Dagur - 03.12.1997, Blaðsíða 1
Stefnan tekin á hreinan
meníhluta í bæjarstjórn
Vidræður standa yfir
rniUi fulltrúa A- og G-
lista á Húsavík um
sameiginlegt framboð
í vor.
Markmið beggja listanna er að
vinna hreinan meirihluta í bæjar-
stjórn undir nafni Húsavíkurlist-
ans.
Fyrsti viðræðufundur samn-
inganefnda A- og G-Iista á Húsa-
vík fór fram s.l. sunnudag, en fé-
lagsfundir beggja félaga höfðu
samþykkt að ganga til sameining-
arviðræðna af heilum hug.
Að sögn Orlygs Hnefils Jóns-
sonar, sem sæti á í viðræðunefnd
G-listans, gekk þessi fyrsti fund-
ur vel, engin snurða hljóp á þráð-
inn og viðræðum verður haldið
áfram.
Örlygur segir að báðir Iistar
gangi til samningaviðræðna með
það að markmiði að ef sameigin-
legt framboð þeirra verði að veru-
leika, þá verði stefnan tekin á
hreinan meirihluta í bæjarstjórn
Húsavíkur. G-listi Alþýðubanda-
lags og óháðra á nú þrjá bæjar-
fulltrúa í bæjarstjórn og A-listinn
er með einn, þannig að samein-
aður Iisti þyrfti að bæta við sig
einum manni til að fá hreinan
meirihluta.
Þegar liggur fyrir að einn af
bæjarfulltrúum G-Iista, Valgerð-
ur Gunnarsdóttir mun ekki gefa
kost á sér á framboðslista í vor og
bæjarfulltrúi, A-lista, Jón Asberg
Salómonsson, mun sömuleiðis
ekki gefa kost á sér. Hinir bæjar-
fulltrúar G-listans, Kristján As-
geirsson og Tryggvi Jóhannsson
hafa ekki gefið afdráttarlausar yf-
irlýsingar um hvort þeir gefa
áfram kost á sér.
Örlygur Hnefill segir að ef að
sameiginlegu framboði verði, þá
muni listinn höfða til félags-
hyggjufólks hvort sem það er
flokksbundið eða óflokksbundið,
og einnig til þeirra sem vilja sjá
breytingar.
Þegar virðist vera komin upp
nokkur samstaða hjá sameining-
arsinnum um að sameiginlegur
listi, verði hann að veruleika,
muni hljóta nafnið Húsavíkur-
listinn. - JS
Laufa-
hrauðin
ljúf
oggóð
Þingeyingar hamast nú í laufa-
brauði allar helgar en Kvenfélags-
konur á Húsavík voru fyrstar af
stað.
Kvenfálag Husavíkur hefur skorið
og selt laufabrauð svo lengi sem
elstu félagskonur muna, og lengst
af á árlegum jólabasar. Fyrir þessi
jól verður enginn hasar og var þess
í stað tekið á móti pöntunum og
Kvenfélagið seldi um 1400 kökur,
einkum tU fyrirtækja í hænum.
Konurnar skiptu sér í hópa og
skáru og steiktu í heimahúsum út
um aHan bæ. Og þurfa svo auðvitað
lika að búa tU laufabrauð ofan í sig
og sina. Á myndinni hér tU hliðar
eru Kvenfélagskonurnar Hildur
Baldvins (HiUa) og HaUdóra Theo
dórsdóttir (HiUa) að steikja laufa-
brauð í gríð og erg. - js
Biörk í fullviimslu
á harðviði
Þijú fyrirtæki á Húsa-
vík hafa stofnað fyrir-
tækið Björk ehf. sem
mun annast iull
vinnslu á harðviði frá
Aldin.
Stofnað hefur verið á Húsavík
fyrirtældð Björk ehf og er stefnt
að því að fyrirtækið annist full-
vinnslu úr harðviði frá Aldin hf.
Þrjú fyrirtæki í bænum standa
að stofnun Bjarkar, Aldin hf, Vík
ehf og Norðurvík ehf. Stjórn
nýja fyrirtækisins skipa þeir Að-
alsteinn Skarphéðinsson, for-
maður, Þórólfur Aðalsteinsson
og Gunnlaugur Stefánsson. Fyr-
irtækið hefur tekið á leigu 330
fermetra húsnæði af Vík hf. að
Höfða 24 undir starfsemina.
Björk ehf. mun gera fastan
samning við Aldin um fram-
leiðslu á vörum úr harðviði og
stefnir einnig að því að gera
samninga við aðra aðila um
ákveðna framleiðslu eða sér-
vinnslu, t.d. heflun eða kílingu á
mjúkviði.
Meðal þess sem fyrirhugað er
að framleiða úr harðviði eru
gólfborð, parket, gólflistar,
veggjaþiljur og límtrésplötur.
Könnun sem stofnaðilar gerðu
í samvinnu við Atvinnuþróunar-
félag Þingeyinga bendir eindreg-
ið til að hér sé um arðbæra fram-
leiðslu að ræða og sérstaða og
styrkleiki fyrirtækisins felst í að-
gengi að hráefni frá Aldin hf.,
sem er eini framleiðandi harð-
viðar á íslandi.
Heildarstofnkostnaður fyrir-
tækisins nemur 12,8 milljónum
og liggur fyrst og fremst í véla-
búnaði. Gert er ráð fyrir tveim
ársstörfum við fyrirtækið til að
byfya með og eru menn vongóðir
um aukningu í framtíðinni. — JS
Húsvikingar fengu að kynnast vínmenningu á dögunum þegar Sigmar B. Hauksson
mætti á staðinn og uppfræddi innfædda. Hér er hann með sýnikennslu í verkiegum
æfingum.
Uppsagnir hjá
TaM sf. á Húsavík
Tak s.f. „löiidunar
gengið“ á Húsavík,
hefur sagt upp öUuui
starfsmöimiiui.
Ástæðan mun fyrst og fremst
vera mikill samdráttur í löndun
fiskafla á Húsavík, en á undan-
förnum mánuðum hefur fækkað
verulega bátum sem hér leggja
upp og þar með dregið úr um-
svifum hjá Taki sf.
Flestir starfsmenn Taks hafa
3ja mánaða uppsagnarfrest. — JS