Dagur - 03.12.1997, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997 - 3
VÍKURBLAÐIÐ
i
Formaður Verslunarmannafélags Húsavikur skenkir Erlu Sigurðardóttur aðstoðarhótelstjóra.
Ríkisforstjórinn Sigurður Þórarinsson og kona hans Hafdís Jósteinsdóttir.
Hiim eini sanni víngerðarniaðiir
Sigmar B. HaiLksson
leiddi áhugamenn á
Húsavík inn í leyndar-
dóma vínsmökkunar
á námskeiði á dögun-
um.
Verslunarmannafélag Húsavíkur
stóð fyrir þessu námskeiði í vín-
smökkun sem var vel sótt. Ekki
síst voru starfsemnn veitinga-
húsa, í ferðaþjónustu og starfs-
fólk ÁTVR duglegt að mæta
enda hluti af faginu að kunna
skil á vínum og miðla upplýsing-
um þar um.
Sigmar flutti mikinn og góðan
iýrirlestur um sögu víns og vín-
gerðar og voru það gríðarleg vís-
indi og greinilega að mörgu að
hyggja þá framleiða á gott vín.
Olga Valdimarsdóttir og Guðrún Helga Hermannsdóttir smakka á veigunum.
Sigmar sagði reyndar að hinn
eini sanni víngerðarmaður væri
Guð almáttugur, því gæði og
persónuleiki víns réðist fyrst og
fremst af veðri og vindum, lofts-
lagi, jarðvegi og síðast en ekki
síst birtu sólarljóssins. Hann
fjallaði m.a. um hollustu rauð-
Vel var mætt til vínafundar.
víns sem nú væri viðurkennd af
læknum og taldi að öllum væri
hollt að fá sér eitt glas af rauð-
vfni á dag alla ævi.
Að fyrirlestri loknum hófust
verldegar æfingar og var mikið
þefað og sötrað og bragðlaukar
þjálfaðir. „Þetta er íþrótt og ef
menn vilja ná árangri verða þeir
að æfa mikið og stíft. Og það er
miklu skemmtilegra að æfa
þessa íþrótt heldur en t.d. að
fara út að hlaupa," sagði Sigmar
og glotti. - JS
Átak í atvinnuniáluni fadaðra
Starfshópur á vegum
Félagsmálastofnimar
og Viniiiiiiiiöliuiar
Hiisavíkur hefur uini
ið að átaki í atvinnu-
málum fatlaðra í hæn-
um og orðið vel
ágengt.
í dag er Alþjóðlegur dagur fatl-
aðra og af því tilefni verður fyrir-
tækinu Islenskum sjávarréttum
ehf. á Húsavík veitt viðurkenn-
ing fyrir framlag sitt til atvinnu-
mála fatlaðra.
Myndaður hefur verið starfs-
hópur á vegum Félagsmálastofn-
unar og Vinnumiðlunar til að
vinna að átaki í atvinnumálum
fatlaðra í bænum. Hópinn skipa
Lone Jensen, deildarstjóri mál-
efna fatlaðra, Sigríður Guðjóns-
dóttir starfsmaður Félagsmála-
stofnunar, Ágúst Óskarsson frá
Vinnumiðlun og Lilja Sæmunds-
dóttir forstöðumaður Sambýl-
anna á Húsavík.
Hópurinn sendi nokkrum fyr-
irtækjum bréf þar sem óskað var
samstarfs á þessu sviði og voru
viðbrögð mjög jákvæð. Fyrirtæk-
in eru Leikskólinn Bestibær,
Aldin ehf, Islenskir sjávarréttir
ehf, Islandsbanki hf og Sana ehf.
Verið er að huga að heppilegri
atvinnu fyrir 12 einstaklinga á
aldrinum 17-47 ára og eru 5
þeirra í forgangshópi. Einn hef-
ur eins og áður sagði þegar hafið
störf og um áramót byrjar annar
hjá Bestabæ. Þetta fólk býr í
Sambýlinu í Sólbrekku og í
heimahúsum.
Miðað er við að fóikið fái
starfsþjálfun í 3 mánuði, 4 tíma
á dag og ef vel gengur verður
reynt að framlengja ráðningar-
tímann í 6 mánuði. Mjög mikil-
vægt er að finna störf sem henta
hverjum og einum. Og það virð-
ist hafa tekist mjög vel hjá Is-
lenskum sjávarréttum. Þegar
Víkurblaðið leit þar við á dögun-
um var Anna María Bjarnadóttir
að raða hinum rómuðu fiskiboll-
um fyrirtækisins á bakka og
gerði það mjög vel. Hún sagði að
þetta væri mjög skemmilegt starf
og hún gerði ýmislegt fleira en
að raða fiskibollum. Geirfinnur
Svavarsson, framkvæmdastjóri,
sagði að engin vandamál hefðu
komið upp í þessu samstarfi og
Anna María staðið sig mjög vel í
vinnunni.
Starfsmaður félagsmálastofn-
unar mun fylgjast með viðkom-
andi fötluðum starfsmanni á
hverjum vinnustað og verður í
sambandi við vinnuveitanda
þannig að leysa megi sem fyrst
vandamál ef upp koma svo sam-
starf stofnunarinnar og fyrirtæk-
isins verði sem best. Lögð er
áhersla á að ráðning í starf byggi
ekki á samúð vinnuveitenda
heldur því hversu vel starfið
hentar viðkomandi og fyrirtækið
hafi af því hag eins og starfsmað-
urinn. — JS