Dagur - 12.11.1997, Side 1
15 milljónir í Sögu Húsavikur
Bæjarstjóm Húsavik-
ur liefur samþykkt
verkáætlun um loka-
vinnu við ritun Sögu
Húsavíkur. Stefnt er
að því að verkinu
ljúki árið 2000.
Bæjarstjórn Húsavíkur hefur
samþykkt að láta halda áfram að
rita Sögu Húsavíkur og gerður
hefur verið nákvæmur verk-
samningur við Sæmund
Rögnvaldsson sagnfræðing um
framhaldið. Ennfremur hefur
verið gerður samningur við Sig-
urjón Jóhannesson um söfnun
og val mynda og ritun myndtexta
í þrjú fyrirhuguð bindi af Sögu
Húsavíkur. Einar Njálsson bæj-
arstjóri kynnti þessa framhalds-
áætlun á fundi bæjarstjórnar á
dögunum.
Hann gat þess að málið hafi
verið lengi í dagskrá og komið til
kasta þriggja bæjarstjórna. 1.
bindi Sögunnar, ritað af Karli
Kristjánssyni, kom út árið 1981.
Aður hafa verið sett tímamörk
um „sögulok" sem ekki hafa
staðist og síðast var samþykkt að
allur texti skyldi vera tilbúinn í
prentsmiðju í september s.l. Það
gekk ekki eftir.
Til tals hefur komið að hætta
hreinlega við verkið eða stinga
því undir stól í bili. En Sögu-
nefnd og bæjarstjóri mátu það
svo að verkið væri svo langt kom-
ið og það mikill kostnaður fall-
inn á það að ekki væri verjandi
að hætta á þessu stigi. Og bæjar-
stjórn féllst á þetta sjónarmið.
Einar sagði að þrátt fyrir tafir
væri ekki hægt að ásaka sögurit-
ara fyrir að ritunin hefði dregist
svo úr hömlu. I ljós hefði komið
að verkið var mun yfirgripsmeira
en gert var ráð fyrir.
Sú áætlun sem bæjarstjórn
samþykkti nú gerir ráð fyrir að
eitt bindi verði tilbúið á hverju
ári næstu þrjú árin og að verkinu
ljúki árið 2000. Standist áætlun
ekki er samningurinn ógildur og
söguritara ber að skila öllu efni
til Húsavíkurbæjar, bænum að
kostnaðarlausu.
Ekki eru tæmandi upplýsingar
um heildarkostnað Húsavíkur-
bæjar vegna ritunar Sögu Húsa-
víkur en endanlegur kostnaður
þegar verkið verður komið út,
þ.e. launakostnaður og prent-
kostnaður, gæti orðið um 15
milljónir. Kostnaður við sögurit-
unina frá I. janúar 1990, þegar
Sæmundur Rögnvaldsson hóf
störf, nemur um 8 milljónum.
Nokkur ár þar á undan hafði
séra Björn Helgi Jónsson unnið
við efnisöflun og ritun. — JS
FH vill kaupa
í sjálfu sér
Á aðalfimdi Fiskiðju-
samlags Húsavíkur
var samþykkt að
heimHa stjóm að
kaupa eigin hluti í fé-
laginu.
A aðalfundi Fiskiðjusamlags
Húsavíkur s.l. föstudag voru
gerðar þær breytingar í stjórn að
Jón Arnar Baldurs kom inn sem
aðalmaður í stað Þorgeirs B.
Hlöðverssonar, sem verður vara-
maður Jóns. Aðrir í stjórn eru
eins og áður Sigurjón Benedikts-
son formaður, Björg Jónsdóttir,
Kristinn Þór Geirsson og Jón
Magnússon.
A aðalfundinum var samþykkt
tillaga frá stjórn FH um heimild
stjórnar til að kaupa hlutabréf í
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur allt
að 60 milljónum króna á nafn-
verði á næstu 18 mánuðum. Má
kaupverð bréfanna ekki vera
hærra en 10% yfir síðast þekktu
söluverði áður en kaupin eru
gerð. Ekki eru sett lágmörk á
heimildina, hvorki hvað varðar
kaupverð né stærð hlutar sem
keyptur er hverju sinni.
Þá var samþykkt lagabreyting
um heimild aðalfundar til stjórn-
ar félagsins um aukningu á
hlutafé þess að Ijárhæð allt að
100 milljónir til ársins 2002.
-JS
Hin aldna kempa, Vernhardur Bjarnason, fyrrum framkvæmdastjóri Fiskiöjusamiags Húsavíkur, var heiöraður á 50 ára afmælis-
hátíd FH. Venni fór ípontu og brýndi menn tii góöra verka og var fagnaö mjög.
Margrét Sverrisdóttir fór á kostum í hlutverki „slúbbrandi vangefinnar blondínu sem
vinnur í Feröamannafrystihúsi" i leikþættinum Rækjublómarósir, á hálfrar aldar af-
mælishófi Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Meira um það í blaöopnu.
Amgrímur eftirsóttur
Kristján Olgeirsson
hefur verið ráðinn
knatt spymuþ j áHari
Völsungs. Leikmanna-
mál eru að skýrast en
mörg lið eru á höttun-
um eftir Amgrími
Amarsyni.
Kristján Olgeirsson hefur verið
ráðinn þjálfari meistaraflokks
Völsungs í knattspyrnu. Kristján
lék með liðinu um árabil og
einnig með IA. Hann á 1 lands-
leik að baki. Hann hefur áður
komið að þjálfun liðsins, þjálfaði
með Helga Helgasyni á sínum
tíma og náði ágætum árangri.
IG'istján er sjómaður að atvinnu
en hyggst koma í land í mars og
til þess tíma mun Ásgeir Baldurs
væntanlega sjá um æfingar.
Að sögn Jóns Arnar Baldurs,
formanns knattspyrnuráðs, ligg-
ur ekki fyrir á þessu stigi hvern-
ig leikmannahópurinn verður
skipaður. Nánast allir sem léku í
fyrrasumar eru tilbúnir að halda
áfram. Óvissa er |>ó með Arn-
grím Arnarson en hann er mjög
eftirsóttur og m.a. hafa Leiftur
og Breiðablik verið að bera ví-
urnar í hann. Jón Arnar segir að
allt kapp verði Iagt á að halda
Agga.
Þá er öruggt að Róbert Skarp-
héðinsson mun snúa heim eftir
ársdvöl hjá KA. Og varnarjaxlinn
Baldvin Viðarsson er að ná sér
eftir langvarandi meiðsli og ætl-
ar að spila með í sumar. Mikill
styrkur er af endurkomu Balla
og Danna. — js