Dagur - 26.11.1997, Page 2
2 — MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997
rD^r
Sitt sýnist hverjum um útlit þessarar byggingar.
Útlitsgölluð sundlaugarviðbyggmg?
Bygginganefnd Húsa-
víkiir hefur hafnað
osk um hyggingaleyfi
viðhyggingar við
Sundlaug Húsavíkur.
Nefndin getur ekki
sætt sig við útlit
hússins.
Nokkuð óvenjulegt mál er komið
upp í bæjarkerfinu á Húsavík
eftir að bygginganefnd bæjarins
samþykkti að hafna erindi frá
bygginganefnd Sundlaugar, þar
sem óskað var eftir byggingaleyfi
fyrir viðbyggingum við Sundlaug
Húsavíkur. Lagðar voru fram
teikningar af viðbyggingu sem
Helgi Hafliðason arkitekt hefur
unnið og eru þær samþykktar af
Brunamálastofnun, Vinnueftir-
liti og heilbrigðisfulltrúa. Bygg-
inganefnd bæjarins hafnaði ósk
um byggingaleyfi þar sem nefnd-
in gat ekki sætt sig við útlit húss-
ins.
Það er harla fátítt að smekkur
bygginganefndar-
manna sé svo sam-
stíga sem í þessu
máli og bæjarfull-
trúar mundu ekki
eftir sambærilegri
afgreiðslu hjá
nefndinni, þegar
málið var til um-
ræðu á fundi bæjar-
stjórnar í fyrri viku.
Þar kom einnig
fram að fulltrúar í
bygginganefnd
hefðu ekki aðeins
verið óánægðir með
útlit hússins, held-
ur einnig með að
hafa ekki fengið að
fylgjast með hönn-
un hússins og þurfa
að standa frammi
fyrir því að sam-
þykkja tilbúnar
teikningar sem þegar væri búið
að vinna með ærnum lilkostn-
aði.
Einar Njálsson bæjarstjóri
sagði málið komið í öngstræti
eftir afgreiðslu bygginganefndar.
Hann gat þess að auðvitað yrði
Sudurhlið Sundlaugar Húsavikur.
ekki deilt um smekk og hann
gerði ekki lítið úr smekk nefnd-
armanna. Hinsvegar hefði e.t.v.
verið eðlilegt að rökstuðningur
fylgdi afgreiðslunni, að málið
væri ekki afgreitt með því einu
að húsið væri einfaldlega ljótt.
Hönnuður og bygginganefnd
Sundlaugar hefðu lagt mikla
vinnu í teikningar, byggingin
stæðist allar kröfur og raunar
hefði teikningin verið kynnt
nefndinni á frumstigi og útlitið
hefði ekki breyst mikið frá því.
Hann lýsti einnig óánægju
sinni með að bygginganefnd
hefði hafnað ósk um að sitja
fund með hönnuði og ræða mál-
ið og kanna hvort menn gætu
ekki náð lendingu í því. Bygg-
inganefnd virtist misskilja hlut-
verk sitt í þessu máli, sem væri
fyrst og fremst að sjá um að unn-
ið væri eftir lögum og bygginga-
reglugerðum, þó fagurfræðileg
sjónarmið væru einnig höfð að
Ieiðarljósi. Sérstök bygginga-
nefnd Sundlaugar væri starfandi
og algengt að slíkar störfuðu,
m.a. bygginganefnd grunnskóla
og bygginganefnd stjórnsýslu-
húss. Þessar sérstöku nefndir
væru skipaðar til að fara með
umboð bæjaryfirvalda og fylgjast
náið með hönnun og þróun til-
tekinna verkefna, og síðan
kæmu tilbúnar teikningar inn á
borð bygginganefndar bæjarins.
Bæjarstjórn samþykkti að vísa
málinu aftur til bygginganefndar
með ósk um að nefndarmenn
sætu fund með hönnuði og bygg-
inganefnd hússins. Fundurinn
verður haldinn 3. desember n.k.
-JS
GAMLA MYNDIN
Húsf riðunarsjóður
Húsfriðunarnefnd ríkisins auglýsir eftir umsóknum til Húsfriðunarsjóðs,
sbr. ákvæði í þjóðminjalögum nr. 88/1989 sbr. lög nr. 43/1991 og
98/1994 og reglugerð um Húsfriðunarsjóð nr. 479/1993.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar vegna:
- undirbúnings framkvæmda, áætlanagerðar og tæknilegrar ráðgjafar og
til framkvæmda vegna viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og hús-
um sem hafa menningarsögulegt og listrænt gildi.
- byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu þeirra.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á að leita eftir áliti Húsfriðunar-
nefndar ríkisins og sækja um styrk áður en framkvæmdir hefjast.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. febrúar 1998 til Húsfriðunarnefnd-
ar ríkisins, Þjóðminjasafni (slands, Suðurgötu 41, 101 Reykjavík, á um-
sóknareyðublöðum sem þar fást.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 562 2475 milli kl. 10.30 og 12.00
virka daga.
Húsfriðunarnefnd ríkisins.
Afmælisböm
dagsins
í dag, 26. nóvember, eiga
þessir afmæli á Húsavík:
Sigríður Jónína Helga-
dóttir, Litlahvammi, f.
1922; Emilía Guðrún
Svavarsdóttir, Baughóli 4,
f. 1947; íris Gunnarsdótt-
ir, Hjarðarhóli 1, f. 1975;
Alma Hrönn Káradóttir,
Uppsalavegi 3, f. 1984;
Daníel Freyr Kristínar-
son, Grundargarði 11, f.
1990.
27. nóvember verður átt-
ræð Emelía Jónsdóttir,
Sjúkrahúsi Þingeyinga.
Sama daga verður sextugur
Þórgrímur Björnsson,
Baldursbrekku 17. Og fer-
tugur verður Páll Þór
Jónsson, Ásgarðsvegi 2.
- BK/jS
Vísnaþáttur
Hvað þurfa menn helst þegar
hefja á búskap? Sjónvarp að
sjálfsögðu, hljómflutnings-
tæki, sófasett, uppþvottavél,
bfl. ofl. ofl. Og hefur ýmislegt
breyst frá því eftirfarandi þula
var samin og þarfirnar aðrar.
Þulan birtist í Kvöldvökum
árið 1913 og er forvitnileg og
um leið dálítil kennslustund í
íslensku.
Búmannsþula
Fátækir þegar byrja bú
bresta vill efninflest:
Jörðina, stúlku, ker og kú,
kvikfénað, reipi og hest;
fötu, trog, ausu, steðja og strokk,
stelpu sem hirðirfé,
laupana, kláfa, reizlu og rokk,
rekkvoðir, kodda og beð;
skaröxi, hamar, sög og sekk,
síl, bækttr klyfberann,
skhtnklæði, leðttr, röskan rekk,
reku, pál, torfskerann,
hrífu, orf, kláru, hefilbekk,
hattdraklta viljugan;
kistu þarf líka, kopp og nál,
kerald og heykrókinn,
askana, reiðing, skafa og skúl,
skyrgrind, pott, vefstólinn,
vettlinga, prjóna, snældtt og snúð,
smíist á kvömum mél,
baðstofu þá með brattri súð,
bæði þarf spón og skel,
hnakk og söðul, með klafa á kú,
katnb og vinstur, sem drýgtr btí;
hnappheldu, vöggtt, beizli og bönd,
brýni, hníf, járn og tré;
Síu og kamb, - um svarðarlönd,
síst mun þá blómgastfé. -
Hvt'li ég mína haukaströnd;
hvað hefég nú í tél