Dagur - 12.11.1997, Blaðsíða 4
é - MIÐVIKUDAGU R 12. KÓ VEMBER 1997
rD^tr
VÍKURBLAÐIÐ
L A
12 imlljóiiir í höfnina
Þessa dagana er uimið
við að grafa laust efni
upp úr iunri höfninni
á Húsavík og vonast
til að ástandið þar
hatni a.m.k. tíma-
hundið.
Þessa dagana er íyrirtækið
Hagtak með pramma og gröfu
við Húsavíkurhöfn og vinnur að
því að moka upp leðju og lausu
efni úr innri höfninni og við
endann á þvergarðinun. Að sögn
Einars Njálssonar, hafnarstjóra,
verður lögð áhersla á að finna og
helst fjarlægja mishæð sem hef-
ur valdið vandræðum í innsigl-
ingunni en erfitt hefur verið að
staðsetja hana með dýptarmæl-
ingu.
Einar gerði ráð fyrir að unnið
yrði í 2-3 vikur og fyrir að há-
marki um 10-12 milljónir. Og
vonand dygði það til að bæta
ástandið í innri höfninni a.m.k.
tímabundið, þó auðvitað yrði
sandurinn alltaf á einhverri
hreyfingu. Fyrir nokkrum árum
var hreinsað upp úr höfninni
með sama hætti og nú og gaf
góða raun.
Mikil óvissa er um varanlegar
hafnarbætur á Húsavík. Á fundi
bæjarstjórnar með þingmönnum
kjördæmisins kom fram að
menn voru ekki of bjartsýnir á
fjárveitingar til framkvæmda hér
á næstunni og m.a. kom fram í
máli samgönguráðherra að hafn-
arframkvæmdir á Akureyri hefðu
forgang. -JS
Retknistofa
Húsavíkur
lögð niðiir
Reiknistofa Húsavíkur, sem
starfrækt hefur verið um
árabil, hefur lokið hlutverki
sínu.
Starfsemi Reiknistofu
Húsavíkur hefur dregist
jafnt og þétt saman á síð-
ustu árum og nú er í burðar-
liðnum að leysa fyrirtækið
UPP °g leggja það niður.
Húsavíkurkaupstaður, Fisk-
iðjusamlag Húsavíkur og
Kaupfélag Þingeyinga eru
aðaleigendur Reiknistofunn-
ar, með um 32% eignarhlut
hvert.
Þau fyrirtæki sem aðild
áttu að Reiknistofunni hafa
sjálf yfirtekið stærstan hluta
verkefna hennar og FH og
KÞ aðeins verið með
launkeyrslur þar inni. Og að
sögn Einars Njálssonar bæj-
arstjóra, þótti skynsamlegt í
þeirri stöðu að bærinn
keypti eigin tölvu og mun
um áramót fara að vinna
þau verkefni sem Reikni-
þjónustan annaðist áður.
„Það má segja að hlutverki
þessa fyrirtækis sé einfald-
lega lokið og því eðlilegt að
leysa það upp,“ sagði Einar.
Síðustu ár hefur einn
starfsmaður unnið hjá
Reiknistofunni við tölvu-
vinnslu og annar í hluta-
starfi við ræstingar. — JS
Rækjuveið-
indræm
Það sem af er haustinu hef-
ur veiði á innfjarðarrækju í
Skjálfanda verið mun dræm-
ari en síðustu ár á þessum
tíma. Þó virtist hún eitthvað
ver að glæðast í síðustu
viku.
Menn kunna ekki skýring-
ar á þessu ástandi en vona
að úr rætist. — JS
Foreldrar á vaktinni
Foreldrax verða á rölt-
inu á Húsavík í vetur
og bera „ábyrgð tH af-
skipta.“
Ákvéðið hefur verið að starf-
rækja foreldravakt á Húsavík um
helgar í vetur, eins og reyndar
var gert í fyrravetur þegar for-
eldrar voru á röltinu á föstu-
dags- og laugardagskvöldum.
Fyrirkomulagið verður þannig
að hópur foreldra, minnst þrír,
fær sér göngu um bæinn þessi
kvöld, fylgist með unglingunum,
minnir á útivistartíma og grípur
inn í varasamar aðstæður.
Foreldravaktin mun starfa í
nánu sambandi við lögreglu og
lögreglan mun aka um bæinn og
minna á útivistartíma.
Það eru foreldrar í eldri bekkj-
um Borgarhólsskóla sem verða á
vaktinni og aðstandendur for-
eldravaktar skora á foreldra og
aðra uppalendur að „bera ábyrgð
til afskipta" unga fólkinu til
heilla. — JS
Klakakvintettirw vakti hrifningu Húsvíkinga.
Norðlensldr
fj ölþj óðablásarar
Fimm blásarar úr Sin-
fóníuhljómsveit Norð-
urlands léku fyrir
Húsvíkinga í fyrri
viku og fengu góðar
viðtökur.
Hinn stórgóði Klakakvintett hélt
tónleika í Safnahúsinu á Húsa-
vík s.l. föstudag og lék einnig við
vígsluhátfð Tónlistarskóla Húsa-
víkur daginn eftir. Klakakvintett-
inn er skipaður 5 blásurum sem
jafnframt eru tónlistarkennarar
á Norðurlandi og spila allir í
Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands. Þetta er fjölþjóðlegur
hópur. Fászló Czenek og Pál
Barna Szabó sem spila á franskt
horn og fagott eru frá Ungverja-
landi, þverflautuleikarinn Anton
Fournier er Kanadamaðuf,
Jacqueline FitzGibbon leikur á
óbó og er írsk og Björn Feifsson,
sem er bara frá Reykjavík, spilar
á klarinett.
Kvintettinn vakti mikla hrifn-
ingu á Húsavík og sérstaklega
var gaman að hlýða á „Hræru"
Þorkels Sigurbjörnssonar, þar
sem höfundur blandar saman
ýmsum kunnum þjóðalagastefj-
um í einn hrærigraut. — JS
Kaitkvís klerkur
Sjá Ijölhæfi þúsundþjala
klerkur, séra Sigurður Ægis-
son á Grenjaðarstað er með
skemmtilegri mönnum og
sjaldan hægt að tala um að
helgislepjan beinlínis leki af
honum. Enda er kall gjarnan
til kallaður þegar hefja skal
gleði hátt á loft.
Þannig var séra Sigurður á
dögunum veislustjóri á af-
mælishátíð Fiskiðjusamlags
Húsavíkur og fór á kostum
ofan þindar og neðan. Reynd-
ar runnu nokkrar grímur á
viðstadda þegar klerkur hóf
að rifja upp boðorðinn 10
eins og þau eru skráð í Biblí-
unni. En þau voru bara for-
málin að sérstaklega frum-
sömdum boðorðum kvöldins.
Sem voru m.a: Þú skalt ekki
aðra veislustjóra hafa en mig
hér í kvöld. Og: Þú skalt ekki
girnast þjón Hótelsins, þernu
eða annað starfsfólk þess. Og
reyndar sagði Sigurður að
þetta með að girnast þjóninn,
væri séstaklega tekið fram
vegna þess að Páll Óskar ætti
eftir að syngja með Milljóna-
mæringunum síðar um kvöld-
ið!
KviMndm norsk
Á þessari afmælishátið var
fluttur stórgóður hátíðarbrag-
ur sem Sigurður hafði saman
sett við þekkt Iag eftir Ed-
ward Elgar. Þar var fiskmeti
að sjálfsögðu í hávegum haft
og hljómaði eitt erindi svo:
Bráðimi skammtinn má skera,
skella krásum á disk.
Allt að borðum si’o bera,
bragða gómsætan ftsk:
st'ld og löngu og lýsu,
lúðu, steinbít og þorsk,
karfa ufsa og ýsu.
Éta kvikindin norsk!
Og síðar í sama brag sagði:
Burt með pitsu og pasta!
Prófum rækjunnar kjöt!
Naggaritari tekur undir
þetta matarmat klerks og
mælir um leið með neyslu
Nagga við flest tækifæri.
Ráðherra í sögu-
ritun?
1 umræðum um Sögu Húsa-
víkur í bæjarstjórn Húsavíkur
var m.a. rætt um að síðari
bindi yrðu í einhverju sam-
ræmi við fyrsta bindið sem
Karl Kristjánsson, fyrrum
þingmaður Framsóknar-
flokksins reit eftir að hann
hætti þingmennsku. Tryggvi
Jóhannsson, hinn glúrni bæj-
arfulltrúi G-lista, stakk þá
upp á að réttast væri að
fresta ritun sögunnar, þangað
til Guðmundur Bjarnason,
þingmaður Framsóknar hætti
á þingi, og fela honum að
klára verkið, þannig að sami
háttur yrði á hafður og lagt
var upp með.