Dagur - 05.11.1997, Qupperneq 10

Dagur - 05.11.1997, Qupperneq 10
10 -MIÐVIKVDAGVR S. NÓVEMBER 1997 FRÉTTIR Þyrlafann týnda meim Víðtæk leit var gerð að tveimur mönnum sem skiluðu sér ekki úr jeppaferð í Landmannalaug- ar. A 10. tímanum í gærmorgun fann þyrla Landshelgisgæslunn- ar, TF-SIF, mennina og voru þeir báðir heilir á húfi. Þrjár nýjar biíðir jafn- gilda nokkram Kringlum í Reykja- vík. Mikill uppgangur er í verslunar- þjónustu í Olafsfirði þar sem þrjár nýjar búðir verða opnaðar í bænum. Um síðustu helgi var ný tískuvöruverslun opnuð, Tíska og sport, og á næstu dögum munu tvær nýjar búðir bætast við. Önnur er ÁB-skálinn en þar íbúð óskast SÁÁ óskar eftir að taka á leigu einbýlishús eða raðhúsaíbúð, helst í Glerárhverfi, fyrir einn af starfsmönnum sínum. Upplýsingar í síma: 462 7611 eða 462 6565. verða seldar skrifstofu- og rekstr- arvörur auk þess sem boðið verð- ur upp á fullkomna ljósritunar- þjónustu. Hinn er hannyrða- verslun sem heita mun Föndur- hornið. Sveinn Magnússon, sem reka mun AB-skálann og Föndur- hornið ásamt fjölskyldu, er bjartsýnn á framtíð verslunar í Olafsfirði og gerir sér vonir um að Dalvíkingar og jafnvel Akur- eyringar muni sjá sér fært að skipta við Olafsfirðinga. „Því ætti það ekki að vera hægt. Með góðri þjónustu og hagstæðu vöruverði sé ég ekkert því til fyr- irstöðu. Það tekur enga stund að renna milli Olafsfjarðar og Akur- eyrar,“ segir Sveinn. ÓlafsQörður er aðeins 1200 manna bæjarfélag og má því líkja þremur nýjum verslunum við nokkrar Kringlur í Reykjavík. Sveinn segir að fréttir séu alltof oft neikvæðar frá Ólafsfirði, bar- - 7' 1 Bj / Ólafsfirði er nú verið að opna þrjár nýjar versianir, um síðustu heigi var opnuð tískuvöruverslun og fljótlega verða tvær til viðbótar opnaðar. lómur gagnist engum, en stuðn- ingur sveitarstjórnaryfirvalda við nýsköpun mætti þó vera meiri. Hann vildi koma á framfæri að Sæunn Axelsdóttir væri nú að lyfta grettistaki í sjávarútvegin- um og það efldi hugarþel Ólafs- firðinga. — BÞ Vilja aðgerðir gegn byggðaröskim Uppbygging vegakerf- is á landsbyggðmni mikilvæg, segir kjör- dæmisþing framsókn- armanna. Kjördæmisþing framsóknar- manna á Norðurlandi eystra, haldið að Hótel Reynihlíð 1.-2. nóvember síðastliðinn lýsir áhyggjum af stöðugri byggða- röskun og áframhaldandi fólks- flutningum til höfuðborgarsvæð- isins. „Til að snúa vörn í sókn þarf að leita allra tiltækra ráða. Auka þarf fjölbreytni atvinnulífs á landsbyggðinni auk þess að styrkja þá atvinnustarfsemi sem fyrir er,“ segja framsóknarmenn. Meðal tillagna er að flytja þurfi til opinberar stofnanir, staðsetja nýja opinbera þjónustu utan höf- uðborgarsvæðisins og tryggja grunnþjónustu í sessi. Jafnframt þurfi að stuðla að auknu sam- starfi og áframhaldandi samein- ingu sveitarfélaga og flytja fleiri verkefni frá ríki heim í héruð. „Athugandi er að beita sértæk- um, tímabundnum aðgerðum til að ná árangri svo og að hraða uppbyggingu vegakerfisins og treysta samgöngur á landsbyggð- inni. Þá má minna á hlutverk Fjárfestingarbankans og Nýsköp- unarsjóðs í þessu sambandi," segir í ályktun framsóknar- manna. Framsóknarmenn ályktuðu ennfremur um heilsugæslu og telja þeir mikilvægt að auka sam- starf heilbrigðisstofnana frá því sem nú er. Þingið lýsir stuðningi við uppbyggingu Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. — BÞ Stóriðja yrrti hvati til sanu'iningar Stóridja á Reyðarfirdi kann að verða hvati til eins sveitarfélags frá Neskaupstað suð- ur á Djúpavog, þ.e. sameina 8 sveitarfé- lög á Austurlandi. þeim stórðiðjufyrirtækjum þann mannafla og þjónustu sem þau mundu sækjast eftir. „Það er töluverður áhugi hér fyrir því að skoða möguleika á stærra sveitarfélagi til suðurs ef af sameiningu Reyðarfjarðar, Eskifjarðar og Neskaupstaðar verður. En til þess að þessi þrjú sveitarfélög sameinuðst Fá- skrúðsfjarðarhreppi, Búða- hreppi, Stöðvarhreppi, Breið- dalshreppi og Djúpavogshreppi þyrftu að koma til jarðgöng milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar inn við fjarðarbotn til að skapa öruggari tengingu milli fbúa þessa víðfeðma sveitarfélags," sagði Þorvaldur Aðalsteinsson, oddviti Reyðarfjarðarhrepps.— GG Leiðrétting Ef stóriðja verður að raunveru- Ieika á Reyðarfirði kann það að flýta fyrir sameiningu sveitarfé- Iaga á Austurlandi. Möguleiki er á því að eitt sveitarfélag verði á austanverðu Héraði, annað frá Neskaupstað og suður að Horna- firði og aðeins eitt í Austur- Skaftafellssýslu. Þannig mundu sveitarfélögin verða færri en sterkari í atvinnulegu tilliti og betur undir það búin að skapa í viðtali við Þorvarð Elíasson, skólameistara Verslunarskólans, í gær, var haft eftir honum að meiningar væri uppi um að nem- endur Menntaskólans á Akureyri hefðu sýnt keppinautum sínum í Verslunarskólanum dónaskap. Hið rétta er að sumir nemenda Verslunarskólans eru taldir hafa brotið háttvísisreglur, en ekki MA-ingar. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á þessu og vill Þorvarður hnykkja á að engin úlfúð sé milli nemendahópanna vegna málsins.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.