Dagur - 29.11.1997, Blaðsíða 4
IV- LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
rD^tr
MINNINGARGREINAR
Þorgeir Sveinsson
Þorgeír Sveinsson f. 16.
6.1927 að Hrafnkelstöðum,
Hrunamannahreppi, Arnes-
sýslu. Hann lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands þ. 25. 11. 1997.
Foreldrar hans voru Sigríður
Haraldsdóttir f. 30. 12. 1900
d. 20. 5. 1991 og Sveinn
Sveinsson f. 15. 1. 1893 d. 27.
5. 1954 bændur á Hrafhkels-
stöðum. Börn þeirra önnur en
Þorgeir: Kristrún f. 2. 9. 1930,
d. 24. 9. 1979, Sveinn Gunnar
f. 13. 8. 1932, Guðrún f. 24. 5.
1935, Haraldur f. 15. 9. 1941.
Þorgeir kvæntist þ. 12. 6.
1952 Svövu Pálsdóttur frá
Dalbæ, Hrunamannhreppi f.
Eigum mikið úrval varahluta og
aukahluta í bíla og búvélar
Rafgeymar
Viftureimar
Timareimar
Öxulhosur
Kúplingar
Þurrkublöð
Bremsuhlutir
Kveikjuhlutir
Demparar
Perur og Ijós
Sauðfjárklippur
Kúaklippur
VELAR&
ÞJÓNUSTAhf
ÓSEYRI 1A, 603 AKUREYRI, SlMI 461 4040, FAX 461 4044
Rafgirðingarefni
Tengiboltar
Yfirtengi
Mótorhitarar
Drifskaftsefni
Keðjuefni
ásamt ýmsu fleiru.
Nýir tímar
(Nýjar áher slu r>
Nuddkort hjá ingu Baldvins.
Svæöanudd og höfuðbeina- og
spjaldhryggslosun (cranial sacral)
5 skipti, 90 mín hver tími kr. 9.500.
Vöðvanudd (nudd 60 mín + slökun)
5 skipti kr. 10.900.-
Nuddpottur og vatnsgufubað
innifalið í allri þjónustu.
Gjafakort
Andlitsbað, handsnyrting,
fótsnyrting og slökunarnudd
6 klst. verð kr. 8.900.-
Handsnyrting og fótsnyrting
með parafinvaxi (hitamaski sem nærir
húðina og örvar blóðrás)
3 klst. kr. 5.050.-
Mary Cohr andlitslyfting
- Callagen meðferð -
Lyfting beaute 3 skipti 90 mín
hvert kr. 13.500.-
I '"FV"
Dekur er okkar sérgrein.
Dekur í notalegu umhverfi og í góðum
höndum er gjöf sem sýnir ást og um-
hyggju.
Ath. verðtilboð í
desember 1997
20. 4. 1928. Foreldrar hennar
voru Margrét Guðmundsdóttir
f. 7. 1. 1898, d. 4. 5. 1988 og
Páll Guðmundsson f. 8. 9.
1899, d. 17. 5. 1966 bændur í
Dalbæ. Börn Þorgeirs og
Svövu eru Pálmar f. 15. 10.
1951, maki Ragnhildur Þórar-
insdóttir, börn: Lára Bryndís,
Rúnar og Svavar Geir; Hrafn-
hildur f. 18. 12. 1952, maki
Guðmundur Auðunsson, börn:
Arnar Þór, Auður og Carina;
barn Arnars Þór og Heiðu
Bjarkar Asbjörnsdóttur er
Bryndís María; Brynhildur f.
1. 5. 1955, Sveinn Sigurður f.
18. 2. 1958, maki Anna Ring-
sted, börn: Elísabet Ýr og Þor-
geir; Aðalsteinn f. 4. 2. 1961,
maki Margrét Jónsdóttir,
börn: Iðunn, Jón Þorgeir og
Hákon. Aðalsteinn og Margrét
eru nú bændur á Hrafnkels-
stöðum.
Þorgeir lauk gagnfræðaprófi
frá Flensborg í Hafnarfirði
árið 1946. Hann var virkur fé-
lagi í Ungmennafélagi Hruna-
manna og sat í stjórn þess.
Einnig var hann einn af mátt-
arstólpum í leikstarfsemi Ung-
mennafélagsins um árabil.
Arið 1952 stofnaði hann svo
ásamt konu sinni nýbýli á
Hrafnkelsstöðum og bjó þar
síðan. Þorgeir var áhugamað-
ur um hestamennsku, hrossa-
rækt og tamningar frá unga
aldri. Hann var einn af stofn-
endum Hestamannafélagsins
Smára og átti sæti í stjórn þess
í fjölda ára. Hann var formað-
ur Hrossaræktarfélags Hruna-
mannahrepps og síðar formað-
ur Hrossaræktarsambands
Suðurlands.
Elsku Þorgeir minn, mig langar
til að kveðja þig með örfáum
orðum og þakka þér allar góðu
stundirnar sem við áttum sam-
an.
Það hefur verið mér ómetan-
legt að hafa fengið að kynnast
þér og njóta alls þess sem þú
varst tilbúinn að gefa mér í
fróðleik og skemmtun. En
alltaf sannast best eigingirnin í
manni þegar að því kemur að
kveðja þá á maður svo erfitt
með að sleppa.
En ég veit að þín bfða margir
góðir vinir og ættingjar sem
taka fagnandi á móti þér og láta
þér líða sem best, og svo er
bara að skella sér á hestbak. En
þessi mál ræddum við nú svo
oft og höfðum bæði skoðun á.
Kæri vinur ég á eftir að sakna
þeirra stunda sem við áttum
saman, það er nú ekkert svo
langt síðan að við vorum að
rifja upp það sem þú kenndir
mér um tunglið t.d. og situr nú
svona speki ekki Iengi í mér en
þú gerðir þetta svo áhugavert
að ég hugsa oft um það. Þá eru
nú ófá kennileitin hér í Hruna-
mannahrepp sem þú hefur
frætt mig um og sögurnar sem
þú hefur sagt mér. Elsku Þor-
geir takk fyrir allt sem þú hefur
gefið mér og megir þú hvíla í
friði.
Ég og fjölskylda mín sendum
samúðarkveðju til Svövu og
Ijölskyldu.
Kristbjörg Gtsladóttir
Að morgni þriðjudagsins 25.
nóvember kvaddi þennan heim
vinur minn og félagi Þorgeir á
Hrafnkelsstöðum, en Þorgeir
hafði átt við vanheilsu að stríða
um árabil.
Þorgeir ólst upp á Hrafnkels-
stöðum við almenn störf í sveit,
en miklar breytingar hafa orðið
á búskaparháttum síðan hann
var að vaxa úr grasi.
Snemma hneigðist hugur
hans til búskapar og var hann
glöggur og natinn hirðir.
Sauðfjárrækt var honum
hugleikin og átti hann ágætt fé.
Sveinn faðir hans var afburða
hestamaður og tók Þorgeir það
í arf. Þorgeir var einn af stofn-
félögum Hestamannafélagsins
$mára og var þar ötull félagi í
starfi og leik.
Félagar í Smára voru fram-
sýnir því að á fyrstu árum fé-
lagsins gengust þeir fyrir star-
frækslu tamningastöðvar sem
rekin var í Hreppunum og
komu hross víða að. Til
verksins völdust þeir Sigurgeir í
Skáldabúðum, Björgvin í
Laxárdal og Þorgeir. Mörg voru
tryppin baldin og aðstæður
aðrar en menn búa við í dag.
Þeir félagar voru allir orðlagðir
dugnaðarforkar og fórst þeim
verkið vel úr hendi. Þorgeir
sagði undirrituðum oft frá þes-
sum tíma og sást þá blik í auga.
Kynni okkar hófust fyrir tæp-
um 20 árum þegar ég kynntist
konu minni Helgu bróðurdót-
tur hans. Með okkur Þorgeir
tókst góður kunningsskapur
sem varði síðan.
Oft reið ég úr Flóanum upp í
Hreppa. Þorgeir reið stundum
á móti og fylgdi mér oft á leið
aftur fram Langholtsfjall niður
um Alfaskeið og fram að Stóru-
Laxá. Þá hélt hvor sína leið.
A stundum var Þorgeir sí-
fræðandi og skemmtinn félagi.
Fyrir tæpum tveimur árum
varð Þorgeir vistmaður á lang-
legudeild Sjúkrahúss Suður-
lands, Ljósheimum á Selfossi.
Þar undi hann hag sínum vel
og fór heim að Hrafnkels-
stöðum hvenær sem færi gafst.
Fylgdist hann vel með búskap-
num hjá Aðalsteini syni sínum.
A veggnum í herbergi hans á
Ljósheimum hékk mynd af
Blesa, fyrsta hestinum sem
hann eignaðist og var honum
kærastur allra hesta.
Svövu, börnum, tengdabörn-
um, barnabörnum og barn-
abarnabarni, sendi ég og fjöl-
skylda mín öllum samúðar-
kveðjur með þökk fýrir kynni af
góðum dreng.
Sverrir Agústsson
■L