Dagur - 11.11.1997, Side 4
4 -ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997
FRÉTTIR
rD^u-
Vinabæjasamskipti við Gimli
Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið að end-
urvekja samskiptin við vinabæinn Gimli í
Manitobia í Kanada og samþykkti af því til-
efni eftirfarandi tillögu Þórarins E. Sveins-
sonar, forseta bæjarstjórnar: „I ljósi þeirrar
umræðu sem verið hefur um aukin sam-
skipti við Vesturheim og afmælishald um
aldamótin felur bæjarráð bæjarstjóra og for-
seta bæjarstjórnar Akureyrar að kanna með
hvaða hætti mega endurvekja tengsl vina-
bæjanna Akureyrar og Gimli. Sérstaklega
skal athugað hvort hægt er að efla eða koma
á samstarfi og samskiptum í atvinnulífinu."
Þórarinn £ Sveinsson.
Kjamafæði leitar aðstoðar vegna
mengmiarvama
Matvælafyrirtækið Kjarnafæði hefur leitað eftir fjárhagsaðstoð frá Ak-
ureyrarbæ vegna mengunarvarna en kvartað hefur verið yfir reyk-
mengun frá fyrirtækinu við Fjölnisgötu og heilbrigðiseftirlit gert kröf-
ur um úrbætur. Fyrirtækið hyggst flytja alla framleiðsluþætti til Sval-
barðseyrar en fyrirtækið verður áfram skráð á Akureyri og þar verður
sölustarfsemi þess og skrifstofuhald.
Kennsla fjölfatlaðra bama
Rannsóknastofun Háskólans á Akureyri hefur leitað eftir styrk frá Ak-
ureyrarbæ vegna starfshóps sem er að rannsaka kennslu fjölfatlaðra
nemenda í almennum skólabekk og gerð gagna til endurmenntunar
kennara sem fást við slík störf. Málinu var vísað til gerðar fjárhagsá-
ætlunar. — GG
Fréttaflntningur frá Dalvík
Ritstjóri héraðsfréttablaðsins Bæjarpóstsins kvartar nýlega í forystu-
grein um lítinn fréttaflutning frá Dalvík og segir einstaklinga og fyr-
irtæki lítið nota fjölmiðla til að kynna sig eða sín fyrirtæki, að
Sæplasti undanteknu. Ritstjórinn segir Akureyrarsíðu Morgunblaðs-
ins lítt sinna þessu svæði og sama sagan sé um svæðisútvarp RUV.
Sennilega er ritstjórinn svo hrifinn af stöðugum fréttaflutningi Dags
frá Dalvík að honum hugnaðist ekki að nefna það í grein sinni. Stað-
reyndín er sú að Dagur sinnir þessu svæði mjög vel, bæði á síðum
fréttabfaðsins með sérstökum fréttum og í Stutt & faggott eins og
birtist hér og eins á síðum Akureyri-Norðurland, sem fylgir blaðinu
hvern þriðjudag.
Stöðugt betra að búa á Dalvík
Dalvík er eitt besta rekna sveitarfélag landsins samkvæmt einkunna-
gjöf tímaritsins Vísbendingar. Dalvík fær einkunina 6,4 og er í 8. sæti
og ofan við landsmeðaltalið sem er 5,4. Dalvíkurbær þýtur upp list-
ann milli ára, var í 24. sæti í fyrra. Önnur sveitarfélög við Tröllaskaga
eru „fallin", en það eru Siglufjörður sem er í 24. sæti með 4,8 og
Ólafsfjörður með 3,8 í 31. sæti. Húsvíkingar „prýða" þennan hóp
með einkunina 4,1 í 30. sæti. — GG
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Innritun
Innritun til náms á vorönn 1998 lýkur
föstudaginn 14. nóvember nk.
Þeir sem saekja um síðar geta ekki
vænst skólavistar.
Skrifstofa skólans er opin alla
kennsludaga frá kl. 8 til 15.
Prófkjör Reykjavík-
urlista 24. jamiar
Ákveðið hefur verið að prófkjör
Reykjavíkurlistans fari fram
laugardaginn 24. janúar næst-
komandi. Meginlínurnar í próf-
kjörsreglunum liggja fyrir og er
aðeins eftir að ganga frá
nokkrum útfærsluatriðum.
Kristín A. Árnadóttir, aðstoð-
armaður borgarstjóra, staðfesti
þetta í samtali við Dag. „Þessi
mál eru öll mjög langt komin og
líklegt að gengið verði endanlega
frá kosningafyrirkomulaginu á
samráðsfundi, sem reyndar hef-
ur ekki verið tímasettur, en verð-
ur trúlega haldinn í vikunni. Það
liggur fyrir að skilgreina nokkur
útfærsluatriði og hefur Þorkell
Helgason verið að leggja okkur
lið í þeim efnum,“ segir Kristín.
Ákveðið hefur verið að próf-
kjör verði um fyrstu sjö sæti list-
ans og að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri skipi bar-
áttusætið, það áttunda. Þeir fjór-
ir samstarfsaðilar sem að Reykja-
víkurlistanum standa munu
skipta sætunum sjö á milli sín
þannig að allir fái eitthvert af
fjórum efstu sætunum, en
næstu þrjú sætin fá þeir aðilar
sem hafa flest prófkjörsatkvæði
á bak við sig. Samstarfsaðilarnir
fjórir eiga hver um sig að bjóða
fram sjö nöfn. — FÞG
Mannfjöldinti eftiraldri 1960,1996 og 202S
1960
1996
202S
Framreiknaö
Spáð er að börn verði álíka mörg og aldraðir eftir 30 ár, en fyrir 30 árum voru þau fjórum sinnum fleiri.
Fyrirvinnimum fækk
ar ekki næstu 30 árin
Fjölgim aldraðra á
næstu áratugiun þýðir
ekki að fyrirviiinuii
iiiii fækki, heldur
fækkar bömuuum þar
á móti.
Þótt öldruðum fjölgi stórum á
fyrstu áratugum næstu aldar
þýðir það ekki færri fyrirvinnur,
eins og ætla mætti af umræð-
unni. Fólk á starfsaldri verður
nánast sama hlutfall lands-
manna árið 2025 og það er nú.
Stóra breytingin er sú, að þá
verður þessi hópur í miklu meira
mæli að vinna fyrir umönnun
feðra sinna og mæðra í stað sona
og dætra.
Gífurleg breyting hefur orðið
og þykir fyrirséð á hlutföllum
barna (yngri en 1 5 ára) og aldr-
aðra (65 ára +) af heildarfjölda
landsmanna. Börn voru meira
en 4-sinnum fleiri en þeir öldr-
uðu árið 1960. Núna eru þau
rúmlega 2-falt fleiri. Og áætlaö
er að aldraðir verði orðnir næst-
um eins margir og börnin árið
2025, samkvæmt mannfjöldaspá
Hagstofunnar.
Samanlagt verða þessir tveir
aldurshópar hins vegar áfram
álíka stórt hlutfall þjóðarinnar
eftir þrjá áratugi og þeir eru nú,
eða kringum 35-36%. Aldurs-
hópurinn þarna á milli (15-64
ára) breytist þar með Iítið sem
ekkert, þannig að áfram standa
um 18 á þeim aldri að baki
hverjum 10 börnum og öldruð-
um.
Athygli vekur, að spárnar gera
ráð fyrir töluvert færri börnum á
íslandi (59.000) árið 2025 en
þau eru nú (65.000), og m.a.s.
færri heldur en þau voru árið
1960, þegar Islendingar voru þó
næstum 100 þúsund færri en
nú. Spárnar gera ráð fyrir 318
þúsund Islendingum árið 2025.
- HEI
Páll fékk mest
Páll Hersteinsson,
fyrrverandi veiðistjóri
og sérfræðingur hjá
Líffræðistofnun Há-
skóla Islands, fékk
4,2 milljónir króna úr
Veiðikortasjóði til að
rannsókna á villi-
minkum og melrakka.
Alls var úthlutað 7,7
milljónum króna til
10 verkefna.
Fyrr á árinu var út-
hlutað alls 8,6 millj-
ónum króna úr sjóðn-
um til rannsókna á
Páll Hersteinsson,
fyrrverandi
veiðistjóri.
rjúpum, öndum og
gæsum á vegum Nátt-
úrufræðistofunar Is-
lands. Tekjur sjóðsins
eru af sölu veiðikorta.
Sjóðnum er ætlað að
standa straum af
kostnaði við rann-
sóknir á stofnum dýra
og fugla sem heimilt
er að veiða. Umhverf-
isráðherra úthlutar
styrkjunum að fengn-
um tillögum ráðgjafa-
nefndar. — GRH
Leiðréttiiig
í opnugrein helgarblaðs Dags
var fjallað um erindi á dóms-
málaþingi um hvort refsingar
væru of vægar á Islandi. I frá-
sögn af erindi Egils Stephen-
sen saksóknara gætti óná-
kvæmni sem skylt er að leið-
rétta. Rétt er að Egill skoðaði
breytingar á refsiþyngd af
hálfu Hæstaréttar, eftir áfrýj-
un undirréttardóma, en hann
skoðaði mál allar götur frá
1960 (ekki 1992) og þá ein-
göngu í nauðgunarmálum.
Dagur biðst velvirðingar á
þessum mistökum. - RITSTJ.