistök Kynning gjaldskrárbreytingar- innar mistókst að sögn stjórnar- formanns P&S og hafa talsmenn ýmissa hópa sagt að hroki ein- kenndi málflutning og fram- göngu æðstu forráðamanna P&S. Pétur vildi ekki svara þeirri spurningu Dags hvaða fyr- irtæki hefði séð um kynninguna en játaði að leitað hefði verið til fagaðila. Borgarhúar hringja lítið út á laud Samkvæmt gögnum frá P&S er skipting heimilissímtala þannig að þriðjungur símanotkunar heimila er staðarsímtöl. Höfuð- horgarbúar veija 37% símtala í innansvæðissímtöl en lands- byggðarmenn 27,8%. Á hinn bóginn er hlutfall langh'nusím- tala rúm 23% á landsbyggðinni en aðeins 9% á höfuðborgar- svæðinu. Reykvíkingar hringja meira til útlanda en landsbyggð- armenn, farsímanotkun er svip- uð. Hér ræðir aðeins um síma- notkun heimila en ekki fyrir- tækja. — Bb Stríðtnu er langt í frá að vera loldð Póstur og sími ætti að reyna hagræðingu í stað sífelldra hækk- ana, segir Jóhannes Gunnarsson. Ráðherr- ar erlendis hefðu fok- ið fyrir minni sakir. Þrátt fyrir að samgönguráðherra hafi boðað nokkra símgjalda- lækkun síðastliðinn föstudag frá fyrri stefnu, er talsmaður Neyt- endasamtakanna alls ekki sáttur. Jóhannes Gunnarsson bendir á að eftir boðaða verðlækkun sé hækkun innansvæðissímtala samt gífurleg. „Frá því í desember hefur mín- útan í innansvæðissímtölum hækkað um 88%. Eftir stendur þriggja milljarða kr. hagnaður af þessu fyrirtæki. Neytendasam- tökin hafa ítrekað bent á að for- sendur fyrir misjöfnu gjaldi inn- ansvæðis og milli svæða séu meira og minna fyrir bí þannig að ef einhver hefur verið að níð- ast á landsbyggðinni er það Póst- Jóhannes Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Neytendasamtakanna, er mjög ósáttur við framgöngu Halldórs Blöndal. ur og sími með Halldór Blöndal í fararbroddi," segir Jóhannes. Fáránleg röksemdarfærsla Jóhannes segir að hækkanir P&S hafi ekki verið skýrðar og það sæti furðu að á sama tíma og for- ráðamenn neiti að gefa upp raunkostnað á innlendum sím- tölum, greini stjórnarformaður fyrirtækisins frá raunkostnaði hjá erlendum símafyrirtækjum sem vel að merkja séu í raun- verulegri samkeppni. „Hvers konar röksemdarfærsla er þetta hjá þessu einokunarfyrirtæki? Hefur Póstur og sími hagrætt eða mæta þeir öllu með hækk- unum? Ég held að fyrirtækið ætti að horfa í eigin rann og at- huga sína innviði í stað þess að skella ekki öllu endalaust á neyt- endur. Orrusta hefur unnist, en stríðinu er langt í frá Iokið,“ seg- ir Jóhannes. Á Halldór að fjúka? Þingflokkur jafnaðarmanna hef- ur farið fram á stjórnsýsluúttekt á P&S og telur Jóhannes það þarft skref og löngu tímabært. „Hrokinn sem einkennt hefur allan málflutning forráðamanna P&S hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Málflutningur Halldórs Blöndal í liðinni viku var með þeim hætti að víða er- lendis hefðu ráðherrar fokið,“ segir framkvæmdastjóri Neyt- endasamtakanna. — BÞ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.