Dagur - 09.12.1997, Qupperneq 1
Ámi Bjöm Guðjóns-
son stefnirað krísti-
legu fmmboði fyrír
borgarstjómarkosn-
ingamarí vor. Hann
hejur auglýst eftir
fólki á lista og vonast
til aðfá inn ungtfólk
með kríst í hug og
hjarta. Hann eralls-
endis óhræddur við
allt tal um trúar-
ofstæki.
Árni Björn Gudjónsson stefnir að kristiiegu framboði í borginni og vonast til að ná inn einum fulltrúa til að byrja með. Hann vill að fjölskyldan komist til valda fyrir tilstuðlan
kristninnar. Ef ne/kvæðri þróun þjóðfélagsins verði ekki snúið við þá bíði bara tortíming. mynd:
„Sumt af því sem við höfum Iátið
frá okkur fara hefur þótt einum of
langt gengið, til clæmis í siðferðis-
kaflanum í stefnuskránni okkar.
Ef það eru mannréttindi að fólk
fái að sinna hvötum sínum svo
fremi sem það skaðar ekki náung-
ann þá höfum við aðra skoðun.
Við eigum að ráða hvötum okkar
og lifa heilhrigðu og hreinu lífi.
Við teljum að það séu lfka mann-
réttindi. Ef þetta er kallað ofstæki
þá eru það öfugmæli frá okkar
sjónarhóli séð. Eg trúi á það að
þjóðin geti tekið upp kristilegt
hugarfar og tel að þjóðkirkjan hafi
brugðist. bað er ekki ofstæki,"
segir Arni Björn Guðjónsson.
Kristnu gildin eru
nauðsynleg
Arni Björn er kjósendum að
nokkru kunnur því að hann hef-
ur barist fyrir kristilegri stjórn-
málahreyfingu í nokkur ár og
leiddi kristilegan lista í Reykjavík
fyrir síðustu alþingiskosningar.
Hann er nú aftur kominn í fram-
boðsstellingar, er með hóp fólks á
bak við sig, einkum fólk úr frí-
kirkjunni Messías við Rauðarár-
stíg. Hópurinn hefur auglýst í
fjölmiðlum eftir fólki á lista og
ætlar að standa að framboði.
Sjálfur hefur Árni alltaf haft mik-
inn áhuga á sveitarstjórnarmál-
um, „þau hafa alltaf verið eitt-
hvað svo mikið í mínum huga og
hjarta". Hann telur að þjóðkirkj-
an hafi brugðist og trúir því að
þjóðin geti tekið upp kristilegt
hugarfar.
„Það hefur verið ákveðinn
kjarni kringum þessa kristilegu
stjórnniálahreyfingu og við erum
alltaf að reyna að fá til fylgis við
okkur fleira kristið fólk. Eg tel að
við eigum enga samleið með
lýsir eftir
ióðendum
þessum, sem kalla sig flokka. Ég
tel að þessi kristnu gildi, sem
flokkarnir telja sig fylgja en fylgja
ekki, séu svo bráðnauðsynleg í
alla umræðu og að fjölskyldan
eigi að ráða sveitarfélögunum,1'
segir Arni Björn.
Losa við ósómaim
Þegar uppkast að stefnuskrá
Kristilegrar stjórnmálahreyfingar
er skoðað kemur fram að hreyf-
ingin vill líf og réttlæti guðs með-
al borgarbúa. Kristin borgar-
stjórn, mynduð af fulltrúum fjöl-
skyldunnar, sé eini möguleikinn
til að losa „borgina við allan þann
ósóma sem hér ríkir“ þar sem
ekki leyfist „að mata börnin okkar
á ldámi og ofbeldi og þar sem
komið verður í veg fyrir að þeim
standi lil boða að kaupa áfengi og
eiturlyf1, segir þar meðal annars.
„Með boðun hins góða, fagra
og fullkomna, með boðun fagn-
aðarerindisins í skólum og fjöl-
miðlum er hægt að stemma stigu
við óheilbrigðu líferni sem virðist
vaxa jafnt og þétt í borginni,"
segir þar einnig. Réttlæti verði
aldrei komið á af hagsmunaklík-
um flokkanna, sem stjórnast af
„fégræðgi og valdafíkn". Þeir
skeyti ekki um hagsmuni fjöl-
skyldunnar eða þeirra sem minna
mega sín. Árni Björn vill sumsé
að fjölskyldan komist til valda og
ráði borginni, til dæmis með því
að mynda kristileg fjölskyldusam-
tök úti í hverfunum.
Kristin samfélðg eru hrædd
Kristileg stjórnmálahreyfing hef-
ur auglýst eftir fólki á framboðs-
lista og segir Árni Björn að svör
hafi verið nokkur. Hann ætlar þó
ekki bara að auglýsa eftir fólki
heldur hafa beint samband við
kristilega söfnuði og reyna að fá
þá með sér. „Því miður hefur
komið í ljós að mörg kristin sam-
félög eru hrædd við að taka þessa
afstöðu. Valdakerfið er alltaf að
verða sterkara og hræðsla fólks-
ins er alveg ótrúleg,'1 segir hann.
— Getur ekld verið að stjórn-
málaflokkarnir höfði einfaldlega
meira til þeirra en Kristileg
stjórnmálahreyfing?
„Ég held að þetta sé fyrst og
fremst hræðsla. Ég tel að valda-
kerfið í landinu sé hættulegt
þjóðinni allri. Fjölskyldan má sín
einskis og einstaklingurinn ekki
heldur. Ef þetta fer ekki að snú-
ast við þá tortímum við þessari
þjóð. Það er ekkert öðruvísi,"
segir hann.
Árni vonast til þess að hreyf-
ingin nái inn einum fulltrúa til
að byrja með og segir að fyrir-
bænir séu löngu byrjaðar. -GHS.
II
Nvtt sím an u ni er 1
4 6 ( ) 2 5 0 0
SPARISJÓÐUR NORÐLENDINGA
Veitum hagstæð
| lán til kaupa á
landbúnaðarvélum
Reiknaðu meó
’ SP-FJÁRMÖGNUN HF
Vegmúli 3 • 108 Reykjavik • Simi 588-7200 • Fax 588-7201
Það tekur aðeins
einti - -
ivirkan
aö kotna póstinum
þínum til skila